Fréttablaðið - 02.07.2022, Side 66
ninarichter@frettabladid.is
Á meðan almúginn flatmagar í sumarfríi er í nógu að snúast
hjá fyrirmennum og kóngafólki þessar vikurnar. Opnanir,
afmæli og vígslur af ýmsu tagi rata á verkefnalista hinna
tiginbornu. Frá og með 2022 standa tólf fullvalda konungsríki
í Evrópu. Sjö eru konungsríki: Danmörk, Noregur, Svíþjóð,
Bretland, Spánn, Holland og Belgía. Andorra, Liechtenstein og
Mónakó eru furstadæmi en Lúxemborg er stórhertogadæmi.
Vatíkanið er skilgreint sem guðræðislegt valkonungsveldi
undir stjórn páfa.
Kóngafólk á
ferð og flugi
Mabel prinsessa af Hollandi var stödd ásamt systrum
sínum Eveline (t.v.) og Nikólínu (t.h.) á Amsterdam
dinersöfnuninni fyrir Alnæmisstofnun SÞ þann 25.
júní í Amsterdam, Hollandi. Patrick van katwijk/Getty
Elísabet, krónprinsessa Belga, stígur frá borði af haf
rannsóknaskipinu Belgica eftir formlega vígslu í Gent
í Belgíu. RV Belgica ku gegna lykilhlutverki í belgískum
og evrópskum hafrannsóknum á næstu áratugum.
Þökk sé nýja skipinu munu hafvísindamenn geta
framlengt margra vikna leiðangra á belgísku haf
svæði og víðar. Olivier Matthys/Getty
MetteMarit krónprinsessa og Hákon krónprins
Noregs krjúpa við bráðabirgðaminnismerki þann
25. júní 2022 í Ósló í Noregi. Tveir létu lífið og að
minnsta kosti 10 slösuðust þegar maður hóf skot
hríð snemma á laugardagsmorgun nálægt vinsælum
hinsegin klúbbi í miðbæ borgarinnar, nokkrum
klukkustundum fyrir árlega skrúðgöngu hinsegin
fólks í Osló. Lögreglan rannsakar skotárásina sem
hryðjuverkaárás og skipuleggjendur skrúðgöngunnar
aflýstu viðburðinum að ráði yfirvalda.
rOdriGO Freitas/Getty
Karl Bretaprins og Camilla hertogaynja af Cornwall, mættu til kvöldverð
ar samveldisleiðtoga á Marriott hótelinu í Kigali, Rúanda, þann 24. júní.
Prinsinn hefur sótt fimm af tuttugu og fjórum fundum leiðtoga sam
veldisins. Árið 2018 var formlega tilkynnt að prinsinn myndi taka við af
drottningunni sem yfirmaður samveldisins. Leiðtogar samveldislanda
hittast á tveggja ára fresti fyrir fundinn sem aðildarlönd halda til skiptis.
chris jacksOn/Getty
Soffía drottning Spánar opnaði heimshundasýninguna
2022 sem fram fór þann 24. júní í Madríd á Spáni.
carlOs alvarez/Getty
Katrín hertogaynja brá sér ásamt eiginmanni sínum
Vilhjálmi, krónprins Breta og hertoga af Cambridge, í
heimsókn á Fitzwilliamsafnið til að skoða nýja andlits
mynd af hjónunum eftir portrettlistamanninn Jamie
Coreth. Heimsóknin á safnið var liður í opnberri heim
sókn hertogahjónanna til Cambridge.
Max MuMby/Getty
Meghan og Harry prins, hertogahjónin af Sussex,
mættu til messu í St Paul’s dómkirkjunni í London
3. júní. Tilefni Englandsheimsóknarinnar voru há
tíðarhöld í tilefni sjötíu ára valdaafmælis Elísabetar
Englandsdrottningar. saMir hussein/Getty
tsh@frettabladid.is
Hollywood-stjarnan Ezra Miller
hefur ekki átt sjö dagana sæla en
undanfarin ár hefur leikarinn
f lækst inn í hvern skandalinn á
fætur öðrum. Miller, sem notar
fornöfnin hán, er þekktast fyrir að
leika ofurhetjuna the Flash og í Fan-
tastic Beasts kvikmyndaseríunni.
Hán hefur dvalið reglulega á
Íslandi og var hér við upphaf Covid-
faraldursins. Í apríl 2020 gekk
myndband manna á milli á sam-
félagsmiðlum sem sýndi hán taka
konu háls taki og snúa hana niður á
skemmti staðnum Prikinu.
Tímaritið Variety fjallaði um mál
Millers í ítarlegri grein sem birtist á
dögunum. Þar er meðal annars rætt
við Carlos Reyni sem starfaði sem
barþjónn á Prikinu þegar Miller var
fastagestur þar.
„Ef hán var ekki að kveikja á reyk-
elsi eða kertum, eða koma með eigin
hátalara til að spila hærri tónlist en
í okkar hátölurum, þá var það eitt-
hvað annað. Það var alltaf eitthvað,“
segir Carlos.
Konan sem Miller réðst á steig
einnig fram í viðtalinu og greindi frá
sinni upplifun. Haft er eftir heim-
ildarmönnum að Miller og konan
hafi grínast með að fara í slag. Hún
hélt sjálf að leikarinn hefði bara
verið fíf last en brátt kom í ljós að
svo var ekki.
„Allt í einu er hán ofan á mér að
kyrkja mig, öskra á mig að spyrja
hvort ég vilji slást. Vinur minn er
að taka þetta upp og sér að hán er
augljóslega ekki að djóka og er mjög
alvarlegt þannig að vinur minn
hættir að taka upp og ýtir háni af
mér á meðan hán er enn að reyna
að slást við mig,“ segir hún.
Konan segir Miller því næst hafa
hrækt nokkrum sinnum í andlit
vinar hennar en að lokum hafi Car-
los Reynir skorist í leikinn.
Ljóst er að ekki er um einangrað
atvik að ræða en f leiri mál um
of beldisfulla hegðun Millers hafa
komið upp í öðrum löndum. Hán
var til að mynda tvisvar handtekið
á Havaí í vor sakað um að hafa ann-
ars vegar kastað stól í andlit konu
og hins vegar um að hafa sýnt af sér
of beldis fulla hegðun á karókí bar.
Miklar umræður hafa skapast
um Ezra Miller á samfélagsmiðl-
um og virðist framtíð háns sem
kvikmyndastjörnu vera í nokk-
urri hættu ef marka má fréttir frá
Warnes Bros sem benda til þess að
framleiðslufyrirtækið hafi í hyggju
að leysa stjörnuna undan samningi
sínum.
Einn notandi á Twitter lýsti leik-
aranum umdeilda svo: „Ezra Miller
er eins og ef Tumblr hefði búið til
terrorista.“ n
Eins og terroristi
af Tumblr
Ezra Miller á Met Gala hátíðinni í New York árið 2019. Fréttablaðið/Getty
38 Lífið 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFréTTablaðiðLífið FréTTablaðið 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR