Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 13

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 13
Siglfirðingablaðið 13 sem var mjög sérstakt. Þetta yrði skrýtin helgi og við yrðum bara að nýta okkur ástandið. Grenivík! Ekki var það óskastaðurinn en ég hringdi nú samt þangað en fékk þá að vita að húsvörðurinn var einhvers staðar suður í Reykjavík og það var enginn sem gat sagt neitt hvað þá tekið ákvarðanir í fjarveru hans. Ég var alveg í öngum mínum, þetta var allt að fara úr böndunum og mér fannst ég vera í svipaðri aðstöðu og asninn sem eltir gulrótina alveg endalaust en mun aldrei ná henni. Ég sagði strákunum frá tilraunum mínum á þriðjudagskvöldi með hálfgerðum uppgjafartón. En Dynheimar? Einhver varpaði fram þessari óvæntu hugmynd. Jú það er til staður sem heitir Dynheimar og er rekinn sem félagsmiðstöð en ég hef aldrei heyrt að það væru böll þar. Það mátti svo sem hringja í Dynheima og það var gert strax morguninn eftir. Ég talaði við þann sem veitti húsinu forstöðu en hann taldi fráleitt að halda unglingaball þar, það hafði verið reynt nokkrum sinnum en mæting var sáralítil í hvert einasta skipti. Ég sagði honum þá að það væri hvergi dansleikur á gjörvöllu Eyjafjarðarsvæðinu og krakkarnir hefðu ekki í nein hús að venda og nálægasti dansleikur við Sjallann væri á Ketilási í Fljótum. Honum þótti þetta svolítið merkilegt en leist samt ekki vel á hugmyndina. Ég hélt samt áfram að reyna að sannfæra hann um að þetta gæti alveg gengið og að lokum gaf hann sig og ég sendi honum auglýsingaplaköt síðar þennan sama dag með flóabátnum Drang. Á laugardeginum vorum við mættir inn við Dynheima um áttaleytið. Við stilltum upp og spjölluðum við manninn sem sagði okkur að hann hefði þrátt fyrir að hafa gefið eftir, ekki hafa nokkra trú á kvöldinu. Þetta hefði bara einfaldlega aldrei virkað og hann sæi ekkert í spilunum sem segði að það myndi eitthvað frekar gerast núna. Unglingadansleikurinn hófst stundvíslega klukkan tíu og það var eitthvað af krökkum sem biðu við dyrnar og borguðu sig strax inn á þrjúhundruðkall og svo komu fleiri. Þegar aðeins var farið að líða á kvöldið sáum við að það var engu líkara en krakkarnir hreinlega flæddu inn um dyrnar og um miðnættið var nánast orðið ólíft í húsinu. Þar var svo troðfullt sem það gat frekast orðið og jafnvel rúmlega það. Að dansleik loknum þegar allir voru farnir og við búnir að pakka saman fór ég og hitti húsvörðinn. “Jæja, var þetta ekki bara í góðu lagi?” Hann horfði á mig og hristi höfuðið og sagðist ekki skilja neitt í þessu. Þá mundi ég að það hafði alveg gleymst að ræða kaup okkar og kjör. Ég spurði vandræðalega hvernig uppgjör færi fram á þessum bæ, en hann leit á mig aftur og endurtók að hann skildi ekki neitt í þessu öllu saman. Svo rétti hann mér þykkasta búnt af hundraðköllum sem ég hef nokkru sinni séð og sagði að þetta hefði komið inn. “Bærinn borgar alla reikninga hér svo það eru engir kostnaðarliðir, en þið hefðuð alveg mátt koma með einhvern til að selja miðana.” Svo hristi hann höfuðið aftur og ítrekaði það sem hann hafði þá þegar nokkrum sinnum sagt. Við talningu á hundraðkallabunkanum kom í ljós að þetta gæti alveg verið það ball sumarsins sem gæfi hvað mest í aðra hönd. Þegar við yfirgáfum svo staðinn, stóð hann í dyrunum og veifaði en horfði í leiðinni á okkur eins og við værum einhverjar geimverur. Svo hristi hann höfuðið einu sinni enn og gekk inn. Endurnýjunin og kúvendingin. Um haustið varð algjör kúvending hjá okkur því við hreinlega hentum hverju einasta lagi út af efnisskrá okkar og æfðum upp nýja frá grunni. Ástæðan var sú að við fórum á ball með gleði­ sveitinni Haukum með penna og blað að vopni og hreinlega skrifuðum niður hvert einasta lag sem þeir fluttu þarna um kvöldið og daginn eftir héldum við fund um málið þar sem var ákveðið að taka upp þessa nýju gleði og singalong poppstefnu. Þessi nýja lína þrælvirkaði og var salurinn í litla Sjallanum heima á Sigló stundum í svo miklu stuði að loftið og veggirnir hreinlega grétu sveittum tárum yfir öllu saman. Þessi sveifla var í gangi um land allt og við vildum taka þátt í henni og höfða í leiðinni til breiðari aldurshóps. Við steinhættum því að spila Jethro Tull, Deep Purple og þess háttar eðalrokk en þess í stað átti Anna í Hlíð upp á pallborðið hjá okkur ásamt Stínu sem var lítil stúlka í sveit, og í beinu framhaldi af öllu saman var svo sungið um hina rauðu sokka rabbarbarans. Ekki fannst okkur öllum þessi breyting vera til bóta en það gekk óneitanlega betur að selja sig. Þegar þarna var komið sögu segir Guðni Sveins okkur að hann muni hætta í bandinu fljótlega því hann og kærastan eigi von á erfingja, þau taki sambandið mjög alvarlega og það fari bara ekki saman að spila í hljómsveit og byggja upp fjölskyldu. Þetta þóttu okkur slæm tíðindi því Guðni var og er fyrirtaksdrengur í alla staði, þægilegur í umgengni, hreint ótrúlega metnaðarfullur og hörkuduglegur ef eitthvað þurfti að gera. Það kemur samt yfirleitt maður í manns stað og annar prýðispiltur fyllti skarðið. Það var Guðmundur Ragnarsson sem hafði verið að spila í ýmsum hljómsveitum undanfarin ár. Um vorið 1973 gerðum við aftur sams konar samning við Ragnheiði á Allanum og spiluðum á Akureyri

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.