Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2019, Page 12

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2019, Page 12
Siglfirðingablaðið12 Halló Akureyri, hér komum við - aftan í dráttarvél. Sumrin 1972 og 1973 spilaði hljómsveitin Frum aðra hverja helgi í Allanum á Akureyri eins og áður sagði. Þetta var góður tími og yfirleitt mjög góð mæting, en þetta var eini staðurinn á Akureyri þar sem haldin voru sextán ára böll. Það var snemma sumars 1972 á föstudegi að við hlóðum hljóðfærunum í bílinn síðla dags og lögðum af stað til Akureyrar. Lágheiðin var enn lokuð vegna snjóa og bleytu, svo við urðum að fara Öxnadalsheiðina. Allt gekk vel og okkur miðaði vel áfram þangað til í Hörgárdalnum þar sem bíllinn hægði ferðina smátt og smátt og stöðvaðist að lokum úti í kanti. “Pissustopp,” sagði einhver og allir þustu út nema Guðni. Hann sat hljóður undir stýri um stund og fór svo að reyna að starta en bíllinn tók ekki við sér. “Fyndinn,” sagði ég, fullviss um að hann væri eitthvað að stríða okkur. Það tók hljómsveitarmeðlimi smástund að átta sig á að hér var bláköld alvara á ferð. Bíllinn fór alls ekki í gang, sama hvað við gerðum og jafnvel þótt við opnuðum vélarhlífina og horfðum á vélbúnaðinn með ógnandi augnaráði. En við höfðum ekki staldrað lengi við þegar bjargvætt okkar bar að, akandi á rauðum Zetor. Við veifuðum honum og hann stoppaði. “Geturðu nokkuð dregið okkur til Akureyrar?” Við útskýrðum fyrir ökumanni Zetorsins tilgang ferðar okkar og hversu mikilvægt það væri að við kæmumst tímanlega á áfangastað. Þetta var ótrúlega auðsótt mál, við bundum bílinn aftan í traktorinn og svo var ekið af stað á 27 km. hraða. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar við renndum í hlaðið fyrir framan Allann og hópur ballgesta tók á móti okkur með fagnaðarlátum sem hreinlega aldrei ætlaði að linna. “Frá hvaða bæ eruð þið?” Þessari athugasemd var tekið fagnandi af hópnum. “Spilið þið sveitatónlist?” Gleðin byrjaði utan við dyrnar á Allanum í þetta skiptið, en þetta voru annars fínir krakkar sem hjálpuðu okkur með hljóðfærin inn á pall, fóru svo og keyptu sig inn á ballið því nú var það var óhætt þar sem hljómsveitin var mætt. Ég spurði ökumann Zetorsins hvað ég skuldaði honum fyrir “dráttinn” en hann leit á úrið og svo á mig. “Tólfhundruðog fimmtíu slétt” sagði hann eins og leigubílstjóri sem les á mælinn. Mér datt í hug hvort það væri algengt að hann bjargaði aðkomuhljómsveitum síðasta spölinn til Akureyrar og notaðist þá við sérstakan hljómsveitabílataxta. Ég greiddi uppsett gjald og þakkaði honum fyrir vel og lengi og horfði svo á eftir honum leggja í hann til baka á 27 km. hraða. Þegar Zetorinn var horfinn fyrir næsta horn birtist Dabbi vinur okkar. Hann hafði verið á Siglufirði fyrir nokkru síðan að vinna við að fleyta Rauðkutönkunum fram af hafnarbryggjunni ásamt bræðrum sínum og föður og hékk þá oft ásamt fleiri krökkum á æfingum hjá okkur í Sjallanum. Ég sagði honum frá vandræðum okkar og hann opnaði bílstjórahurðina renndi hendinni bak við svissinn, fann þar lausan vír og stakk honum í samband. “Startaðu nú” sagði hann og hló mikið. Ég settist upp í og startaði og viti menn, bíllinn hreinlega datt í gang og malaði blíðlega eins og vel vaninn heimilisköttur sem fær rjóma í skálina sína. Stórdansleikur í Dynheimum. Það var eina helgina þetta sama sumar að hljómsveitin var alveg verkefnalaus. Hvergi var hægt að komast inn til að spila og ég hringdi í hvern húsvörðinn á fætur öðrum en hvergi voru svörin eins og ég hefði viljað heyra þau. Á Ketilási voru Gautarnir að spila og þess vegna ekki góður grundvöllur fyrir balli í Ólafsfirði. Á Dalvík fékk ég þau svör að um helgina yrði haldið þar ættarmót af stærri gerðinni og væri gert ráð fyrir á annað hundrað manns í mat alla helgina auk þess sem salurinn myndi verða notaður að hluta sem svefnpokapláss. Í Freyvangi var verið að sýna leikrit, öll leiktjöld og munir voru á sviðinu og það væri allt of mikið mál að pakka því niður fyrir eitt ball auk þess sem það væri sýning á laugardagskvöldið. Í sveitinni inn af Akureyri er Laugaland og þegar ég talaði við húsvörðinn þar sagði hann mér að það ætti að lakka gólfið um helgina og því plani væri ekki hægt að breyta. Í Allanum hjá henni Ragnheiði vinkonu okkar var einhver ráðstefna og hún hélt að einhver harmónikuhljómsveit ætti að spila gömlu dansana á eftir. Það fór að verða fátt um fína drætti og ég gerði mér nú grein fyrir því að Ingimar Eydal yrði eins og venjulega í Sjallanum en þar fyrir utan var hvergi nokkurs staðar dansleikur á Eyjafjarðarsvæðinu Samsett mynd í Photoshop. ­ LRÓ

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.