Fréttablaðið - 25.06.2022, Qupperneq 23
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 25. júní 2022
thordisg@frettabladid.is
Þótt liðin séu 45 ár síðan konungur
rokksins, Elvis Presley, kvaddi
jarðvistina, trekkir hann að nýja
og gamla aðdáendur í nýju kvik-
myndinni Elvis með leikaranum
Austin Butler í aðalhlutverki.
Elvis var harmdauði aðdáenda
um allan heim þegar hann lést
úr hjartaáfalli 16. ágúst 1977 og
margir tóku andlátsfréttinni sem
samsæri vegna þess að konungur-
inn hafi verið orðinn leiður á
frægðinni.
Elvis víða á kreiki
Nú þegar Elvis er kominn í bíó
spretta enn og aftur sögusagnir um
að rokkkóngurinn sé sprelllifandi.
Hann var reyndar varla kominn
í gröfina þegar vitni gaf sig fram
og sagðist hafa séð hann kaupa sér
farmiða til Argentínu á flugvellin-
um í Memphis, undir nafninu Jon
Burrows, sem Elvis notaði iðulega
á ferðalögum.
Í desember á dánarárinu sagðist
annað vitni hafa komið auga á
Elvis í hægindastól heima á setri
sínu, Graceland.
Elvis mætti víst líka á viðburð í
Graceland sumarið 2019 þar sem
hann sást skottast um á meðal
aðdáenda sinna og var tekið upp
myndband af manni í blárri skyrtu
og með hvítt alskegg, áður en hann
hvarf sjónum.
Sama ár náðist Elvis á mynd
í jarðarför síns besta vinar, DJ
George Klein, með Pricillu Presley,
fyrrum eiginkonu sinni.
Á Facebook eru grúppur þar
sem sönnunargögn um Elvis á lífi
birtast af og til. n
Elvis lifir
Austin Butler fer með hlutverk Elvis
Presley í Elvis. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Það er lítið mál að bregða á leik úti í náttúrunni ef fólk er í góðu formi, jafnvel þótt aldurinn færist yfir. OsteoStrong hjálpar að ná færni í jafnvægi.
mYnd/AÐsEnd
Óstöðvandi með OsteoStrong
Nýr lífsstíll getur verið flókinn og það getur tekið langan tíma að samræma hann því lífi
sem fólk lifir. OsteoStrong er kerfi sem hjálpar fólki að bæta líkamlegt atgervi hratt og
örugglega í stuttri heimsókn einu sinni í viku. Þannig verður breytingin einföld og getur
auðveldað aðrar ákvarðanir að betri heilsu. 2
B Ä S T A I T E S T
Bäst-i-Test 2022.s
e
BESTA
SÓLARVÖRNIN
7 ár
Í RÖÐ
Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni
og víðar | nánar á evy.is og celsus.is