Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2019, Page 29
Siglfirðingablaðið 29
Ef Óli hann á eitthvert færi
hann óðara nær sér í læri,
það hungrið að sjálfsögðu
seður því sæll nú í hvílu hann er.
Já, Elliði er dásemdar dallur,
á dekkinu stjórnar hann Hallur
piltum með prýði og sóma,
prúðmennskan einkennir hann.
Í skóginum galar oft gaukur,
á grindinni öskrar hann Haukur
„útbyrðis andskotans trollið og
ekkert að röfla með það“.
Í lestinni grið eru ei gefin
geysist þar Hjalti með Refinn,
Vídalíns postillu veifar,
verkstjórinn, það er víst hann.
Á ýtunum Muggur er mestur
og meyjunum finnst hann víst bestur,
í valsinum vangarnir mætast,
já, verklega gengur nú það.
Friðrik í ferlegu hraki
í fyrra var oft á skaki
uppskar þó ekkert að ráði
og einmana kúrir nú hér.
Drengirnir dragandi ýsur
þá dreymir um framliðnar skvísur
í geyminu villtir þeir vakna
á vaktina gengur það.
Gísli úr axlarlið gengur
við getum ei tafið hér lengur
ef lífi og limum vill halda
í lækni við verðum að ná.
Senn er vor saga á enda
úr siglingum skulum við lenda
öruggir allir með tölu.
Amen og halelúja.Hafþór.
Valdi og Buddi.
Hannes Boy.
Sigurgeir.