Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 17

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 17
Siglfirðingablaðið 17 hafi farið fyrir honum á Brekkunni en Kristján lét þeim mun meira að sér kveða síðar sem þingmaður og samgönguráðherra. Naut Siglufjörður ríkulega góðs af því. Matvandur fangi Við Aðventistakirkjuna rifjast upp skondið atvik. Einn morgun tókum við Simmi Jónas Halldórsson höndum fyrir litlar sakir, drógum hann á bak við kirkjuna og bundum hann á höndum og fótum. Í hádeginu fór Simmi heim í mat en ég gætti Jónasar. Simmi kom til baka með súpudisk handa fanganum. Jónasi þótt súpan vond og neitaði að borða hana. Við vorum sármóðgaðir fyrir hönd móður okkar og til að refsa fanganum leystum við hann og rákum burt út fangelsinu! Fyrir sunnan Aðventistakirkjuna bjuggu þrír bræður á mínu reki: Kristján, Þorsteinn, jafnaldri minn, og Rafn Elíassynir en kenndir við móður sína Heiðu. Ég lék mér gjarnan við Stjána. Hann og Rabbi voru félagar í KV og voru í A-liði í fyrsta keppnisleik KV. Brennur og átök Brekkuguttarnir stóðu nokkrum sinnum fyrir áramótabrennu í fjallinu. Í KV-bók eru ítarlegar lýsingar á þeirri miklu vinnu sem fór í að safna drasli. Við fórum meðal annars í verslanir og fengum að hirða tóma kassa inni á lager. Kannski stungum við á okkur vínberjaklasa í leiðinni! Félagar í KV byggðu skúr á auðu lóðinni Lindargötu 12. Draslinu var safnað í hann og fleiri skúra. Þegar skúrinn okkar var fullur var draslinu hlaðið upp fyrir utan og breitt segl yfir. Þurfti að standa vörð um hlaðann því strákar úr næstu hverfum voru líklegir til að laumast að kvöldlagi og ræna spýtum eins og eftirfarandi færsla í KV-bók ber með sér: „Ekkert var safnað í dag vegna rigningar en stolið var undan seglinu helling af drasli og stolið úr einum skúrnum. Á morgun ætlum við að rannsaka hverjir það hafa verið.“ Ennfremur segir í KV-bók: „Það var gerð tilraun til þess að kveikja í einum skúrnum og við gátum slökkt þegar einn kassi var brunninn.“ Seldum sömu tunnurnar tvisvar Eitt sinn er við Gummi og Nóni vorum að safna í brennu fengum við gefins tvær eða þrjár gamlar síldartunnur. Fyrir framan Egilssíld hittum við Hansa og hann keypti af okkur tunnurnar. Á leið upp á Brekku sáum við að Hansi fór með tunnurnar út bakdyramegin. Við snöruðumst til baka, tókum tunnurnar og veltum þeim að framdyrunum og bönkuðum. Við sögðum Hansa að okkur hefði verið gefnar fleiri tunnur og hann keypti þær líka. Við hlupum í felur. Hansi kom aftur út bakdyramegin með tunnurnar, snarstoppaði og starði undrandi á staðinn sem fyrri tunnurnar áttu að vera. Svo áttaði hann sig á því að hann hafði verið plataður, fór inn aftur og hafði tunnurnar með sér! Stokkið af Sjómannaheimilinu Veturnir á þessum árum voru afar snjóþungir að því ég man best. Allar götur á kafi, aldrei mokað nema þegar olíubílarnir þurftu að komast leiðar sinnar. Snjórinn var uppspretta fjölda leikja. Áður var minnst á snjóhús og snjóbolta. Einnig var vinsælt að klifra upp á næsta skúr eða hærri byggingar og stökkva fram af. Við klifruðum oft upp á þakið á Sjómanna- heimilinu, komust þangað frá áföstum skúr neðan við Hóla. Við stukkum niður í snjóinn sem safnaðist í sund milli steingarðsins og Sjómannaheimilisins. Þar var nokkuð hátt fall og djúpur snjór svo við Vetur á Hverfisgötunni. Fyrir miðri mynd er Aðventista- kirkjan sem kom mjög við sögu leikja krakka á Brekkunni. Til vinstri er Hverfisgata 12 þar sem Aðalheiður Þorsteins (Heiða Jónu) og Elías Ísfjörð bjuggu. Bæði þessi hús eru horfin. Mynd: Ljósmyndasafn Siglufjarðar. Vinkonurnar Þórdís Rögnvaldsdóttir og Fríða Ragnarsdóttir með drengjakoll. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.