Fréttablaðið - 02.07.2022, Side 8

Fréttablaðið - 02.07.2022, Side 8
Þeir sem nota þessi kerfi ættu kannski að vera með hámark á verði. Skarphéðinn Guðmunds- son ferða- málastjóri 87.755 krónur ein nótt. Dæmi um gistingu 7.–10. júlí samkvæmt bókunarvél miðað við tvo fullorðna í superior herbergi með svölum – herbergisstærð: 21 fer- metri – morgunverður innifalinn. Auglýsing um próf til endurskoðunarstarfa Með vísan til laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun, er fyrirhugað að halda próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa í október 2022 sem hér segir: Próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum: Fimmtudaginn 6. október. Prófið hefst kl. 9 og stendur til kl. 14. Próf í endurskoðun og reikningsskilum: Fyrri hluti mánudaginn 10. október. Seinni hluti fimmtudaginn 13. október. Prófin hefjast kl. 9 hvorn dag og standa til kl. 16. Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 595/2020 um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa. Próftökugjald er kr. 360.000.- fyrir próf í endurskoðun og reikningsskilum og kr. 120.000.- fyrir próf í skattalögum, félagarétti, kostnaðarbókhaldi og stjórnendareikningsskilum. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir hvort próf sem er 20% af fjárhæð prófgjalds. Væntanlegir prófmenn skulu skila umsóknum fyrir mánudaginn 8. ágúst nk. til prófnefndar. Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Jóni Arnari Baldurs, Urðarbraut 9, 200 Kópavogi eða í tölvupósti á jon.a.baldurs@gmail.com. Tilkynningu skulu fylgja nafn prófmanns og kennitala, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé skilyrðum 5. og 7. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 94/2019. Próftakar fá þá senda reikninga fyrir prófgjaldinu og skal allt prófgjaldið vera greitt fyrir 15. september nk. Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum fyrir lok ágúst nk. Reykjavík, 2. júlí 2022. Prófnefnd löggiltra endurskoðenda Hótelgeirinn gerir ekki ráð fyrir Íslendingum í gistingu í sumar. Verðið komið út yfir allt velsæmi að sögn ferða- langs. Kerfi hækkar verð síðustu lausu herbergjanna ólíkt borðum á veitingahúsi. Íslenskur ferðalangur, Þorsteinn Gunnarsson íbúi á Selfossi, kann- aði verð á gistingu á Keahótelinu á Akureyri 7.–10. júlí næstkomandi. Hann komst að því að verðið á hót- elinu fyrir þrjár nætur væri rúmar 263 þúsund krónur. Nóttin fyrir tvo í rúmlega 21 fer- metra herbergi hefði kostað Þor- stein 87.755 krónur með morgun- verði. Þorsteinn hætti við og bókaði þess í stað ferð til Tenerife. „Ég er fullkomlega hneykslaður, þetta eru klikkuð verð og komin út yfir allt velsæmi,“ segir Þorsteinn. Hann segir að venjulegt fólk hírist ekki á hóteli í þrjá daga fyrir 300.000 kall. „Ferðaþjónustan virðist ekki hugsuð fyrir okkur,“ segir Þor- steinn sem finnst það synd að Ísland sé ekki fyrir Íslendinga í þessum efnum. Siðferðislegt álitaefni Eftir því sem færri herbergi eru laus hækkar verðið samkvæmt venjum sem víða hafa skapast. Ef aðeins tvö til þrjú herbergi eru laus getur verðið farið upp í rjáfur samanber dæmið frá Akureyri. Siðferðislegar spurningar kvikna í þessum efnum að mati Þorsteins. Íslendingar hafa ekki ráð á gistingu í eigin landi Verð á hótel- gistingu er í hæstu hæðum á Íslandi. Ferða- maður sem hugðist gista þrjár nætur á Akureyri hefði þurft að greiða hátt í 300.000 krónur fyrir her- legheitin. FRÉTTABLAÐIÐ/ AUÐUNN Ég er fullkomlega hneykslaður. Þetta eru klikkuð verð og komin út yfir allt velsæmi. Þorsteinn Gunnarsson, ferðalangur á Selfossi Skarphéðinn Guðmundsson. Skógafoss. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fréttablaðið fann út með bókun- arforriti að ein strípuð nótt kostar tvöfalt meira, eða víða um fimmtíu þúsund krónur, á gististöðum sem áður buðu upp á brunatilboð þegar heimsfaraldurinn lamaði ferðalög landa á milli. Ekki alls fyrir löngu voru seld herbergi, kvöldverður og morgun- verður fyrir tvo í einum pakka á alls 25.000 krónur. Skammt er því stórra högga á milli. Þá segja hótelstarfs- menn að aldrei hafi skipt meira máli en nú í hvaða mánuði gisting er bókuð. Verðmunur milli heitustu þriggja sumarmánaðanna og jaðar- tíma getur verið 150 prósent, jafnvel meiri. Snorri Pétur Eggertsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðs- sviðs Keahótelanna, staðfestir að verð herbergis geti rokið svona upp ef um síðustu herbergin sé að ræða. Hann véfengir ekki tölur Þorsteins frá Akureyri. Snorri vísar því á bug að græðgi sé orsök verðlagningarinnar. Hót- elverð hafi hækkað um 50 prósent síðan í fyrrasumar. Heimsfaraldur- inn, framboð og eftirspurn skýri þessar breytingar. „Bjargræðistíminn okkar er þrír mánuðir. Við reynum að fá sem mestar tekjur frá útlendingunum og stílum nánast eingöngu á þá.“ Snorri segir að Íslendingar muni varla sjást á innlendum hótelum í sumar. „Þeim finnist verðið of hátt,“ segir Snorri. Þetta er mikil breyting, því árið 2020 voru Íslendingar stærsti kúnnahópurinn innanlands .„Núna eru það Ameríkanar sem búa til mestar tekjurnar.“ Síðustu 12 mánuði hefur gengi krónunnar gagnvart Bandaríkja- dal lækkað um sjö prósent. Fyrir einn dollar fást nú 132,5 krónur en fyrir réttu ári fengust 123,8 krónur. Verð á alþjóðlegum bókunar- síðum er í erlendri mynt. Íslensk hótel fá því sjö prósent hærra verð í dag í íslenskum krónum frá banda- rískum ferðamönnum miðað við óbreytt verð í krónum í fyrra. Skar phéðinn Guðmundsson ferðamálastjóri tekur undir með Þorsteini Gunnarssyni að það sé miður ef Íslendingar hafi ekki efni á að ferðast um eigið land í sumar – ekki þá nema í húsbíl eða tjaldi. Skarphéðinn skýrir verðhækkunina auk fyrrnefndra þátta með þróun tekjustýringar. „Það er auðveldara en var fyrir fyrirtækin að hækka verð. En þeir sem nota þessi kerfi ættu kannski að vera með hámark á verði,“ segir Skarphéðinn. Spurður um skoðanir erlendra gesta á verði gistingar nú um stundir innanlands segir ferðamálastjóri að viðhorf ferðamanna til þjónustu hér á landi séu linnulaust rannsökuð. „Það kemur ekki á óvart að ferða- menn telja þjónustu mjög dýra hér.“ Skarphéðinn á þó ekki von á að sumarverðin séu orðin ósjálf bær í þeim skilningi að orðspor af okri leiði til þess að útlendingar hætti að sækja Ísland heim í massavís. „Hins vegar eru blikur á lofti varð- andi haustið,“ segir Skarphéðinn. Meðal annarra þátta nefnir hann stríðið í Úkraínu, erfitt efnahags- ástand og óvissu vegna Covid. „Það er erfiðara en ella að spá fyrir um haustið, því bókunarfyrir- varinn hefur styst.“ n Björn Þorláksson bth @frettabladid.is 8 Fréttir 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.