Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 3

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 3
Siglfirðingablaðið 3 Sagan hefst norður á Ströndum árið 1907. Þá fæddist þar þ. 24. ágúst sveinbarn sem hlaut nafnið Guðbrandur. Hann var þriðji af sex börnum Magnúsar hreppstjóra, og Kristínar konu hans. Hann fékk dæmigert uppeldi þess tíma að Hólum, harðbýlu afdalakoti við frekar þröngan kost. Hann óx úr grasi og þroskaðist, var bæði námfús og vel greindur. Varð dugnaðarforkur og þurfti snemma að fara að hjálpa til við öll störf og ekki var mikið um leiki. Persónur eru: Guðbrandur Magnússon Anna Magnúsdóttir Borghildur Magnúsdóttir, (Bogga) systir Guðbrandar. Filippía Þorsteinsdóttir, móðir Önnu. Hólmfríður Þorsteinsdóttir, (Fríða) móðursystir Önnu Magnús Steingrímsson, faðir Guðbrandar. Allar þessar persónur eru túlkaðar og leiknar af: Önnu Gígju Guðbrandsdóttur, Kristínu Guðbrandsdóttur, Filippíu Guðbrandsdóttur. Sama sviðsmynd er notuð í öllum atriðunum sem á eftir fara. Sviðsmyndin á að tákna ýmis heimili frá þeim tíma og er lítillega breytt frá einu atriði til annars. Leikrit, eða réttara sagt leikin frásögn af ævi foreldra minna. Flutt í tilefni af 75 ára afmæli mömmu þ. 7. júlí 1995, svonefndri „Júlíuhátíð” að félagsmiðstöðinni Hóli á Siglufirði. Leikendur voru systur mínar þær Anna Gígja, Stína og Pía. Sjálf var ég sögumaður, leikstjóri og réði svona allflestu. Leikmyndin var flutt að sunnan með ærinni fyrirhöfn í stóra bílnum hans Halla. Hún samanstóð aðallega af gömlum búshlutum frá Fríðu tengdamömmu. Einnig voru með í farteskinu kökur og aðrar góðgerðir sem gestir afmælishátíðarinnar gæddu sér á þessa helgi. Það snjóaði drjúgum nóttina áður og leist okkur ekkert á blikuna. Veðrið var orðið bjart og fagurt þegar hátíðin gekk í garð og fjöllin drifhvít niður í miðjar hlíðar. Umrædd hátíð stóð í 3 daga. Minna mátti ekki gagn gera þegar ættmóðirin sjálf, hin eina sanna, átti í hlut. Leikritið: Ævi foreldra okkar - Höfundur: Hildur Guðbrandsdóttir.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.