Fréttablaðið - 09.07.2022, Síða 46
Sveiflusveit alþýðunnar
stendur fyrir sveiflutón-
leikum og danskennslu
á Óðinstorgi nokkra
laugardaga í sumar á vegum
Sumarborgarinnar. Óþarfi er
að mæta með dansfélaga.
sandragudrun@frettabladid.is
Sveiflusveit alþýðunnar skipa þeir
Freysteinn Gíslason á kontrabassa,
Valbjörn Snær Lilliendahl á gítar
og Magnús Pálsson á klarínett. Á
tónleikunum í sumar verður spiluð
hress sveiflutónlist eins og hún
gerðist best á millistríðsárunum. Í
hléi mun svo Magnús klarínettleik-
ari kenna gestum sveifludansinn
Lindy Hop.
„Hann fer yfir létt byrjendaspor
sem fólk á öllum aldri getur lært. Þá
geta áhorfendur vonandi nýtt sér
kennsluna og dansað við tónlistina
eftir hlé. Þannig að þetta er meira
en bara tónleikar,“ segir kontra-
bassaleikarinn Freysteinn.
Hann segir að þeir félagar séu
nýlega byrjaðir að spila saman
undir nafninu Sveiflusveit alþýð-
unnar.
„Við erum allir reyndir spilarar
en Sveiflusveit alþýðunnar er til-
tölulega ný. Við Valbjörn gítar-
leikari höfðum verið að hittast og
spila saman og svo fór Magnús að
mæta með. Þannig varð sveitin til,“
segir Freysteinn.
Hann segir að ástæðan fyrir
að sveiflutónlist hafi orðið fyrir
valinu sé einföld. „Þegar maður fær
djassbakteríuna eins og sagt er, þá
verður ekkert aftur snúið. Hún bara
yfirtekur mann oftast og við erum
allir með hana. Við höfum allir
mikinn áhuga á þessari tónlist.“
Létt fjölskyldustemning
Sveitin stefnir á að halda ferna
sveiflutónleika á Óðinstorgi í
sumar á vegum Sumarborgarinnar.
Fyrstu tónleikarnir eru á dagskrá
í dag klukkan 14-16, en Freysteinn
segir að mögulega verði að fresta
þeim vegna veðurs. Hægt er að
fylgjast með því á viðburðasíðu
borgarinnar okkar, borginokkar.is
eða á Facebook- eða Instagram-síðu
Sveiflusveitarinnar.
„Það er gott að fylgja okkur á
samfélagsmiðlum til að vita ef við
þurfum að breyta um dagsetningar.
En þar sem það stefnir á slæmt
veður gætum við því miður þurft að
fresta fyrstu tónleikunum okkar, en
við finnum þá nýja dagsetningu því
við ætlum að halda ferna tónleika
í sumar. Þeir næstu verða 16. og 30.
júlí og þeir síðustu 6. ágúst,“ segir
Freysteinn.
Dans og sveifla á Óðinstorgi
Þeir Valbjörn
Snær Lillien-
dahl, Freysteinn
Gíslason og
Magnús Pálsson
skipa hljóm-
sveitina Sveiflu-
sveit alþýð-
unnar. Þeir ætla
að skemmta
borgarbúum
í sumar með
tónlist og dans-
kennslu.
MYNDIR/AÐSENDAR
Tónleikarnir verða á Óðinstorgi fjóra laugardaga í júlí og ágúst.
„Það er planið að hafa þetta
svona létta fjölskyldustemningu.
Þannig að mömmur, pabbar,
ömmur, afar, börn og bara allir geti
komið og haft gaman saman og
nýtt þetta nýja og fallega torg.“
Freysteinn segir fleiri tónleika
með sveitinni ekki á dagskrá á
næstunni. Tónleikarnir fernir á
vegum sumarborgarinnar séu bara
byrjunin á samstarfi hljómsveitar-
meðlimanna.
„Þetta er vonandi byrjunin á
einhverju meiru. Við eigum eftir
að sjá hvernig þetta þróast. Ef það
myndast mikil stemning í kringum
þetta er aldrei að vita nema við
tökum þetta eitthvað lengra,“ segir
hann.
Öll alþýðan velkomin
„Við spiluðum á Lindy Hop-kvöldi
núna á þriðjudaginn, en þau eru
alltaf haldin annað hvert þriðju-
dagskvöld á Kex. En Magnús hefur
verið viðriðinn Lindy Hop sam-
félagið á Íslandi. Frumraunin okkar
að spila saman fyrir aðra var aftur
á móti á hjá Vinstri grænum í Mos-
fellsbæ. Þá vorum við bara að spila
djass.“
Freysteinn segir að hugmyndin
að Sveiflusveit alþýðunnar hafi
kviknað í kringum þá tónleika og
að nafn sveitarinnar sé tilkomið til
að undirstrika að allir, öll alþýðan,
séu velkomnir á tónleika hjá þeim.
„Okkur langaði að nýta þennan
áhuga okkar á sveiflutónlist og
áhuga Magnúsar á Lindy Hop og
reyna að búa til eitthvað skemmti-
legt.“ n
Þetta er vonandi
byrjunin á ein-
hverju meiru.
Freysteinn Gíslason
elin@frettabladid.is
Þetta er einfaldur og góður
réttur sem upplagt er að
prófa á laugardegi. Upp-
skriftin miðast við tvo.
2 kjúklingabringur
½ tsk. salt
¼ tsk. pipar
1 msk. smjör og smá olía til
steikingar
2 hvítlauksrif
Safi úr fjórðungi af sítrónu
Steikt spergilkál
1 spergilkálshaus
1 skallottlaukur, smátt skorinn
1 hvítlauksrif
1 msk. olía til steikingar
Fjórðungur úr sítrónu
2 msk. ristaðar möndluflögur
Salt og pipar
Sósa
1 dl vatn og kjúklingateningur
2 dl rjómi
1 msk. dijonsinnep
1 msk. sojasósa
Salt og pipar
2 tsk. maizenamjöl
Bragðbætið kjúklingabringurnar
með salti og pipar og steikið þær
í tvær mínútur hvorum megin.
Bætið smátt skornum hvítlauk út
á pönnuna og pressið sítrónusafa
yfir. Lækkið hitann, setjið lok á
pönnuna og haldið áfram að elda í
4 mínútur, eða þar til kjúklingurinn
hefur náð 70 °C.
Sjóðið upp vatn og tening, bætið
síðan rjóma við. Smakkið til með
sinnepi, sojasósu og bragðbætið
með salti og pipar. Jafnið sósuna
með maizenamjöli sem hrært hefur
verið með smá köldu vatni. Bætið
við sinnepi ef þarf.
Skerið spergilkálið í hluta og
steikið með skallottlauk, hvítlauk
og olíu. Pressið sítrónusafa yfir.
Dreifið möndluflögum yfir í lokin
ásamt salti og nýmöluðum pipar.
Leggið kjúklingabringur á sitt
hvorn diskinn, hafið spergilkál
til hliðar og ausið sósu yfir kjötið.
Fallegt er að skreyta diskinn með
kirsuberjatómötum og sítrónubát.
Hrísgrjón passa vel með þessum
rétti og sömuleiðis nýjar kartöflur
eða kartöflumús. n
Kjúklingur með sinnepssósu
Kjúklingabringur eru alltaf góður
matur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 kynningarblað A L LT 9. júlí 2022 LAUGARDAGUR