Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Qupperneq 12
Siglfirðingablaðið12
Halló Akureyri, hér komum við
- aftan í dráttarvél.
Sumrin 1972 og 1973 spilaði
hljómsveitin Frum aðra hverja
helgi í Allanum á Akureyri eins og
áður sagði. Þetta var góður tími
og yfirleitt mjög góð mæting, en
þetta var eini staðurinn á Akureyri
þar sem haldin voru sextán ára
böll. Það var snemma sumars
1972 á föstudegi að við hlóðum
hljóðfærunum í bílinn síðla dags
og lögðum af stað til Akureyrar.
Lágheiðin var enn lokuð vegna
snjóa og bleytu, svo við urðum
að fara Öxnadalsheiðina. Allt
gekk vel og okkur miðaði vel
áfram þangað til í Hörgárdalnum
þar sem bíllinn hægði ferðina
smátt og smátt og stöðvaðist að
lokum úti í kanti. “Pissustopp,”
sagði einhver og allir þustu út
nema Guðni. Hann sat hljóður
undir stýri um stund og fór svo
að reyna að starta en bíllinn tók
ekki við sér. “Fyndinn,” sagði
ég, fullviss um að hann væri
eitthvað að stríða okkur. Það tók
hljómsveitarmeðlimi smástund
að átta sig á að hér var bláköld
alvara á ferð. Bíllinn fór alls ekki
í gang, sama hvað við gerðum
og jafnvel þótt við opnuðum
vélarhlífina og horfðum á
vélbúnaðinn með ógnandi
augnaráði. En við höfðum ekki
staldrað lengi við þegar bjargvætt
okkar bar að, akandi á rauðum
Zetor. Við veifuðum honum og
hann stoppaði. “Geturðu nokkuð
dregið okkur til Akureyrar?”
Við útskýrðum fyrir ökumanni
Zetorsins tilgang ferðar okkar
og hversu mikilvægt það væri
að við kæmumst tímanlega á
áfangastað. Þetta var ótrúlega
auðsótt mál, við bundum bílinn
aftan í traktorinn og svo var ekið
af stað á 27 km. hraða. Klukkan
var byrjuð að ganga eitt þegar við
renndum í hlaðið fyrir framan
Allann og hópur ballgesta tók á
móti okkur með fagnaðarlátum
sem hreinlega aldrei ætlaði að
linna. “Frá hvaða bæ eruð þið?”
Þessari athugasemd var tekið
fagnandi af hópnum. “Spilið þið
sveitatónlist?” Gleðin byrjaði
utan við dyrnar á Allanum í þetta
skiptið, en þetta voru annars
fínir krakkar sem hjálpuðu okkur
með hljóðfærin inn á pall, fóru
svo og keyptu sig inn á ballið því
nú var það var óhætt þar sem
hljómsveitin var mætt. Ég spurði
ökumann Zetorsins hvað ég
skuldaði honum fyrir “dráttinn”
en hann leit á úrið og svo á mig.
“Tólfhundruðog fimmtíu slétt”
sagði hann eins og leigubílstjóri
sem les á mælinn. Mér datt í hug
hvort það væri algengt að hann
bjargaði aðkomuhljómsveitum
síðasta spölinn til Akureyrar
og notaðist þá við sérstakan
hljómsveitabílataxta. Ég greiddi
uppsett gjald og þakkaði honum
fyrir vel og lengi og horfði svo
á eftir honum leggja í hann til
baka á 27 km. hraða. Þegar
Zetorinn var horfinn fyrir næsta
horn birtist Dabbi vinur okkar.
Hann hafði verið á Siglufirði fyrir
nokkru síðan að vinna við að
fleyta Rauðkutönkunum fram af
hafnarbryggjunni ásamt bræðrum
sínum og föður og hékk þá oft
ásamt fleiri krökkum á æfingum
hjá okkur í Sjallanum. Ég sagði
honum frá vandræðum okkar
og hann opnaði bílstjórahurðina
renndi hendinni bak við svissinn,
fann þar lausan vír og stakk
honum í samband. “Startaðu
nú” sagði hann og hló mikið. Ég
settist upp í og startaði og viti
menn, bíllinn hreinlega datt í
gang og malaði blíðlega eins og
vel vaninn heimilisköttur sem fær
rjóma í skálina sína.
Stórdansleikur í Dynheimum.
Það var eina helgina þetta sama
sumar að hljómsveitin var alveg
verkefnalaus. Hvergi var hægt
að komast inn til að spila og
ég hringdi í hvern húsvörðinn
á fætur öðrum en hvergi voru
svörin eins og ég hefði viljað
heyra þau. Á Ketilási voru
Gautarnir að spila og þess vegna
ekki góður grundvöllur fyrir
balli í Ólafsfirði. Á Dalvík fékk
ég þau svör að um helgina yrði
haldið þar ættarmót af stærri
gerðinni og væri gert ráð fyrir á
annað hundrað manns í mat alla
helgina auk þess sem salurinn
myndi verða notaður að hluta
sem svefnpokapláss. Í Freyvangi
var verið að sýna leikrit, öll
leiktjöld og munir voru á sviðinu
og það væri allt of mikið mál að
pakka því niður fyrir eitt ball
auk þess sem það væri sýning á
laugardagskvöldið. Í sveitinni
inn af Akureyri er Laugaland og
þegar ég talaði við húsvörðinn
þar sagði hann mér að það ætti
að lakka gólfið um helgina og því
plani væri ekki hægt að breyta.
Í Allanum hjá henni Ragnheiði
vinkonu okkar var einhver
ráðstefna og hún hélt að einhver
harmónikuhljómsveit ætti að
spila gömlu dansana á eftir. Það
fór að verða fátt um fína drætti
og ég gerði mér nú grein fyrir
því að Ingimar Eydal yrði eins og
venjulega í Sjallanum en þar fyrir
utan var hvergi nokkurs staðar
dansleikur á Eyjafjarðarsvæðinu
Samsett mynd í Photoshop. LRÓ