Fréttablaðið - 25.06.2022, Qupperneq 32
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
• Sérkennslustjóri
Íþróttamiðstöðvar Garðabæjar
• Störf í Ásgarði
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
Starf sérfræðings í málefnum
barna laust til umsóknar
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða sérfræðing í mál-
efnum barna
Sérfræðingurinn mun starfa með öðrum sérfræðingum sam-
bandsins að fjölbreyttum verkefnum á sviði fræðslumála og
félagsþjónustu. Helstu verkefni tengjast samþættingu farsældar-
þjónustu í þágu barna, sem m.a. snýr að leik- og grunnskólastarfi,
frístundaþjónustu og annarri þjónustu við börn. Mikil áhersla er á
teymisvinnu.
Gerð er krafa um háskólapróf sem nýtist í starfi auk víðtækrar
reynslu og þekkingar á þjónustu við börn, ásamt áhuga á mál-
efnum sveitarfélaga. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
er æskileg. Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í fram-
setningu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu öðru
Norðurlandamáli og ensku er æskileg.
Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði, sjálf-
stæði, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, vilja til
teymisvinnu, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipu-
lagshæfileika. Jafnræðis skal gætt í hvívetna við ráðningu og
leitast er við að starfsmannahópurinn endurspegli fjölbreytileika
samfélagsins.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf í október.
Óstaðbundið starf
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja full-
nægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á
skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Umsóknarfrestur til 10. júlí
Ferilskrá og kynningarbréf, merkt „Umsókn um starf sérfræðings
í málefnum barna“, berist eigi síðar en sunnudaginn 10. júlí nk.
til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf
8100, 128 Reykjavík, eða netfangið: samband@samband.is.
Nánari upplýsingar veita Guðjón Bragason, sviðsstjóri lög-
fræði- og velferðarsviðs, netfang: gudjon.bragason@samband.
is, og Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs,
netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem
býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og
skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband
íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur
ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er
upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á.
Umsækjendum er bent á að frekari upplýsingar um Samband
íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðunni, www.samband.is.
Þar er einnig að finna starfslýsingu fyrir starfið og mannauðs-
stefnu sambandsins.
Móttökuritari
Fullt starf Móttaka
50-70% starf í móttöku á sjúkraþjálfunarstofu í Kópavogi.
Starfið er laust frá 1. júlí eða eftir samkomulagi.
Sjá nánar á Job
Staða íslensks dómara við
Mannréttindadómstól Evrópu
Kjörtímabil íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu
rennur út hinn 31. október 2022. Evrópuráðið hefur því farið þess
á leit að tilnefnd verði af Íslands hálfu þrjú dómaraefni en skv. 22.
gr. mannréttindasáttmálans, sbr. lög nr. 62/1994, eru dómarar við
Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með
þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir.
Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans
er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á
ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við
hann. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja.
Um hæfisskilyrði dómara við Mannréttindadómstólinn er fjallað í 21.
gr. mannréttindasáttmálans og kemur þar fram að dómarar skuli vera
grandvarir og verði annaðhvort að fullnægja kröfum um hæfi til að
gegna æðri dómarastörfum eða vera lögvísir svo orð fari af. Þeir skuli
skipa sæti sitt sem einstaklingar og meðan kjörtímabil þeirra varir skuli
þeir ekki taka þátt í neinni starfsemi sem sé ósamrýmanleg sjálfstæði
þeirra, hlutleysi eða kröfum sem gerðar eru til fulls dómarastarfs.
Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skulu umsækjendur vera yngri en 65 ára
daginn sem þingið biður um lista með þremur mönnum, sjá nánar í 22.
gr. Sú dagsetning er 25. ágúst 2022.
Sérstök athygli er vakin á því að dómstóllinn gerir þá kröfu að dómari
hafi gott vald bæði skriflega og munnlega á öðru tveggja opinberra
tungumála réttarins, þ. e. ensku og frönsku, og nokkurn skilning á hinu.
Dómstóllinn leggur áherslu á að á listanum séu ekki aðeins dómaraefni
af einu kyni.
Hér með gefst þeim sem áhuga hafa á að vera tilnefnd af Íslands
hálfu sem dómaraefni við mannréttindadómstólinn kostur á að senda
forsætisráðuneytinu umsókn sína eigi síðar en 8. ágúst 2022. Umsóknir
og fylgigögn óskast send til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, 101 Reykjavík og á netfangið for@for.is.
Er þess óskað að umsóknir berist á íslensku, ensku og jafnframt á
frönsku ef unnt er á sérstökum umsóknareyðublöðum Evrópuráðsins.
Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að
umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti
við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
tilnefningu liggur fyrir.
Fimm manna hæfnisnefnd mun meta umsóknir sem berast. Mun
hæfnisnefndin skila umsögn um umsækjendur og gera rökstudda
tillögu um hver þeirra teljist hæfust til að vera tilnefnd. Tilnefningar
stjórnvalda verða byggðar á þessari tillögu.
Frekari upplýsingar veitir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri,
í síma 545 8400, netfang: steinunn.valdis.oskarsdottir@for.is.
Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/
auglysingar/auglysing/2022/06/22/
Stada-islensks-domara-vid-Mannrettindadomstol-Evropu/
Forsætisráðuneytinu,
22. júní 2022
intellecta.is
RÁÐNINGAR