Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Side 22

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Side 22
Siglfirðingablaðið22 fólk í vinnu, það þvældist bara hvert fyrir öðru! Einhver kerskni kannski í þeirri skoðun en honum hélst mjög vel á fólki í vinnu. Innskot/JM: Frásögn Óskars 14 ára Ólafs firð- ings sem kom í heimsókn til Siglu fjarðar 1958 og falaðist eftir vinnu hjá Skafta sem tók honum ljúfmannlega: „Svo kom að útborgunardegi: Hvað átti ég mikið inni? Skafti skrifaði nótu og taldi síðan fram á fjórða hundrað krónur. Ég varð ein augu. Þetta var meira heldur en ég hafði búist við. Þetta reiknaðist 31 tími, „þú stóðst þig bara vel!“ Mér hafði talist svo til að þeir væru 29. Skafti hafði augljóslega bætt við tímum sem ég taldi mig vinna í sjálfboðavinnu. Seðlarnir og nótan fóru í vasann. Við Skafti kvöddumst með þéttu handtaki og sáum ekki hvor annan eftir það. Hann var mikill drengskapar- og öðlingsmaður hann Skafti Stefánsson. Ég sveif niður stigann til baka.“ Uppvaxtarárin, fall út um glugga, leikir og vinna Ég er fæddur í þessu húsi og bjó þar öll mín upp- vaxtarár og á að mestu leyti bara góðar minningar frá þeim tíma. Kannski var það eitthvað sérstakt að alast upp á þessum stað en mér fannst það bara eðlilegt og lærði ýmislegt sem aðrir kunnu ekki, svo sem margt sem snéri að sjósókn, bátum, vélum og atvinnulífi. Ég á minningar frá því að fylgjast með út um gluggann því sem var að gerast á bryggjunum og í nágrenni þeirra. Eitt atvik tengt því er í fersku minni. Það var að vori og ég var að fylgjast með þegar verið var að gera bátana klára. Ég var u.þ.b. 4ra ára og klifraði upp í stofugluggann á þriðju hæð, opnaði neðri gluggann og teygði mig upp í efri gluggann til að opna hann en datt þá út um neðri gluggann. Þetta var 4-5 metra fall og ég kom niður á höfuðið. Mér varð það til lífs að lenda ofan á kassa með tréloki sem gaf eftir, en í kassanum voru geymdar netakúlur úr korki, ofan á þeim lenti ég og þær tóku af mér mesta höggið. Ég slapp óbrotinn en átti í því lengi að sofna í tíma og ótíma og ekki gat ég smakkað rjóma, af einhverjum ástæðum. Bræður mínir kölluðu það leti þegar ég svaf lengi á morgnana og voru duglegir í baráttunni við að vekja mig. Þeir voru svo hrekkjóttir! En ég finn ennþá fyrir þessum eftirstöðvum fallsins. Ég var níu ára þegar ég saltaði í lagi með mömmu og það var hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, enda pabbi ekki byrjaður með eigið söltunarplan. Það var settur kassi undir mig og ég hékk á tunnubarminum til að koma síldunum í neðstu lögin. Einn hrekkjalómur gerði sér að leik að hrinda mér ofan í tunnuna og sá fékk aldeilis orð í eyra frá móður minni. Á vorin voru alltaf leikir á bryggjunum. Snjórinn þiðnaði fyrst þar á vorin og um leið og það gerðist var þust út í slábolta, fótbolta eða aðra leiki. Fullorðnir menn eins og Tryggvi Flóvents, Óli Vill og Andrés Hafliða slógust stundum í hópinn í sláboltanum og þetta voru hörkukýlarar. Þegar meira tók upp af snjó var farið í fótbolta á Ísfirðingaplaninu við mismikinn fögnuð þeirra sem þar réðu ríkjum. Fótboltaæfingarnar á bryggjunni voru ágætis undirbúningur fyrir okkur bræður sem allir spiluðum með KS, ekki þó allir í einu, en viðbrigðin voru mikil frá æfingum á bryggjunum þar sem boltinn gat skoppað langa leið, í mölina á fótboltavellinum. Svo var farið í „yfir“ yfir Ísfirðingabrakkann sem er ansi hár. Á Tynesarplaninu var svo keppt í margs konar íþróttum og það þótti ekkert tiltökumál þótt einhverjir dyttu í sjóinn. Leikirnir færðust svo ofar í bæinn þegar snjóinn tók upp. Alltaf var hægt að hafa eitthvað fyrir stafni. Á veturna voru líka leikir, feluleikur og snjókast og svo þvældumst við í brökkunum. Skíðaiðkun var mikil og margir urðu góðir skíðamenn. Við bræður áttum skíði en stunduðum þau ekki mikið, renndum okkur bara niður brekkurnar. Margir gerðu sér að leik að brjóta perurnar í ljósastaurunum með snjókúlum og biðu svo eftir að Toni kæmi með járnskóna og klifraði upp staurinn til að skipta um peru. Hann Toni þessi var giftur Mörtu Sveinsdóttur sem var mjög góð leikkona og lék í mörgum leikritum í bænum ásamt t.d. Friðþóru föðursystur Síldarstúlkur á Skaftaplani sumarið 1959. Oftast voru sömu síldarstúlkurnar og í sama plássi, sínu plássi! Skip við hverja bryggju. Frá vinstri: Þóra Jónsdóttir, Helena, Alda, Jóna, Sigríður Guðjónsdóttir, Ingibjörg Jónasdóttir (Abba). Jón Pálsson er líklega að afgreiða saltpöntun hjá Öbbu.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.