Fréttablaðið - 25.06.2022, Síða 31
Sveitarstjóri Kjósarhrepps
Kjósarhreppur óskar eftir að ráða framsækinn einstakling í starf sveitarstjóra. Sveitarfélagið er vel rekið
og innan þess eru mikil tækifæri. Leitað er að aðila sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta
framtíðarsýn þess og stuðla að faglegri stjórnsýslu.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að
sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
• Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á
framkvæmd ákvarðana hreppsnefndar
• Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu
• Náið samstarf við hreppsnefnd, undirbúningur og
upplýsingagjöf á fundum hreppsnefndar
• Hagsmunagæsla og samskipti við íbúa, stofnanir,
samtök og fyrirtæki
Helstu verkefni og ábyrgð:
Kjósarhreppur er dreifbýlishreppur í nágrenni við Reykjavík. Íbúar þess eru um 260 og er víða skipulögð sumarhúsa-
byggð. Kjósin þykir státa af fallegu landslagi og náttúrufegurð sem er víða ósnortin en að öðru leyti er hún skipulagt
landbúnaðarsvæði. Þar fyrirfinnst ein elsta kirkja landsins og einnig hið þekkta félagsheimili Ungmennafélagsins
Drengs, Félagsgarður. Helstu upplýsingar um Kjósarhrepp má finna á www.kjos.is.
• Farsæl reynsla af stjórnun, mannauðsmálum,
stefnumótun og rekstri
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum
sveitarfélags er æskileg
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
• Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Menntunar- og hæfniskröfur:
HEILSA & HAMINGJA
VEGNA OPNUNAR
Á NÝJU BÍLAAPÓTEKI
VANTAR OKKUR
LYFJAFRÆÐINGA
Áhugasamir sendi ferilskrá og umsókn á
svanur@lyfjaval.is.
Lyfjaval opnar bílaapótek í Reykjanesbæ
í haust og vantar lyfjafræðinga í fullt starf
og hlutastarf.
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 25. júní 2022