Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 7

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 7
Siglfirðingablaðið 7 Vögguvísa litlu Hörðu Þegar lífið ljúft og blítt leikur daga og nætur, undrið mikla á sér skjól innst við hjartarætur. Litla bjarta baugalín, blóm að vaxa úr grasi, vertu eins og hún amma þín yndisleg í fasi. Ef að sækja sorgir að sumir hafa að marki, að meta þeirra mátt og vald en mæta þeim með kjarki. Þetta litla ljúfan mín, í lífinu vel fær dugað. Vertu eins og hún amma þín sem ekki neitt gat bugað. Sumir eiga óskadraum, sem ef til vill má rætast, aðrir þurfa létta lund að lifa án draums, en kætast. Sofðu unga ástin mín, ástin fölnar síðust. Vertu eins og hún amma þín allra kvenna blíðust. Fögur á heiði blómin blá brosa hlýtt við sólu, uns þau verða að lúta lágt, lágt í vetrargjólu. Sofðu væna vina mín vel og sætt þig dreymi. Vertu eins og hún amma þín, ástin mín, allra best í heimi. Enn eigum við eintök af bókinni hans Braga löggu um húsin í bænum, með teikningum eftir snillinginn Braga Magnússon af húsum sem sum hver eru horfin. Í bókinni eru einnig teikningar og ljóð Braga, þar á meðal þessar heilræðavísur hér að neðan til Hörðu litlu dótturdóttur hans, en er í raun ástarljóð til konu hans Hörðu Guðmundsdóttur (1912­1976) sem átti við veikindi að stríða öll þeirra búskaparár. Vertu eins og hún amma þín sem ekki neitt gat bugað. (gunnar@merkismenn.is ­ 897 9746).

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.