Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2019, Síða 29

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2019, Síða 29
Siglfirðingablaðið 29 Ef Óli hann á eitthvert færi hann óðara nær sér í læri, það hungrið að sjálfsögðu seður því sæll nú í hvílu hann er. Já, Elliði er dásemdar dallur, á dekkinu stjórnar hann Hallur piltum með prýði og sóma, prúðmennskan einkennir hann. Í skóginum galar oft gaukur, á grindinni öskrar hann Haukur „útbyrðis andskotans trollið og ekkert að röfla með það“. Í lestinni grið eru ei gefin geysist þar Hjalti með Refinn, Vídalíns postillu veifar, verkstjórinn, það er víst hann. Á ýtunum Muggur er mestur og meyjunum finnst hann víst bestur, í valsinum vangarnir mætast, já, verklega gengur nú það. Friðrik í ferlegu hraki í fyrra var oft á skaki uppskar þó ekkert að ráði og einmana kúrir nú hér. Drengirnir dragandi ýsur þá dreymir um framliðnar skvísur í geyminu villtir þeir vakna á vaktina gengur það. Gísli úr axlarlið gengur við getum ei tafið hér lengur ef lífi og limum vill halda í lækni við verðum að ná. Senn er vor saga á enda úr siglingum skulum við lenda öruggir allir með tölu. Amen og halelú­ja.Hafþór. Valdi og Buddi. Hannes Boy. Sigurgeir.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.