Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2019, Blaðsíða 4

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2019, Blaðsíða 4
Siglfirðingablaðið4 Misstu af sæti í efstu deild Þróttur kærði úrslit leiks við KS vegna ungs leikmanns Sumarið 1963 tók Knattspyrnu­ félag Siglufjarðar, KS, þátt í keppni í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu og það í fyrsta sinn. Þegar fór að líða á sumarið var KS í einu af efstu sætunum í öðrum riðlinum og átti möguleika á að komast í 1. deild, sem þá var efsta deildin. En þá fór að draga til tíðinda. Of ungur Laugardaginn 3. ágúst 1963 kom Þróttur frá Reykjavík til Siglufjarðar til að leika gegn KS. Þróttarar höfðu forystu í hálf leik, tvö mörk gegn engu. Heima­ menn sögðu þetta hafa verið klaufamörk. Í síðari hálfleik skoruðu Siglfirðingar fjögur mörk en Þróttarar ekkert og leiknum lauk með sigri Siglfirðinga, 4:2. Þar með urðu þrjú lið efst og jöfn í B­riðli 2. deildar með sjö stig, Siglfirðingar, Þróttarar og Hafnfirðingar (ÍBH). Einn af leikmönnum KS var Sigurjón Erlendsson, fæddur í apríl 1947 og því 16 ára. Hann hafði staðið sig vel í 3. aldurs­ flokki og var valinn í liðið í stað eldri leikmanns sem gat ekki tekið þátt vegna meiðsla, að sögn. Samkvæmt reglum KSÍ taldist Sigurjón ekki vera orðinn 16 ára af því að hann hafði ekki náð þeim aldri fyrir áramótin á undan. Stjórn KS gerði sér grein fyrir því að sækja þyrfti um leyfi til KSÍ. Síðdegis 31. júlí sendi Tómas Hallgrímsson, formaður KS, símskeyti til Björgvins Schram formanns KSÍ. Var sótt um undanþágu, annars vegar fyrir Sigurjón Erlendsson og hins vegar fyrir Runólf Birgisson, sem var nær ári yngri en Sigurjón. Tómas fylgdi skeytinu eftir með símtali. Formaðurinn lofaði að halda fund um málið um kvöldið og tilkynna niðurstöðuna daginn eftir. Að kvöldi þess dags hringdi Ingvar N. Pálsson stjórnarmaður í KSÍ í Tómas og sagði: „Það er allt í lagi fyrir ykkur að láta þessa menn spila með á laugardaginn.“ Tómas óskaði eftir staðfestingu í símskeyti og barst það 2. ágúst. Þar stóð: „Samkvæmt reglum um knattspyrnumót er knatt­ spyrnuráðum heimilt að veita allt að fjórum leikmönnum yngri en 18 ára undanþágu til keppni með fyrsta flokki.“ Ekkert knattspyrnuráð var á Siglufirði heldur átti KS beina aðild að KSÍ. Tómas sýndi dómara leiksins, Frímanni Gunnlaugssyni, skeyt­ in og sagði frá símtölunum. Dómarinn sagði leikinn vera lög legan og engin ástæða væri til að til kynna Þrótti um undan­ þáguna. Hins vegar var staðfest að Þróttarar vissu um málavexti fyrir leikinn. Leikurinn kærður Þremur dögum eftir leikinn sendi Jón Ásgeirsson, formaður Þróttar, skeyti til formanns KS og þakkaði „fyrir frábærar móttökur“. Síðan bætti hann því við að þann skugga hefði borið á að lið KS hefði ekki verið löglegt og að Þróttur sæi sig tilneyddan til að kæra það. Málið fór fyrir héraðsdómstól Íþróttabandalags Siglufjarðar, í samræmi við reglur Knatt­ spyrnusambandsins. Þar var úrskurðað að leikurinn hefði verið löglegur þar sem leyfi KSÍ hefði verið til staðar. Auk þess var bent á að kæran hefði komið of seint fram. Niðurstöðunni snúið við Dómstóll KSÍ tók málið upp og féllst á kröfu Þróttara í byrjun september. Siglfirðingar fengu ekki að færa fram sín rök fyrir dómstólnum. Þróttarar komust þannig upp fyrir Siglfirðinga og Hafnfirðinga að stigum í B­riðli og öðluðust rétt til að keppa við Breiðablik, sem hafði sigrað í A­riðlinum, um sæti í 1. deild, sem þá var efsta deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, eins og áður sagði. Í símskeyti sem Knattspyrnu sambandið sendi „Knattspyrnu­ ráði Siglufjarðar“ 3. september vekur athygli að fullyrt er að leikmaðurinn hafi verið ólög legur: „Dómsorð knattspyrnudóm­ stólsins vegna ólöglegs leikmanns í liði KS í kappleik í annari deild háðum á Siglufirði 3. ágúst 1963 milli KS og Þróttar Reykjavík. Skal leikurinn dæmdur tapaður fyrir KS. Bréf á leiðinni.“ Siglfirðingum fannst þetta ekki geta staðist, hart ætti að taka á því ef eldri leikmenn léku með yngri flokkum en ekki öfugt. Andi laganna væri sá og jafnframt var vitað um dæmi þess að ungir leikmenn hefðu tekið þátt í sambærilegum leikjum áður. Lagt hafði verið fram læknisvottorð um að heilsa og líkams burðir Sigurjóns hindruðu hann ekki frá þátttöku í þessari keppni. Bent var á að í sumum nálægum löndum þyrfti ekki leyfi

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.