Fréttablaðið - 02.07.2022, Page 38
Lögfræðingur
Eignaskrifstofa Reykjavíkurborgar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Eignaskrifstofa Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í starf lögfræðings.
Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á ýmis réttarsvið lögfræðinnar. Lögfræðingur eignaskrifstofu sér um öll
lögfræðileg verkefni skrifstofunnar og veitir ráðgjöf og upplýsingar til stjórnenda og starfsfólks Reykjavíkurborgar ásamt því
að vera tengiliður við samstarfsaðila utan borgar.
Eignaskrifstofa fer með eigendafyrirsvar fyrir hönd Eignasjóðs Reykjavíkurborgar sem er einn stærsti fasteignasjóður
landsins með yfir 300 fasteignir. Sjóðurinn fer með rekstur, viðhald, kaup og sölu eigna borgarinnar, svo sem lönd, lóðir og
aðrar fasteignir, samgöngumannvirki og lausabúnað og fellur undir A-hluta í rekstri borgarinnar. Eignaskrifstofa er hluti af
Fjármála- og áhættustýringarsviði og hefur aðsetur í Borgartúni.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við Stéttarfélag lögfræðinga.
Umsóknarfrestur er til og með 29. júlí 2022.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Nánari upplýsingar um starfið veita Óli Jón Hertervig
skrifstofustjóri, oli.jon.hertervig@reykjavik.
Ábyrgðarsvið og helstu verkefni:
• Fyrirsvar fyrir eignaskrifstofu varðandi lögfræðileg
málefni.
• Lögfræðilegar álitsgerðir, ráðgjöf og umsagnir vegna
verkefna eignaskrifstofu.
• Annast kaup og sölu fasteigna, þ.m.t. lönd og lóðir ásamt
því að sjá um samninga- og skjalagerð í því sambandi.
• Samningagerð vegna útleigu fasteigna, bifreiða og tækja.
• Umsagnir um lögfræðileg álitaefni og álitsgerðir vegna
mála sem eru til meðferðar hjá skrifstofunni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Embættispróf eða meistaragráða í lögfræði.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og st-
jórnsýslurétti æskileg.
• Þekking á sveitarstjórnarrétti, kröfurétti, eignarétti,
skipulagsrétti, fasteignakauparétti og verkefnum
sveitarfélaga og þinglýsinga er kostur.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Leiðtogahæfileikar.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
• Fagleg og skipulögð vinnubrögð.
• Lipurð og færni í samskiptum.
• Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti á íslensku og
ensku.
Vilt þú leiða
starfsþróun?
Ný starfseining innan Menntavísindasviðs auglýsir starf deildarstjóra starfsþróunar laust til
umsóknar. Leitað er að kraftmiklum og hugmyndaríkum leiðtoga til að bætast í fjölbreyttan
starfsmannahóp sviðsins.
Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
· Ábyrgð á framboði og skipulagi starfsþróunar
fyrir þær fagstéttir sem sviðið menntar
· Stýra teymi og halda utan um stefnumótun og
framkvæmd starfsþróunar
· Umsjón með Menntafléttu og Menntamiðju
í samstarfi við hagaðila
· Byggja upp samstarf við menntastofnanir,
fagfélög, sveitarfélög og aðra fagaðila um
starfsþróun
· Gerð verkferla, samninga og fjárhagsáætlana
· Þátttaka í vinnu nefnda og ráða sem koma að
starfsþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
· Meistarapróf á sviði menntavísinda eða skyldra
fræðasviða
· Reynsla af starfi á sviði menntunar, æskulýðs-
eða velferðarmála
· Þekking á starfsþróun, fullorðinsfræðslu
og símenntun
· Reynsla af verkefnastjórnun
· Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
· Góð samskiptahæfni
· Hæfni til miðlunar í töluðu og rituðu máli
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík, +354 525 4000, www.hi.is
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.