Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2019, Síða 6

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2019, Síða 6
Siglfirðingablaðið6 Rögnvaldur Þórðarson gerði tvö mörk og Sævar Gestsson eitt. Akureyrarblað sagði að sigurinn hefði verið verðskuldaður og að Siglfirðingar hefðu verið baráttuglaðir og þolgóðir og að margir þeirra hefðu leikið vel. En blaðinu fannst úrslitin vera áfall fyrir akureyrska knattspyrnu. Sagan segir að KS hafi ekki getað fengið bikarinn afhentan strax eftir mótið vegna þess að búið hafi verið að grafa nafn KA á hann. En mánuði síðar var bikarinn afhentur með viðhöfn á Siglufirði. Þetta hljóta að hafa verið ákveð nar sárabætur fyrir siglfirska knattspyrnumenn. Jónas Ragnarsson tók saman. Norðurlandsmeistararnir 1964. Aftari röð: Helgi Magnússon, Þröstur Stefánsson, Freyr Sigurðsson, Rögnvaldur Þórðarson, og Sævar Gestsson. Fremri röð: Birgir Guðlaugsson, Bjarni Þorgeirsson, Ásgrímur Ingólfsson, Arnar Ólafsson og Sigurjón Erlendsson. Á myndina vantar Þorkel Hjörleifsson. Eiga ekkert inni hjá mér Sigurjón Erlendsson var á seinna ári í þriðja aldurs­ flokki þegar hann var fenginn til að taka þátt í um­ ræddum leik í meistaraflokki sumarið 1963, vegna forfalla eins leikmanns. Hann var þá rúmlega sextán ára. Síðustu áratugi hefur Sigurjón starfað sem rafvirki á Siglufirði. Þegar haft var samband við Sigurjón vegna þessarar upprifjunar sagðist hann oft hugsa um þennan leik og eftirmál hans. „Ég var ansi svekktur og sár,“ sagði hann um málalyktirnar „og þetta fór ekki vel með sálartetrið.“ Þetta sumar hafði Sigurjón verið duglegur að æfa og hafði alla burði til að keppa með meistaraflokki, þrátt fyrir ungan aldur. Viðbrögð hans í framhaldinu voru þau að vera enn duglegri en áður að æfa. Og hann keppti með KS í mörg ár í viðbót. Þetta var örugglega eitt sterkasta lið KS ef ekki það alsterkasta, að mati Sigurjóns. KS hafði til dæmis spilað æfingaleik við Breiðablik í Kópavogi um þetta leyti og unnið. Hann telur að KS hefði unnið deildina ef kærumálið hefði ekki komið til. „Ég er alveg klár á því að við hefðum farið upp.“ Liðið var að mestu leyti óbreytt þegar það varð Norðurlandsmeistari árið eftir og vann þá bæði KA og Þór. Þegar Sigurjón var spurður hvort hann hefði ekki haft samskipti við Þrótt eftir þetta sagðist hann aldrei hafa viljað gera það, hann hafi ekki einu sinni farið inn í félagsheimili þeirra þótt hann hafi verið boðinn þangað. „Ég hef alveg látið þá eiga sig, Þróttarar eiga ekkert inni hjá mér.“

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.