Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.07.2022, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 02.07.2022, Qupperneq 16
Frekar skyldu börnin læra að tala með rödd sinni og lesa af vörum. Ríkis- stjórnin er furðu- leg blanda aftur- halds- og vinstri- stjórnar. Nýlega var opnaður á Sel- tjarnarnesi nýr veitinga- staður, Ráðagerði, í sögufrægu húsi í sveitarfélaginu sem ber sama nafn. Að veitingastaðn- um standa þeir Gísli Björns- son, Jón Ágúst Hreinsson og Viktor Már Kristjánsson. lovisa@frettabladid.is „Ég og Nonni höfum tengingu við Nesið. Konan mín er alin upp á Bollagörðum og öll tengdafjöl- skylda konu Nonna tengist Nesinu og býr annað hvort í 170 eða 107 í Vesturbænum. Þetta er auðvitað allt samgróið,“ segir Gísli og bætir við: „Þetta hefur gengið rosalega vel, ég segi ekki eins og í sögu, en frá því að við opnuðum hafa margir komið og ég held að allir séu ánægðir með að húsið sé búið að fá líf aftur og með þjónustuna. Það er fyrir öllu.“ Lóðin á sér langa sögu, allt til árs- ins 1703, en húsið sjálft var byggt á árunum 1880 til 1885. Húsið er eitt vestasta hús bæjarins. Á vef Seltjarnarnesbæjar kemur fram að margir ábúendur hafi verið í Ráða- gerði frá upphafi en árið 1997 var húsið keypt og endurgert í uppruna- legri mynd. Bærinn keypti það svo í byrjun árs 2018 og setti það á sölu árið 2020. Þeir Gísli, Jón Ágúst og Viktor Már gerðu kauptilboð í húsið það ár og fengu það svo afhent í júlí árið 2021. Settu eldhúsið í bílskúrinn Gísli segir að eitt hafi leitt af öðru og þeir endað á því að taka allt húsið í gegn. Hann segir að margt hafi verið búið að gera þegar fyrri eigandi gerði það upp og þeir hafi þannig að einhverju leyti verið að klára þá vinnu. Vegna þess að húsið er friðað ákváðu þeir að gera eldhúsið upp í gamla bílskúrnum. „Það var gert með tilliti til húss- ins sjálfs. Það hefði verið föndur að koma því fyrir þar inni,“ segir Gísli en að vegna þess hafi þeir þurft að smíða tengingu á milli húsanna. Leituðu til fyrri eigenda Gísli segir að eftir að þeir keyptu húsið hafi þeir grafið upp sögu þess og endað á því að hafa samband við fyrri eigendur til að vita sögu þess. „Það var svo þannig að við vorum oft að heyra sögur af þessu húsi frá birgjum úti í bæ og við skildum ekki hvernig stóð á þessu. Við vorum komnir á það að þetta hefði verið 20 manna fjölskylda en svo kom í ljós að Anna og Kristinn, sem áttu húsið, tóku reglulega að sér börn annarra,“ segir Gísli og annar fyrri eigandi, Guðríður Kristinsdóttir, bauð reglulega ungu fólki í háskóla- námi að leigja af sér herbergi. „Þegar við heyrðum þetta þá vildum við enn frekar gera þetta að einhverjum svona hverfisstað og samkomuhúsi. Að fólk gæti stopp- að hérna við á morgnana, fengið sér kaffi og hitt nágrannana, auk þess sem það verður auðvitað alltaf hádegis- og kvöldmatur í boði,“ segir Gísli. Boðið er upp á ýmislegt á staðn- um eins og ítalska aperitivo-stund og svo pitsur. „Það er auðvitað eitt það alíslenskasta: föstudagspitsan, heimabökuð eða keypt.“ Ráðagerði er opið frá klukkan 9 á morgnana og til 23 á kvöldin. Eld- húsið er opið frá 11 til 22. n Seltirningar ánægðir með að líf sé aftur í húsinu Ólafur Arnarson Ísland er land mikilla þversagna. Efnahagsspár benda til mikils hagvaxtar og aldrei hefur landinn eytt eins miklu erlendis og nú. Ferðamennirnir eru komnir á ný og hótel á Íslandi aftur orðin of dýr fyrir mörlandann. Mikil þensla er á atvinnumark- aði og á næstu árum vantar 9.000 sérfræðinga, 8.000 manns í ferða- þjónustuna og 2.000 iðnaðarmenn. Landið er gjöfult og gott en samt virðist okkur ekki takast að byggja upp samfélag sem tekur utan um þá sem minna mega sín. Þjóðartekjunum er mjög mis- skipt og er það líkast til ástæðan fyrir því að á sama tíma og þús- undir Íslendinga búa við sáran skort hagnast ein atvinnugrein um 100 milljarða á einu ári vegna einkaaðgangs að sameiginlegri þjóðarauðlind. Í þessu ríka landi er ekki hægt að tryggja öllum íbúum aðgengi að boðlegri heilbrigðisþjónustu. Það vantar fjármagn. Ekki vantaði hins vegar fjármagn þegar splæsa þurfti tveimur og hálfum milljarði í að búa til nýtt ráðuneyti til að liðka fyrir endurnýjun ríkisstjórnarsam- starfs síðastliðið haust. Ráðafólki þessa lands finnst það í góðu lagi að hér sé alvarlegur og viðvarandi húsnæðisskortur, fast- eignaverð rjúki upp úr rjáfrinu og greiðslubyrði íslenskra íbúðakaup- enda sé tvöföld og jafnvel þreföld það sem tíðkast í okkar nágranna- löndum. Þessu ætlar ríkisstjórnin ekki að breyta. Seðlabankinn gerir illt verra – honum má líkja við Hróa hött með öfugum formerkjum. Hann f lytur fjármagn frá þeim fátæku til hinna ríku. Vaxtahækkanir hans færa milljarða frá íbúðakaupendum til fjármálafyrirtækja og fjármagns- Við þurfum ekki, eigum ekki og megum ekki vera í biðflokki eigenda. Ungar fjölskyldur eru sett- ar á vonarvöl. Verst er að bankinn hefur önnur ráð en er fastur í 19. aldar peningastjórn. Ríkisstjórnin er kyrrstöðustjórn. Á það hefur verið bent að ríkis- stjórnin hefur sett bráðnauðsynleg orkuskipti í biðflokk. Ríkisstjórnin er furðuleg blanda afturhalds- og vinstristjórnar – samsuða ósamstæðra f lokka, sam- mála um það eitt að verja sterka sérhagsmuni og setja grundvallar- hagsmuni í biðflokk. Ríkisstjórnin setur Ísland í bið- f lokk. Höfum við efni á því? n Að veitinga- staðnum standa þeir Gísli Björnsson, Jón Ágúst Hreinsson og Viktor Már Kristjánsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Pallurinn við staðinn er virki- lega rúmgóður. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Það er líka hægt að sitja inni. Öllu í blóma í Hveragerði Tónlistarhátíðin Allt í blóma, sem ætluð er fyrir alla fjölskylduna, hófst í gær í Lystigarðinum í Hvera- gerði og stendur yfir helgina. Í dag, laugardag, hefst barnahátíð klukk- an 13 með Wally trúð, Tónafljóði, hoppukastala og loftbolta. Suður- landsdjazz verður klukkan 15.00 á útisviði og klukkan 18 kemur Benni B Ruff fólkinu í réttan gír fyrir kvöldið en stórtónleikar verða á sviðinu frá klukkan 20. Þar koma fram Jón Jónsson, Stebbi Jak, Jógvan Hansen, Unnur Birna og Guðrún Árný ásamt hljómsveit. Í tjaldinu verður dansleikur frá klukkan 23 til 02 með þeim Stefáni Hilmarssyni og Gunna Óla en fleiri munu stíga á stokk – heyrst hefur að mögulega verði einhverjir söngv- arar útitónleikanna enn á svæðinu. Markaðstjald verður í Lystigarð- inum báða dagana og hægt að kaupa fljótandi veigar á góðu verði. Frítt er á þá viðburði sem eru á útisviðinu en rukkað fyrir það sem gerist inni í tjaldinu. n Við mælum með Raddmálsstefna sú er var við lýði í um 100 ár til ársins 1980 og var meðal annars fylgt hér á landi, gekk út á að bann var við því að kenna heyrnar- lausum börnum táknmál í skólum. Frekar skildu börnin læra að tala með rödd sinni og lesa af vörum. Samkvæmt frásögn Júlíu Guðrúnar Hreinsdóttur, döff fræðikonu sem prýðir forsíðu þessa tölublaðs, er allur gangur á því hvort heyrnarlausir geti almennt lært að nota rödd sína og að lesa af vörum er langt í frá eins auðvelt og það kann að hljóma. Stefnan var því stórvægilegt brot á mann- réttindum þessara barna sem misstu mikil- vægt tækifæri til málþroska, menntunar og tjáningar. Með því að meina þeim að læra og tjá sig á því tungumáli sem þeim er þjálast voru þau ekki aðeins svipt tækifæri til menntunar, enda fór bóknámið forgörðum þegar nem- endur skildu ekki efnið, heldur einnig tækifæri til að ná fullum tökum á tungumáli almennt. Það er sárt að hugsa til ungra barna sem síðar urðu fullorðnir einstaklingar án þess að fá að taka virkan þátt í samfélaginu vegna undar- legra hugmynda hinna heyrandi um að steypa alla í sama mót. Það er meira en sárt, það er skömm að því. n Allir í sama mót BJORK@FRETTABLADID.IS 16 Helgin 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.