Fréttablaðið - 09.07.2022, Síða 26
Edda og eiginmaður hennar eiga
sumarbústað í Úthlíð þar sem
þau dvelja yfirleitt um lengri eða
styttri tíma. Þau hafa nýtt tímann
þar og farið á golfvöllinn sem
oftast. Þau hjónin spiluðu áður hjá
Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ en
hafa að mestu flutt sig í sveitina.
„Ég er hætt að vinna og finnst gott
að vera í sveitasælunni,“ segir hún.
Það var mikil óheppni þegar
Edda sleit liðþófa fyrir tveimur
árum. „Vegna verkja sem fylgdu því
var mér bent á að nota FIT plástur
og hann virkar mjög vel. Ég hafði
áður notað sams konar plástur
vegna bakverkja sem einnig
reyndist mér afar vel. Þegar ég fékk
í bakið benti vinkona mín mér á
FIT plástur. Hún hafði sjálf notað
hann vegna verkja í öxlum og það
reynst henni vel. Læknar vildu
fyrst ekkert gera fyrir mig vegna
liðþófans en síðan var aðgerðin
samþykkt í lok maí og ég hef verið
að ná mér eftir hana. Ég hef notað
plásturinn í staðinn fyrir að taka
inn verkjalyf og það hefur verið
frábært,“ segir Edda.
„Ég var alltaf með verki í fæt
inum og það hamlaði mér. Ég er
vön að fara í leikfimi þrisvar í viku
yfir vetrartímann, fer reglulega
í göngur og svo spila ég golf. Ég
varð að taka mér frí frá þessu öllu
eftir aðgerðina en er að fara af stað
aftur. Plásturinn virkar og ég finn
mikinn mun þegar ég nota hann.
Ég fer rólega af stað og spila bara
9 holur enn sem komið er,“ segir
hún.
Mikil keppniskona
Edda er keppnismaður í golfi og
hefur tekið þátt í f lestum mótum.
„Það eru alls konar mót í gangi í
Úthlíð og ég hef tekið þátt í þeim.
Þar spila karlar og konur saman
og þetta er góður félagsskapur,“
segir hún. „Mér finnst golfið það
skemmtilegasta sem ég geri. Yfir
leitt er það þannig að annaðhvort
fellur fólk kirfilega fyrir íþróttinni
eða ekki. Hreyfingin og útiveran
gerir manni líka gott. Ég er búin að
nota FIT plásturinn núna reglulega
í nokkra mánuði. Ég fór í golf
ferð í fimm vikur áður en ég fór í
aðgerðina og plásturinn bjargaði
mér algjörlega í ferðinni. Ég fann
mikinn mun ef ég setti hann ekki
á mig. Það er mjög létt fyrir mig
að mæla með plástrinum ef fólk
finnur fyrir verkjum í hnjám, baki
eða öxlum.“
Edda starfaði í bankageiranum
í 38 ár en er komin á eftirlaun.
Hún var kyrrsetukona og hefur
passað upp á hreyfingu og útivist
í langan tíma. „Það þýðir ekkert
annað,“ segir hún og bætir við að
öll hreyfing sé góð fyrir liðleikann.
„Ég mun nota plásturinn áfram á
meðan ég þarf á honum að halda.
Ég labba ekki mikið enn þá en
læknirinn sagði að það tæki mig
allt að átta vikur að jafna sig,“ segir
Edda og er rokin út á golfvöll eins
og sannir kylfingar reyna að gera
daglega.
Nýsköpun í verkjastillingu
Verkir af hinum ýmsu gerðum
hafa fylgt mannskepnunni alla tíð.
Verkir hafa verið meðhöndlaðir
á ýmsa vegu, með nuddi, nála
stungum og lyfjum, svo eitthvað sé
nefnt. Hin síðari ár hefur notkun
verkjalyfja aukist til muna, oft og
tíðum með slæmum afleiðingum á
önnur líffæri, til dæmis maga.
OJKÍSAM er umboðsaðili FIT
verkjaplástra sem eru fáanlegir í
f lestum apótekum landsins. FIT
plástrarnir eru ítölsk uppfinning
sem byggja á innrauðum geislum
líkamans sem eru nýttir aftur inn í
líkamann og örva þannig háræða
kerfið svo að blóðið kemst betur
til aumu staðanna og úrgangsefni
hreinsast hraðar í burtu. Virkar því
nokkuð svipað og nudd. Hjálpar
líkamanum að hjálpa sér sjálfum.
Plástrarnir eru unnir úr viður
kenndu ofnæmisfríu plastefni
og innihalda lífræn steinefni (til
dæmis títan) sem endurvarpa inn
rauðum geislum líkamans aftur
inn í líkamann. Innrauðir geislar
hafa margvísleg áhrif á líkama
okkar:
n Auka virkni háræðakerfisins
sem eykur blóðflæði svo að
blóðið hreinsast betur af fitu og
úrgangsefnum.
n Bæta súrefnisþéttni í líkam
anum.
n Bæta vöðvavirkni.
n Bæta svefn og viðhalda hita.
n Verkjastillandi – minni þörf á
verkjalyfjum.
n Auka endurheimt vöðvanna –
gott að setja þá á aum svæði eftir
æfingar.
n Plástrarnir eru alveg náttúru
legir, engar aukaverkanir þar
sem þeir setja ekkert í líkamann
sem er þar ekki nú þegar. Henta
öllum, líka óléttum konum og
þeim sem eru með barn á brjósti.
Hvernig virka FIT plástrarnir?
n Setjið plástrana á svæðin, eins
og leiðbeiningar sýna, og bíðið í
tvær mínútur eftir því að hiti frá
líkamanum losi vel um límefnið
svo að plásturinn nái öruggri
festu. Nú breytist plásturinn í
það sem verður best lýst sem
spegli sem endurkastar orku
frá líkamanum allt að 89 cm
inn undir húðina: Þessi orka
hefur verkjastillandi áhrif. Hver
plástur dugar í allt að 5 daga og
má fara í sturtu.
n Haldið meðferð áfram þar til
verkur hættir.
n Frá sama fyrirtæki eru einnig í
boði tíðaplástrar sem nýta sömu
tækni og draga úr tíðaverkjum
kvenna.
n Verkjaplástrarnir fást í f lestum
apótekum landsins.
Nánar má lesa um
FIT-verkjaplástra á síðunni:
isam.is/ fit-therapy
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Ég hafði áður
notað sams
konar plástur
vegna bakverkja
sem einnig
reyndist mér
afar vel, segir
Edda sem mælir
með FIT verkja-
plástrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
FIT plásturinn
er einfaldur í
notkun. Hann
er settur á
svæðið þar sem
verkurinn er
verstur.
FIT plásturinn er til
í nokkrum útgáfum
sem henta fyrir
mismunandi svæði
líkamans.
Ég er búin að nota
FIT plásturinn
núna reglulega í nokkra
mánuði. Ég fór í golfferð í
fimm vikur áður en ég
fór í aðgerðina og plást-
urinn bjargaði mér
algjörlega í ferðinni.
2 kynningarblað A L LT 9. júlí 2022 LAUGARDAGUR