Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2020, Qupperneq 23
Siglfirðingablaðið 23
Svipmynd: Sigurjóna
Bára Hauksdóttir
Jóna Bára er fædd á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 1. janúar 1966. Foreldrar hennar voru
Guðný Friðfinnsdóttir (Gunna Finna) og Haukur Kristjánsson (Haukur á Kambi).
Börn þeirra Gunnu og Hauks eru sjö og er Jóna Bára yngst í hópnum.
Með námi og að loknu námi í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar þá vann Jóna í fiski,
einnig á Hótel Höfn Siglufirði hjá Viðari Ottesen og Jónu Elísabetu Guðjónsdóttur
konu hans og á Knattborðstofu Siglufjarðar, öðru nafni Billinn hjá Guðmundi
Davíðssyni og Lilju Guðmundsdóttur.
Jóna Bára fluttist til Reykjavíkur um tvítugt og vann á ýmsum stöðum í veitinga-
geiranum, svo sem Hressingarskálanum, Pítunni og á Gauknum hjá Guffa. Hún
starfaði einnig hjá Eimskipafélagi Íslands á MS Laxfossi sem þerna og hjá Landssíma
Íslands. Jóna starfaði einnig í Korpuskóla sem matráður og fór síðan í nám sem
stuðningsfulltrúi. Að auki starfaði hún hjá Innnes ehf heildsölu.
Í höfuð á hverri heitir þú?
Sigurjóna eftir fyrri konu Gísla Þor-
steins, móðurbróður hennar mömmu
og Bára eftir góðri vinkonu mömmu
og pabba, henni Báru Stefánsdóttur,
gift Sigmari Magnússyni.
Maki?
Sá fallegasti og besti.
Sveinn Óskar Þorsteinsson, rafverktaki.
Börn?
Þorsteinn og Andri.
Bifreið?
Volvo.
Fyrsti bíllinn?
Toyota Corolla.
Fallegasta land sem þú hefur
ferðast til?
Noregur og auðvitað Ísland.
Mesta gleði í lífinu?
Fjölskylda og vinir.
Mestu vonbrigði lífsins?
Að eiga ekki fleiri gæðastundir með
ástvinum sem fallnir eru frá.
Besta bók?
Frík, nördar og aspergersheilkenni.
Eat pray love.
Besta plata?
The Rose (Bette Midler) og margar,
Hvað myndirðu gera ef þú yrðir
ósýnileg einn dag?
Uh!! Hvar á ég að byrja? … ég myndi
gera eitthvað skemmtilegt eins og t.d
skreppa í karlaklefann í Heilsuborg,
slökkviliðið æfir nefnilega þar, sjáðu til
Áhugamál?
Söngur og ferðalög.
Helsti veikleiki?
Ég má ekkert aumt sjá og á það til að
vera svo óheyrilega hlý að ég hreinlega
svitna bara út í eitt, sér í lagi núna þar
sem ég er á breytingaskeiðinu … ég
get einnig aldrei staðist neitt sætt,
hvort sem er nammi, kökur eða karl-
menn, aðallega þó Svenna minn.
Helsti kostur?
Þrautseigja, öðru nafni þrjóska.
Uppáhalds matur?
Soðin ýsa og lúða með nýjum kartöfl-
um og smjöri. Ekki verra að hafa
hamsa með.
Uppáhalds drykkur?
Te og vatn.
Uppáhalds fréttamiðill?
RÚV og CNN
Uppáhalds hljómsveit?
Gautar og Miðaldamenn. Hver man
ekki eftir, “Eftir ballið bæði förum” og
“Meiri bjór og límonaði”?
Versti matur?
Súrmatur!
Uppáhalds tónlist?
Úff, þessi er flókin og viðbúið að svarið
verði langt
Núna í augnablikinu, soul og gospel,
en hef mjög breiðan tónlistarsmekk,
sem gefur að skilja, enda sú yngsta af
sjö systkinum og öll með músík iðandi
í æðum. Sennilega höfum við fengið
músíkina með brjóstamjólkinni. Ætli ég
sé ekki næstum alæta á músík enda vel
uppalin af eldri systkinum. Tónlist var
daglegt brauð á heimilinu og lærðum
við snemma, all flest ef ekki öll, íslensku
dægurlögin hjá mömmu, sem mjög
gjarnan raðaði okkur krökkunum í
kringum eldhúsborðið og spilaði undir
á gítarinn sinn með vinnukonugripum,
lög eins og Lýsa geislar um grundir, Á
heimleið, Sjö litlar mýs, Dagný, Erla
góða Erla, Litla flugan, When the saints
go marching in með Louis Armstrong,
Ég einskis barn er o.fl., o.fl. góð lög.
Ef mamma var ekki að spila og syngja
þá tók blessaður grammófónninn við
á yfirsnúningi nánast “twenty four seven”
með lögum Ellu Fitzgerald, Louis
Armstrong, Ellýjar og Villa Vill,
Ragga Bjarna, The Temptations,
Everly brothers, Surpremes, Eric
Clapton, Dave Mason, Demis Roussos,
10cc, Meatloaf, Bette Midler, Barbara
Streisand, Gary Moore, The Police,
Donna Summer, Sheena Easton,
Fleetwood Mac, Stevie Nicks, Smokie,
Micael Jackson, Whitney Houston
o.s.frv. Fjölbreytt tónlist, enda margir
á heimilinu og tónlistarsmekkurinn
breiður Já, ég var ótrúlega heppið
stelpuskott.
Uppáhalds Íþróttakona?
Vala Flosadóttir.