Fréttablaðið - 02.07.2022, Page 29
Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí nk.
Nánari upplýsingar veita Guðmundur Páll Gíslason, gudmundurg@terra.is, og Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is.
Forstöðumaður
akstursþjónustu
Við leitum að öflugum stjórnanda í starf forstöðumanns akstursþjónustu.
Forstöðumaður akstursþjónustu ber ábyrgð á daglegum rekstri og
skipulagi akstursþjónustu Terra umhverfisþjónustu á höfuðborgar
svæðinu og mun heyra undir framkvæmdastjóra. Forstöðumaður
akstursþjónustu mun leiða stóran og öflugan hóp starfsmanna sem
sinna þjónustu við viðskiptavini Terra umhverfisþjónustu. Félagið vinnur
markvisst að því að lágmarka umhverfisáhrif frá rekstri Terra og mun
stýring og skipulag akstursþjónustu því vera mikilvægur hlekkur í þeirri
vegferð.
Við leitum að framsýnum leiðtoga með jákvætt hugarfar, þjónustulund
og samskiptahæfileika.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Bestun í skipulagi akstursþjónustu
• Innkaup og stýring bílaflota
• Þróun og innleiðing sjálfvirknivæðingu ferla
• Verkefnastjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi eða reynsla af skyldum verkefnum
• Leiðtogahæfileikar
• Frumkvæði og rík hæfni til samskipta og samvinnu
• Skipulögð vinnubrögð
• Rík þjónustulund
Terra umhverfisþjónusta leggur metnað í að
skilja ekkert eftir og vill hvetja og auðvelda
samfélaginu að takast á við þá áskorun. Terra
umhverfisþjónusta er líflegur og fjölbreyttur
vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 240
einstaklingar á starfsstöðvum víðsvegar um
landið. Alla daga vinnum við af dugnaði og
eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið,
en í því felst meðal annars að draga úr úrgangi
og söfnun hans og stuðla að endurnýtingu
og endurvinnslu. Við leggjum mikið upp úr
fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild
og góðum starfsanda.
hagvangur.is
Sótt er um starfið
á hagvangur.is