Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 28

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 28
Siglfirðingablaðið28 Kristján er kaldur að toga á kvöldin er stjörnurnar loga í landi hann löngum sér unir við Liljur og alls konar blóm. Axel, hann keppir við kallinn af kröftum hann eys upp í dallinn ufsanum, keilu og karfa og kóðum af allskonar gerð. Valdi oft sigurljóð syngur á síðkvöldum þónokkuð slyngur. Af lífsgleði ljómar hann allur og leikur af hreinustu snilld. Ef rokkhljóð í rokknum ég heyri þá reddar han Jón minn frá Eyri, vinnunnar göfgi er gæddur, í geyminu liðtækur vel. Sigurgeir forðast allt flaustur, hann fíflaði Matthías austur, í bróðerni um borgir þeir fara og boða þar heilaga trú. Pétur við pelann sinn dundar, hann passar til síðustu stundar það leiður er ljóður á ráði en lífið er svona í dag. Birgir margt brallar um nætur, bjútifúl, kippó og sætur loftsamtöl læðast um síma, við látum svo útrætt um það. Sjonni í bræðslunni brasar brattur og eldklár í hasar elliglöp engin að ráði ef eygir hið veikara kyn. Nonni sem grautinn oss gefur glæsibrag fádæma hefur, hann meyjanna augna er yndi og enginn til frásagnar þar. Ljóð um Elliðamenn Þetta sendi blaðinu, Birgir Óskarsson, loftskeytamaður sem telur að vísurnar séu eftir Pétur Þorsteinsson Kiddi Rögg á dekki. Sigurjón. Valdi Rögg. Hjalti Björns.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.