Fréttablaðið - 02.07.2022, Síða 12
Árið
1992
er eitt
stærsta
ár í sögu
knatt-
spyrn-
unnar.
Hjörvar
Hafliðason
Marseille
er enn
eina
franska
liðið sem
hefur
unnið
Meistara-
deild
Evrópu.
Enska úrvalsdeildin, Meist-
aradeildin, markmenn máttu
ekki lengur taka boltann upp
eftir sendingar til baka, þrjú
stig fyrir sigur á stórmóti
og ýmislegt annað. Sumir
segja að fótboltinn hafi jafn-
vel verið fundinn upp fyrir
þrjátíu árum. Hann allavega
gjörbreyttist.
FÓTBOLTI Þrjátíu ár eru síðan Danir
urðu Evrópumeistarar. Sé horft á
úrslitaleikinn má sjá hvernig Danir
nýttu sér til hins ítrasta að mark-
menn máttu taka boltann upp eftir
sendingu til baka. Það er í raun kvöl
og pína að horfa á leikinn því Peter
Schmeichel nær að tefja leikinn út
í hið óendanlega með því að taka
við sendingum félaga sinna og bíða
eftir að Jürgen Klinsmann eða Rudi
Völler pressi á hann.
Reg lu nni va r
svo brey tt
sem betur
fer og meiri
hraði tók
að einkenna
fótboltann.
Á lok a sek-
úndum úrslita-
l e i k s i n s g a f
Stefan Reuter
til baka á Bodo
Illgner sem tók
boltann upp og
þrumaði fram völl-
inn. Þá var flautað til
leiksloka. Þetta var
því síðasta sending
varnarmanns til
markmanns á stór-
móti.
A llt var bet ra
í gamla daga, er
stundum sagt, en
HM 1990 og EM
1992 eru allt annað
en skemmtileg mót
vegna þess að mark-
menn máttu taka bolt-
ann upp. Þessi reglu-
breyting er ein sú allra
besta sem hefur komið
fyrir fótboltann.
„Það hefur engin ein
regla haft jafn mikil
áhrif á leikinn eins og
þessi,“ segir Hjörvar
Allt annar leikur
Peter Schmeich
el, hetja Dana
frá EM 1992,
fagnar með liðs
félögum sínum
en Danir nýttu
regluna um
að það mætti
senda til baka
á markmann til
hins ítrasta á
mótinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Brian McClair, Paul Parker og Ryan Giggs fagna fyrsta titlinum í nýstofnaðri
úrvalsdeild á Englandi.
Markvörður
Marseille, Fab
ien Barthez,
með Meistara
deildar
bikarinn en
Marseille er
eina franska
liðið sem
hefur unnið
Meistara
deild Evrópu
og gerði það
á fyrsta ári
keppninnar
með nýju
fyrirkomu
lagi.
Bruce Grobbel
aar átti erfitt
að venjast nýju
reglunni um að
geta ekki tekið
boltann upp
með höndum
eftir sendingar
samherja sinna.
FRÉTTALBAÐIÐ/
GETTY
Haf liðason knattspyrnusérfræð-
ingur.
Allir þurftu að læra og það hratt.
Sumir ætluðu þó að sleppa auðveld-
lega. Á undirbúningstímabilinu
æfðu liðsmenn Nottingham Forest
að gefa á Brian Law sem vippaði
boltanum upp og skallaði til baka
á markvörðinn Mark Crossley.
FIFA gaf út yfirlýsingu í kjölfarið og
hótaði liðum sektum ef þau væru
að reyna að komast fram hjá nýju
reglunni.
Samfélagsskjöldurinn 1992, milli
Leeds og Liverpool, var og er enn
stórkostleg skemmtun því Bruce
Grobbelaar og John Lukic stóðu
milli stanganna hjá liðunum. Ekki
kannski frægustu menn í heimi
fyrir fótafimi en frábærir mark-
menn.
Í fyrsta sinn sem Lukic þrumaði
boltanum frá eftir sendingu til baka
sagði hinn goðsagnakenndi lýsir,
Andy Gray, að reglubreytingin væri
þvæla enda gerðu markmennirnir
varla annað en að þruma í áhorf-
endur eftir sendingu til baka.
Fyrstu mánuðirnir af hinum
nýja enska bolta voru stórkostleg
skemmtun enda voru varnarmenn
og markmenn í miklu veseni með
að aðlagast. Vellirnir voru enn þá
mikil drullusvöð og þetta leit ekk-
ert vel út.
FIFA henti í yfirlýsingu og sagði
að það væri engin færni í því að
standa milli stanganna og halda á
boltanum. Það væri ekki fótbolti.
Reglunum yrði ekki breytt til baka.
Draumurinn frá ’87 rættist
Fótboltinn fyrir 30 árum var allt
öðruvísi og á ákveðnum tímamót-
um. Englendingar ákváðu að stofna
Úrvalsdeildina sem breytti lands-
laginu svo eftir var tekið. Fram að
því hafði enski boltinn verið aðhlát-
ursefni fyrir vellina sína, ofbeldi og
hegðun áhorfenda og litla peninga.
Liðin gátu farið að semja sjálf um
sjónvarpspeninga og söguna þekkja
trúlega flestir.
Ensk lið eru nú þau bestu í heimi,
með mestu peningana, mesta sjón-
varpsáhorf og nánast alla bestu leik-
menn heims í sínum röðum.
Þetta ár, 1992, var líka kynnt til
sögunnar Meistaradeildin svona
nánast eins og við þekkjum hana
í dag. Evrópukeppni Meistaraliða
fór á hilluna og draumur Lennart
Johansson, forseta UEFA, varð að
veruleika. Hann hafði séð þegar
Real Madrid vann Diego Maradona
og hans menn í Napoli 1987 í fyrstu
umferð en við það hrundi áhorf á
keppnina á Ítalíu, sem þá var einn
stærsti sjónvarpsmarkaðurinn.
Hugmyndir kviknuðu sem urðu
loks að veruleika 1992.
Draumalið Johan Cruyff hjá
Barcelona vann síðasta leikinn sem
hét úrslitaleikur Evrópukeppni
Meistaraliða. Þá máttu aðeins þrír
útlendingar vera í liðunum. Barca
hafði Ronald Koeman sem skoraði
sigurmarkið, Michael Laudrup og
Hristo Stoichkov. Það breyttist með
Bosman-reglunni árið 1995.
Þriggja stiga reglan var kynnt
til leiks árið 1981 en téð EM árið
1992 var síðasta stórmótið til að
notast við tveggja stiga regluna.
Danir fóru áfram með þrjú stig.
Þeir byrjuðu á jafntef li við Eng-
lendinga, töpuðu f yrir Svíum
en unnu svo Frakka og komust í
undanúrslitin. Þar unnu þeir Hol-
lendinga í vítaspyrnukeppni og
Þjóðverja í úrslitaleik. Þegar HM
fór fram í Bandaríkjunum tveimur
árum síðar var þriggja stiga reglan
komin í gagnið.
„Árið 1992 er eitt stærsta ár í sögu
knattspyrnunnar. Þetta er stór-
merkilegt ár bæði með stofnun
ensku úrvalsdeildarinnar, Meistara-
deildarinnar og þessari reglubreyt-
ingu,“ segir Hjörvar. n
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas
@frettabladid.is
12 Íþróttir 2. júlí 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR