Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - Oct 2020, Page 20
Siglfirðingablaðið20
Blaðað í lífsbókinni
Gunnlaugur Skaftason
Mörg eru nöfnin sem minningin geymir;
mæra þau hjarta og sál.
Hérna í dag fram í hugana streymir
hlýjust þökkin, við ljóðsins mál.
Bryggjurnar stórar og brakkarnir risu,
birtust svo möstur og tröf.
Þar var hann Bakkevig, þar var hann Gunnar
og þar var hann Skafti á Nöf.
(Sig. Ægisson)
Það er líklega að bera í bakkafullan lækinn að koma
með enn einn síldarpistilinn en eitt er það sem lítið
hefur verið sagt frá og það er hvernig var að alast
upp í miðri hringiðunni, í brakka sem var jafnframt
heilsársheimili stórrar fjölskyldu áratugum saman.
Gunnlaugur Skaftason, Gulli Skafta, sem fæddur er
23. september 1930 og verður því orðinn níræður
þegar þetta blað kemur út, er líklega sá eini sem er
til frásagnar um það en hann fæddist og ólst upp í
Skaftabrakkanum. Það þótti því ástæða til að hafa
kaffispjall við hann og mættar voru, auk hans og
mín, tvær tryggar síldarstúlkur sem söltuðu á Nöf
hjá Skafta, móðir mín, Helena, og systir mín Alda.
Gulli man meira en tímana tvenna og við byrjuðum
á smá upprifjun. Hvað varð til þess að íbúðarhúsið
var byggt í flæðarmálinu? Hver var aðdragandinn
að því? Við förum nokkuð hratt yfir sögu því saga
ættföðurins Skafta hefur verið skráð af mörgum, er
vel þekkt og efni í heila bók.
Málmey - Hofsós - Siglufjörður
Faðir minn var fæddur í Málmey árið 1894 og
flutti þaðan 13 ára til Hofsóss. Faðir hans, Stefán
Pétursson, hafði misst heilsuna og systkinin þurftu
snemma að taka til hendinni og aðstoða móður sína,
Dýrleifu Einarsdóttur, við rekstur heimilisins. Pabbi
hóf sjómennsku 13 ára gamall á flatbotna pramma,
sem fenginn var að láni, og Pétur bróðir hans 9
ára var háseti. Fljótlega var svo keypt norsk skekta
fyrir ærverð, eða 13 krónur. Þeir bræður urðu fljótt
áræðnir og aflasælir og smám saman voru færðar út
kvíarnar og 1918 eignuðust þeir rúmlega 10 lesta
mótorbát, Úlf Uggason, sem varð kunn fleyta. Pabbi
eignaðist fleiri báta í tímans rás og margir muna
eflaust eftir síðasta bátnum hans Mjölni sem lá við
Skaftabryggju til ársins 1965.
Pabbi tók að sér flutninga á milli Skagafjarðar og
Siglufjarðar, póst, mjólk, vörur, dýr og fólk og það
varð fljótt ljóst að honum mátti treysta í einu og
öllu og fjölmörg dæmi sanna það. Hann kynntist
harðri lífsbaráttu og að þurfa að standa sig. Hann
lenti oft í lífsháska en trúði því að yfir sér væri vakað
og lífsreynslan og margir alvarlegir atburðir styrktu
hann í þeirri trú. Hann var vanur að signa yfir
bátana og fara með bæn. Eftir eina svaðilförina var
um hann ort:
Sankti Pétur sagt er frá
svörum þannig flíki:
Skafta liggur ekkert á
inn í himnaríki.
Eftir flutninginn til Hofsóss fór fjölskylda pabba
að venja komur sínar til Siglufjarðar á sumrin þar
sem var næg atvinna fyrir duglegt fólk og svo kom
að því að pabbi byggði þetta reisulega þriggja hæða
hús árið 1922, þá er hann 28 ára stórhuga ungur
Gunnlaugur Skaftason og Helena Sigtryggsdóttir.
Myndin er tekin á upprifjunarstund.