Fréttablaðið - 25.06.2022, Side 26
Þetta eru ekki
beint uppskriftir,
meira svona slatti og
sletta.
Hrefna Laufey Ingólfsdóttir
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Örstutt frá Akureyri reka
hjónin Hrefna Laufey Ing-
ólfsdóttir og Árni Sigurðsson
húsasmíðameistari gisti-
heimilið Ása. Hrefna leggur
mikla ástríðu og natni í starf
sitt að taka á móti gestum og
er sérstaða hennar morgun-
verðurinn og heimalagaður
matur þar sem íslenskt hrá-
efni er í forgrunni.
Gistiheimilið Ásar er staðsett á
fallegum stað í Eyjafirðinum, um
það bil 10 kílómetra fjarlægð frá
Akureyri, þar sem mikil veður-
sæld ríkir og blómlegt gróðurfar.
Hrefna nýtur þess að taka á móti
gestum gistiheimilisins sem og
hópum í mat en hægt er að bóka
morgunmat á Ásum án þess að
vera í gistingu þar. Einnig er hægt
bóka hópa í mat, sem nýtur mikilla
vinsælda, og snæða í félagsskap
þeirra hjóna.
„Þá bjóðum við upp á ekta
íslenskan heimilismat sem erlenda
ferðamanninum finnst einstök
upplifun að njóta. Oftar en ekki
snæðum við gestgjafarnir með
þeim hópum sem koma og eru það
ómetanlega skemmtilegar sam-
verustundir,“ segir Hrefna.
Morgunmaturinn er sérstaða
Hrefnu og býður hún upp á heima-
bakað brauð, heimatilbúið múslí
ásamt heimagerðum sultum og
fleira góðgæti, eins og krúttlega
sæta bita og heimabakaðar kleinur.
„Hér líður mér best, eldhúsið er
minn staður og mér þykir skipta
miklu máli að taka vel á móti
gestum okkar,“ segir Hrefna og
bætir við að hún elski hreinlega
að vera í eldhúsinu að framreiða
heimagerðar kræsingar og dekka
upp fallegt morgunverðarborð.
„Við fáum hópa í mat frá
Bandaríkjunum. Þetta eru vel
skipulagðar ferðir með amerískri
ferðaskrifstofu. Hóparnir eru litlir
og fáum við mest átta manns í
einu. Þau stoppa hjá okkur í tvo
tíma og vilja fræðast um alls konar
og segja okkur frá sér. Þetta eru
mjög skemmtilegir hópar og við
höfum mjög gaman af þessu. Við
tökum á móti nokkrum hópum á
vorin og nokkrum á haustin. Við
höfum yfirleitt boðið þeim upp á
þorskhnakka, ofnbakaðar kart-
öflur, ferskt salat, mangósósu og
heimabakað brauð. Það slær ávallt
í gegn og þeim sem koma finnst
það mikil matarupplifun að koma
og fá íslenskan heimilismat,“ segir
Hrefna.
Gistiheimilið Ásar er einstaklega
huggulegt og rómantískt en þegar
börn þeirra hjóna fluttu að heiman
Syndsamlega ljúfir þorskhnakkar sem steinliggja
Hrefna Laufey
Ingólfsdóttir
og eiginmaður
hennar, Árni
Sigurðsson, eiga
og reka gisti
heimilið Ása
í Eyjafjarðar
sveit þar sem
rómantík og
dulúð svífur yfir.
MYNDIR/AÐSENDAR
Heimalagaði
morgunverður
inn er sérstaða
Hrefnu og
fangar morgun
verðarborðið
auga og munn
enda mikill
menntaður
lagður í það.
breyttu hjónin heimili sínu í gisti-
heimili, enda hafði það verður
draumur Hrefnu í mörg ár að fara
í ferðaþjónustuna og bjóða upp á
persónulega gistingu og þjónustu.
Hrefna er kennaramenntuð og
hefur í mörg ár starfað sem slíkur í
Hrafnagili en nú á ferðaþjónustan
hug hennar allan. Það sést að
Hrefna sinnir gistiheimilinu af
mikilli ástríðu og natni, hjá henni
verða öll smáatriði að ævintýra-
legri upplifun. Hún leggur upp úr
því að hafa gistinguna heimilislega
án þess að vera með of mikið af
munum.
Á gistiheimilinu eru fjögur her-
bergi, með stílhreinu og róman-
tísku ívafi. Fallega uppábúið rúm,
þar sem hugsað er fyrir hverju
smáatriði og sloppar og inniskór
fylgja öllum herbergjum. Á gisti-
heimilinu er pallur með heitum
potti á besta stað þar sem útsýnið
skartar sínu fegursta yfir Eyjafjörð-
inn og fjallasýnin er stórbrotin.
„Ég ætla að gefa lesendum upp-
skriftina að þorskhnökkunum og
mangósósunni en þetta er réttur
sem við bjóðum gestum okkar
gjarnan upp á. Ég er búin að senda
þessar uppskriftir út um allan
heim. Þetta eru reyndar ekki beint
uppskriftir, meira svona slatti og
sletta.“ n
Hvítlauks- og
sítrónumaríneraðir
þorskhnakkar
1 kg þorskhnakkar
1 dl ólífuolía
Safi og rifinn börkur af einni sítr
ónu
23 hvítlauksrif
Fersk steinselja, söxuð
Best á fiskinnkrydd
Olía, sítrónusafi og börkur, hvít-
laukur, krydd og steinselja hrært
saman. Hnakkarnir skornir í bita
og lagðir í löginn.
Hrært saman. Láta þetta liggja í
kæli í nokkra klukkutíma. Sett í
eldfast mót og sett inn í ofn á 190
°C í 13 mínútur.
Mangósósa
1 dós sýrður rjómi
1 dós sýrður rjómi með lauk og
graslauk
2 hvítlauksrif
2–3 msk. mangó chutney
2 tsk. sætt sinnep
Allt hrært saman og passar mjög
vel með fiskinum, kjúklingi, salati,
bara flestöllu. Þessi sósa slær alltaf
í gegn.
Herbergin eru
stílhrein þar
sem rómantíkin
svífur yfir.
Hvítlauks og sítrónumaríneraður
þorskhnakki með mangósósu nýtur
mikilla vinsælda hjá ferðamönnum.
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
4 kynningarblað A L LT 25. júní 2022 LAUGARDAGUR