Fréttablaðið - 25.06.2022, Síða 66
Ég held að það verði
frábær upplifun að fara
í Hyde Park að upplifa
alvöru rokktónleika.
NÚ AÐEINS Í APPI
OG Á DOMINOS.IS
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI, EF ÞÚ SÆKIR
Bresk-íslenska hljómsveitin
Dream Wife er ein níu ein-
staklinga og hljómsveita
sem hita upp fyrir Rolling
Stones í Hyde Park í kvöld.
Rakel Leifsdóttir er söngkona
hljómsveitarinnar og segir í
samtali við Fréttablaðið að
hún sé spennt fyrir kvöldinu
og þakklát tækifærinu.
lovisa@frettabladid.is
„Við erum með bókunarskrif-
stofu sem bókaði þetta og það er
oft þannig í tónlistarheiminum að
svona hlutir gerast með stuttum
fyrirvara,“ segir Rakel aðspurð um
það hvernig það kom til að hljóm-
sveitin var bókuð til að hita upp
fyrir stórsveitina.
„Það er svo oft þegar kemur að
upphitunartúrum að það er frekar
lítill fyrirvari. En þetta er skemmti-
legt og þessi tónlistarbransi er
algjört lotterí.“
Dream Wife spilar að sögn Rakel-
ar listaháskólapönk, bland af rokki,
poppi og pönki. „Við syngjum mikið
um jafnréttismál og ég er spennt að
sjá hvernig aðdáendur Stones fíla
okkur,“ segir hún.
Tónleikarnir eru eins og fyrr segir
í Hyde Park og eru hluti af Evrópu-
túr hljómsveitarinnar, en áætlað
er að þeir spili aftur í Hyde Park
næsta sunnudag og svo halda þeir
áfram um
Evrópu til
S v í þ j ó ð a r ,
Þ ý s k a l a n d s ,
Frakklands, Belg-
íu og fleiri landa.
Með þeim í upp-
hitun eru tónlistar-
konan Phoebe Brid-
gers, sem Rakel segir að
hafi lengi verið í uppáhaldi
hjá henni, og svo hljómsveitin
War on Drugs.
„Þetta er allt eiginlega
einhvers konar rokk. Ég er
svakalega spennt að hlusta á
hina. Þetta er mikill heiður. Við
fáum að spila í 40 mínútur, sem er
tíu mínútum meira en vanalega í
upphitun,“ segir Rakel.
Draumur að hita upp
fyrir Rolling Stones
Með Rakel í hljómsveitinni eru þær Alice Go og Bella Podpadec. Mynd/Sarah PiantoSSi
Rakel segir að
giggið hafi verið
bókað með
stuttum fyrir-
vara, eins og
oft er.
Mynd/neelaM
Khan
Rollingarnir mæta vel upphituðum áhorfendum í London. Fréttablaðið/Getty
Hún segist auk þess spennt að fá
að upplifa hátíðarhöld í Hyde Park
en þangað hefur hún aðeins farið í
lautarferðir en hún hefur nú verið
búsett í London í nokkur ár.
„En ég er eiginlega spenntust að
sjá aðdáendur. Það er
verið að fagna því að
þeir hafa verið starf-
andi í 60 ár og það
verður gaman að sjá
hvernig fólk verður
á tónleikunum að
fagna því. Þetta er
gríðarlega merkileg
tala,“ segir Rakel
og að til saman-
b u r ð a r h a f i
h ljóm s veit i n
einu sinni hitað upp fyrir Liam Gal-
lagher.
„Það var mjög skemmtilegt en
ég held að ég hafi aðeins séð svona
þrjár konur í áhorfendaskaranum,
og karlarnir litu eiginlega allir út
eins og Liam Gallagher,“ segir Rakel
og hlær.
Hún segist vita til þess að margir
Íslendingar verða á tónleikunum en
í London er stórt samfélag Íslend-
inga, auk þess sem borgin hefur um
árabil verið einn vinsælasti áfanga-
staður Íslendinga.
„Mamma og pabbi ætla að koma
frá Íslandi og ég held að það verði
frábær upplifun að fara í Hyde Park
að upplifa alvöru rokktónleika.“
Dream Wife er ekki eina íslenska
hljómsveitin sem hefur hitað upp
fyrir Rolling Stones því það hefur
Kaleo gert nokkrum sinnum og
mun gera aftur í júlí. Rakel segist
glöð að vera komin í þann skemmti-
lega hóp Íslendinga sem getur sett
það á afreksskrána. n
Lífið FRéttablaðið 25. júní 2022 LAUGARDAGUR