Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Side 28
Siglfirðingablaðið28
bæjarins og því oft þröng á þingi á götunni. Með
nýjum jarðgöngum í vesturátt þarf því ekki lengur
að huga að nýrri innkeyrslu til Siglufjarðar og við
það sparast miklir fjármunir. Með tilkomu Stráka-
ganga árið 1967 bötnuðu vegasamgöngur til og frá
Siglufirði til mikilla muna. Göngin eru hins vegar
barn síns tíma og ljóst að með tilliti til öryggis veg-
farenda og aukningar umferðar munu þau ekki
uppfylla kröfur á næstu áratugum.
Ný jarðgöng milli Siglufjarðar og Fljóta
Varanleg lausn á vegasamgöngum frá Siglufirði til
vesturs verður ekki nema með tilkomu jarðganga.
Það hefur m.a. komið fram í umræðum á Alþingi og
einnig verið mat Vegagerðarinnar að það sé sá kostur
sem stefna beri að. Slík göng myndu auk þess leysa
framangreindan vanda við núverandi vegsamband
og vafalítið styrkja og efla byggð í Fljótum og stytta
vegalengdina milli Siglufjarðar og Ketiláss um 15
km. Rétt er að minna á ört vaxandi ferðaþjónustu
á Deplum í Fljótum og uppbyggingu á Sólgörðum
og myndu þau göng sem hér er rætt um vafalaust
styrkja og efla þann rekstur sem þar er, svo og Fljótin
í heild sinni.
Varaleið fyrir Öxnadalsheiði
Með tilkomu Héðinsfjarðarganga skapaðist ný og
mikið notuð varaleið fyrir þjóðveg 1 þegar Öxna-
dalsheiði lokast og ný Siglufjarðargöng, eins og
hér er rætt um, myndu auka enn frekar notagildi
þeirrar varaleiðar og auka umferðaröryggi fyrir
vegfarendur. Vegagerðin hefur einkum hugað að
tveimur jarðgangaleiðum. Annars vegar frá Hrauni í
Fljótum til Skarðsdals, beint undir Siglufjarðarskarð,
og hins vegar frá fjallinu Skælingi við norðanvert
mynni Nautadals í Fljótum til Hólsdals innan við
Siglufjörð. Síðari leiðin virðist í fljótu bragði vera
ákjósanlegri, göng styttri (5,2 km) og ódýrari,
styttri vegalengd til Siglufjarðar og aðstæður fyrir
munna í Hólsdal betri en í Skarðsdal. Bréfritarar
telja skynsamlegt að skoða báða þessa kosti og
treysta Vegagerðinni mjög vel til þess að velja
þann hagkvæmari. Þess má geta að jarðgöng milli
Siglufjarðar og Fljóta eru á aðalskipulagi beggja
sveitarfélaganna, þ.e. sveitarfélagsins Skagafjarðar og
Fjallabyggðar.
Hálfnað er verk þá hafið er
Vegagerðin skilaði frá sér forathugunarskýrslu í mars
s.l um Siglufjarðarskarðsgöng. Skýrslan er faglega og
vel unnin eins og allt sem Vegagerðin gerir og er gott
innlegg í umræðuna og næstu skref. Í skýrslunni er
mælt með Hólsdalsleiðinni.
Niðurlag umsagnar okkar til Alþingis var eftir-
farandi: