Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 6
Siglfirðingablaðið6 „Guð hvað þetta eru fallegir skór, svona rauðir og fínir. Guðbrandur yrði áreiðanlega hrifinn af mér í þeim við fallegu kápuna mína sem mamma saumaði á mig ég kaupi þá, þeir passa alveg (mátar skóna) Jesús minn, hvað þeir eru dýrir, næstum allt mánaðarkaupið, jæja það verður bara að hafa það ég bara verð að eignast þá.“ (Fer við svo búið heim og sýnir Guðbrandi.) En svo bregðast krosstré sem önnur tré karl trompast í fyrsta sinn í þeirra búskap, en ekki það síðasta. Guðbrandur: „Hvurslags er þetta eiginlega manneskja að eyða kaupinu öllu í eina skó. Ég hef aldrei vitað aðra eins vitleysu.“ (Hann er alveg öskureiður.) Anna, alveg hissa: „Guð í himnasölum.“ (Fórnar höndum) Hún sér þarna alveg nýja hlið á drauma- prinsinum sínum. Þegar líður að áramótunum 1939-40, fer ráðskonan unga að kenna sér flökurleika á morgnana og svo bætist við brjóstsviði. Það er ekki eftir neinu að bíða og þau drífa í því að gifta sig í febrúar 1940. Þeim fæðist svo fyrsta barnið þ. 3. september sama ár. Það er drengur sem skírður er Skúli, eftir föðurbróður sínum sem lést á besta aldri. 7. atriði Árið 1941 flytja þau svo til Siglufjarðar þar sem Guðbrandur hafði ráðið sig kennara við Gagnfræðaskólann. Þangað koma þau þegar farið er að hausta, í skítaveðri. Önnu hrýs hugur við staðnum þar sem hún stendur uppá þilfari skipsins þegar siglt er inn fjörðinn og segir hálfhátt við sjálfa sig. „Hér á ég ekki eftir að kunna við mig, hér get ég ekki búið.“ En það varð nú eitthvað annað. Þau festu kaup á húsi að Grundargötu 16, þar í bæ og höfðu smá hænsnabú til búdrýginda í bakgarðinum og meira að segja “telefon.” Amma okkar hún Filippía, flyst fljótlega til þeirra frá Akureyri og var að mestu búsett hjá þeim upp frá því allt til dauðadags. Hún vann fyrir sér, meðan kraftar leyfðu, með saumaskap. Hún var úrvals saumakona, en alltaf hálfheilsulaus. (Hér kemur amma Pía inn á sviðið). Þetta sama ár, þ. 28. nóv. fæðist annað barnið það var stúlka sem hlaut nafnið Hildur, eftir langömmu sinni í föðurætt. Þriðja barnið fæðist svo 15 mán- uðum seinna það var stúlka sem skírð var Filippía Þóra, en hún dó aðeins 8 vikna úr skarlatssótt. Lífið hélt þó áfram en annan skugga dró upp á himininn fáeinum vikum seinna hjá ungu hjón- unum. Hildur veiktist alvarlega af heilahimnubólgu. Það var seigt í þeirri litlu og hún “meikaði það“ sú stutta, en Önnu var brugðið. Um vorið 1946 birti þó til með litlu stelpukorni, nánar tiltekið þ. 22. maí, en þá fæddist Anna Gígja. Hún er eina barn foreldra okkar sem fætt er að vori. Hún er líka mjög sérstök. Þá þegar var afráðið að þau flyttu búferlum til Akraness fyrir haustið, þar sem Guðbrandur var að taka við skólastjórastöðu við Gagnfræðaskólann þar í bæ. Ekki varð dvölin þar löng, aðeins sá eini vetur, þau kunnu ekki við sig þar og afréðu að flytja aftur til Siglufjarðar og þangað komu þau snemma sumars ´47. Þar hefst búseta þeirra númer tvö á þeim stað. Húsnæði fékkst leigt að Vetrarbraut 10 þar sem þau bjuggu næsta vetur en fljótlega var farið að huga að framtíðarstað fyrir ört stækkandi fjölskyldu og ákveðið að byggja. Fyrst var hafist handa fram á Hafnarhæð, fengin lóð, húsið teiknað og byrjað að grafa. Hætt var við þær byggingaframkvæmdir því Guð- brandi bauðst annar og fallegri staður á Hlíðarvegi 3c, ættaróðalið. Þar hafði brunnið hús árið áður og framkvæmdir hafnar við nýtt hús og upp kominn kjallarinn. Þetta var svo afráðið, selt suðurfrá og veturinn not- aður til að afla frekari fanga til nýbyggingarinnar. Fátt var um fína drætti enda stríðið nýafstaðið og ekkert byggingarefni að fá. Sement fékkst þó frá Hollandi sem var notað sem ballest í skipið sem flutti það til Siglufjarðar. 8. atriði Með vorinu var svo allt sett á fulla ferð við hús- bygginguna, yfirsmiður var Pétur Laxdal, afar minnisstæður maður. Ég man vel eftir því þegar Guðbrandi áskotnaðist ein rúlla af rappneti fyrir

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.