Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Síða 15

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Síða 15
Siglfirðingablaðið 15 ég var orðinn svo æstur að ég stökk fram í fremstu víglínu, með prik í hendi. Við fyrsta högg fékk ég kylfu andstæðings á fingurgómana. Litla hetjan hljóp grenjandi heim. Brekkuguttar báru sigur af hólmi í þessum slag því Gústi keila, sem bjó á Háveginum, var í okkar hópi. Hann var stór og sterkur og vopnaður löngu járnröri. Þegar hann steig fram á vígvöllinn þorði enginn í hann. Hann ruddi Eyrarguttunum til baka með rörinu og þeir voru fljótir að forða sér. Fikt með eldfima vökva Í húsi við Lindargötu 18 bjuggu tveir skólabræður mínir. Á neðri hæðinni var Addi, Arnþór Þórsson, en Brói, Guðjón Magnússon á þeirri efri. Við Addi vorum eitt sinn að fikta með eld við húsið og höfðum sett bensín í vatnskönnu. Faðir Bróa kom að okkur og var ekki kátur, reyndi að slökkva eldinn en hellti óvart úr könnunni, sem hann hélt að væri vatn í, og var nærri búinn að kveikja í sér. Hann náði að stökkva frá eldtungunum ómeiddur en var sótsvartur í framan, aðallega af reiði! Syðri hluti Lindargötunnar lifir ekki sterkt í minningunni. Þó verð ég að geta tveggja merkra manna sem bjuggu þar og settu svip sinn á bæinn. Annar var hinn listhagi Bragi Magnússon, Bragi lögga, en hinn var Tommi Hallgríms formaður KS og mikill félagi okkar strákanna. Breytt gatnakerfi, litli hringur og stóri hringur Þá er komið að efri hluta Brekkunnar. Rétt við Hóla gengur Kirkjugarðsvegur upp frá Lindargötunni að Hávegi. Miðja vegu til suðurs hefst Hverfisgatan. Gatnakerfið á Brekkunni í dag er nokkuð breytt frá því ég bjó þar. Hverfisgatan var á þeim tíma blindgata en frá Skriðustíg (nafnlausa gatan í gamla daga) var hægt að aka upp á Háveg. Nú hefur tenging Skriðustígs við Háveg verið rofin og syðri hluti Hverfisgötunnar verið sveigður upp á Háveg. Vegslóði eða stígur sem gengur upp milli Lindargötu 24 og 26, að bakhúsum við Lindargötu náði í gamla daga upp að Hverfisgötu þótt hann væri ekki akfær alla leið. Þá er efri hluti Kirkjugarðsvegar nú að hverfa undir gras. Einn leikur okkar strákanna var að fara í kapphlaup, stóra hringinn eða litla hringinn. Hlaupið hófst á Lindargötunni við Holuna. Stóri hringurinn afmarkaðist af Lindargötu, Skriðustíg, Hávegi og Kirkjugaðsvegi. Litli hringurinn afmarkaðist af stígnum frá Lindargötu, Hverfisgötu og Kirkjugarðsvegi. Skíðakóngur og bakari Hverfisgatan var afar þéttbýl. Á Hverfisgötu 3 bjó Jón Þorsteins, einn af þekktustu skíðamönnum landsins og bar hann hróður Siglufjarðar víða. Hann varð margfaldur Íslandsmeistari á skíðum og hlaut nafnbótina skíðakóngur Íslands oftar en einu sinni. Árið 1947 tók Jón þátt í skíðastökkkeppni á Holmenkollen í Noregi. Jón var af þekktri ætt á Siglufirði, Gosunum, en sú ætt státaði af mörgu frábæru skíðafólki. Ari sonur Jóns, yngri en ég, var Lilja Guðmunds og Sigrún Steins prúðbúnar á Brekkunni. Þær standa neðarlega á Kirkjugarðsvegi. Húsið til vinstri er Hverfisgata 2. Til hægri er girðingin við hús Jónasar rakara og fyrir ofan kirkjugarðurinn. Fjallið gnæfir yfir. Myndina tók Ragna Hannesdóttir vorið 1965, þ.e. vorið sem 1951 árgangurinn fermdist. Aftari röð frá vinstri: Jóhann Skarphéðinsson, Einar Pálsson, Jónas Valtýsson og Arnþór Þórsson. Fyrir framan eru Gunnar Trausti Guðbjörnsson, sem bjó í næsta nágrenni Brekkunnar, og Dóra Lísa, frænka Einars. Myndin tekin í barnaafmæli haustið 1959.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.