Fréttablaðið - 02.07.2022, Qupperneq 64
Sýningin Eruð þið ánægð ef
þið megið spyrja um eitt-
hvað? stendur yfir í Listasafni
Árnesinga. Á sýningunni er
fjallað um samvinnu íslenskra
og ungverskra listamanna.
Zsóka Leposa er sýningarstjóri
og aðstoðarsýningarstjóri er
László Szazados.
kolbrun@frettabladid.is
Zsóka hefur starfað við Listasafn
Árnesinga síðastliðin tvö ár. Spurð
um aðdraganda sýningarinnar
segir hún:
„Ísland hafði lengi verið drauma-
landið mitt, jafnvel áður en ég
f lutti hingað. Ég er ungverskur
listfræðingur og árið 2018 vann ég
Erasmus-styrk og starfaði hjá Lista-
safni Reykjavíkur í tvo mánuði.
Þegar ég var að skila listaverka-
bókum á bókasafn safnsins fann
ég bæklinginn SÚM á Listahátíð í
Reykjavík 1972 og varð undrandi
að sjá ungverska listamenn í bland
við efnilegustu íslensku listamenn-
ina sýna saman á sýningu. Ég fann
að ég vildi kafa dýpra og rannsaka
þetta frekar.
Ég fór heim til Ungverjalands
en f lutti til Íslands ári síðar og hóf
þá rannsóknir af fullum krafti, ég
ræddi við íslensku listamennina og
fór í Nýlistasafnið til að grafa upp
frekari upplýsingar. Ég á tveimur
manneskjum mikið að þakka:
Hlynur Helgason dósent hjálpaði
mér í rannsóknum mínum og Krist-
ín Scheving, forstöðumaður Lista-
safns Árnesinga, gaf mér frábært
tækifæri til að gera þessa sýningu
að raunveruleika.“
Mikilvæg bréf
Um viðfangsefni sýningarinnar
segir Zsóka: „Sýningin fjallar um
það hvernig hægt var tengjast og
setja upp sýningar á tímum kalda
stríðsins þegar fólk í Austurblokk-
inni gat ekki ferðast til Vesturlanda.
Þótt listamenn í Austantjaldslönd-
um vildu tengjast listamönnum í
vestri voru íslenskir listamenn líka
einangraðir, þótt það væri á annan
hátt. Sýningar að austan gátu í gegn-
um bréfaskriftir orðið að veruleika
í galleríum sem íslenskir listamenn
ráku, því öll verkin og leiðbeining-
arnar höfðu verið sendar með pósti.
Bréfin eru geymd í Nýlistasafninu
og í Listasafni Ungverjalands og
þannig var hægt að endurgera öll
tengslanetin og sýningarnar frá
áttunda áratugnum. Áberandi
einkenni er síðan að erlendu lista-
mennirnir notuðu húmor og kald-
hæðni í verkum sínum og skemmtu
sér vel við að skiptast á hugmyndum
við íslensku listamennina.
Á sýningunni tengjum við einn-
ig fortíð og nútíð. Við sýnum nýleg
listaverk sömu listamanna og tóku
þátt í þessu neti á áttunda áratugn-
um. Þeir eru nú meðal þekktustu
listamanna á Íslandi og í Hollandi
og Ungverjalandi. Það er mjög
áhugavert að sjá hvernig þeir hafa
þróast sem listamenn.“
Sagan endurtekur sig
Af hverju er sýning eins og þessi
mikilvæg? spyr blaðamaður og
Zsóka svarar: „Það sem skiptir
mestu máli er hvernig sagan endur-
tekur sig. Ég hef verið að rannsaka
áttunda áratuginn og nú, árið 2022,
erum við aftur að tala um pólun
Endurgerð á sýningum og tengslanetum
Verkið Balance XVI eftir Rúrí.
Sýningarstjórinn Zsóka Leposa og aðstoðarsýningarstjórinn László Százados halda á SÚM-katalóg frá árinu 1972.
Mynd/Aðsend
Listamennirnir
n Eggert Pétursson
n Endre Tot Gábor
n Attalai Géza Perneczky
n Ingólfur Arnarsson
n Kristján Guðmundsson
n Kees Visser
n Rúrí
n Sigurður Guðmundsson
Evrópu, um austur og vestur, og
vaxandi pólitísk áhrif Rússlands í
fyrrum austurblokkinni. Ég, eins og
við öll, átti ekki von á þessu hrika-
legu stríði í Úkraínu. Það var ófyrir-
sjáanlegt fyrir f lesta og ég er enn í
algjöru áfalli yfir því sem er að ger-
ast í nágrannalandi Ungverjalands.
Það er mikið talað um einangrun.
Ég gæti alltaf tengt við þá tilfinn-
ingu í kalda stríðinu hinum megin
við járntjaldið og ný reynsla mín er
þessi: Ég skil betur tilfinninguna að
vera einangraður hér á Íslandi, sér-
staklega eftir þessi tvö ár af heims-
faraldri, og ég er viss um að þetta er
reynsla okkar allra.“
Sýningin í Listasafni Árnesinga
stendur til 4. september og verður
frekari dagskrá í tengslum við hana
tilkynnt á heimasíðu safnsins sem
og á samfélagsmiðlum. n
Um er að ræða heilsugæslustöð í 1.050 m2 húsnæði að Aðalgötu 60
Reykjanesbæ.
Fjármögnun fer skv. fjármögnunarlíkani fyrir heilsugæslu á landsbyggðinni.
Um þjónustuna gilda, sjá gögn hér: Heilsugæslustöð í Reykjanesbæ -
Auglýsing | Sjúkratryggingar Íslands (island.is)
1. Almennir skilmálar Sjúkratrygginga Íslands um kaup á heilbrigðisþjónustu.
2. Kröfulýsing fyrir rekstur heilsugæsluþjónustu, nú útg.2.0.
3. Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni, útg. 2022.
4. Samningsdrög
Önnur gögn, þ.m.t. teikningar af húsnæðinu, má nálgast á ofangreindri slóð.
Ríkið leggur til húsnæði undir starfsemina að Aðalgötu 60 Reykjanesbæ,
sem verður innréttað í samráði við verksala, en miðað er við að verksali
leggi til húsbúnað og lækningatæki.
Gengið er út frá samningi til fimm ára. Stöðin skal opna 4-6 mánuðum eftir
undirritun samnings við leigusala. Samningur við rekstraraðila verður
gerður með fyrirvara um að samningar við leigusala gangi eftir.
Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda útfyllt tilboðshefti Heil-
sugæslustöð í Reykjanesbæ - Auglýsing | Sjúkratryggingar Íslands
(island.is) á netfangið: innkaup@sjukra.is, þar sem fram kemur hvenær
viðkomandi getur opnað heilsugæslustöðina og upplýsingar um menntun
og reynslu starfsmanna. Þá skal bjóðandi samhliða tilboði senda SÍ
kynningu á fyrirtækinu, lýsingu á gæðastefnu, gögn sem staðfesta
fjárhagslegt hæfi og upplýsingar um hvernig uppfylla á kröfur sem koma
fram í gögnum um verkefnið.
Fyrirspurnir má senda á ofangreint netfang.
Taka tilboða: SÍ munu taka hagstæðasta tilboðinu, sem miðast við hvenær
viðkomandi bjóðandi getur opnað heilsugæslustöðina, að öðrum skilyrðum
uppfylltum, Séu tvö eða fleiri tilboð þá jafngild mun val fara eftir fjölda
stöðugilda lækna (fleiri gefa hærra mat) en séu þau enn jöfn mun
hlutkesti ráða því við hvern verður samið. SÍ áskilja sér rétt til að hafna
öllum tilboðum séu þau ófullnægjandi.
Frestur til að senda inn tilboð er til
kl. 12:00 þann 8. ágúst 2022.
Auglýsa eftir rekstraraðila
til að reka heilsugæslustöð í Reykjanesbæ.
- Þínir fagmenn í framkvæmdum
Allar almennar húsaviðgerðir
Þak- og gluggaskipti og viðgerðir
Veggjaklæðningar
Öll viðhaldsvinna Innan- og utanhús
Smáratorg 3, 201 Kópavogur – Sími: 497 13 20 – Netfang: hagleiksverk@hagleiksverk.is
Fagmennska
Heiðarleiki
Ábyrgð
Hagleiksverk er öflugur verktaki með
mikla, víðtæka og áratuga reynslu af
flestum tegundum byggingaframkvæmda
36 Menning 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðiðmenninG Fréttablaðið 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR