Fréttablaðið - 09.07.2022, Síða 72

Fréttablaðið - 09.07.2022, Síða 72
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Tobbu Marinós n Bakþankar Við hjónin teljum okkur vera vel skipulögð, ég með meistaragráðu í verkefnastjórnun og hann tölv- unarfræðingur. Það er því nokkuð viðbúið að snjallvæðing hafi átt sér stað innan veggja heimilisins – með einstaka innköllun. Ég bað eiginmanninn til dæmis að taka snjallperuna af baðherberginu eftir að skynjaradurgurinn taldi mig af ef ég var of lengi að pissa. Svo flutti Alexa inn og starfar nú sem inn- kaupastjóri, tónlistarstjóri, leikja- stjóri og sérleg prumpueftirherma. Hún fór í fýlu í vikunni og neitaði að kveikja á öðru en breskum upp- lestri um seinni heimsstyrjöldina. Líklega of margar prumpubeiðnir. Í viðleitni okkar hjóna til að tengjast náttúrunni á ný eftir snjallfaraldur skildum við Alexu eftir heima og gengum Fimmvörðu- háls, með fullhlaðna síma, heyrnar- tól, snjallúr, auka hleðslustaut og stíliserað sykurlaust og glútenlaust nesti. Og auðvitað í tæknilegum göngufatnaði sem andaði. Dásam- legt veður og við að núvitunda okkur í drasl í beinni á Instagram. Svo allt í einu fara báðir símarnir að pípa án afláts. Rauða Securitas- merkið blikkaði reiðilega. Þjófa- varnarkerfið var farið í gang og það fyrir góðum 10 mínútum þegar við vorum netlaus. Og nú hófust hlaupin í leit að símasambandi. „Hver brýst inn um miðjan dag?“ kalla ég á hlaupunum – núvitundin á milljón. Stekk upp á stein og rek símaskrípið upp til lofts. Sé fyrir mér dónaþjófa rassa svefnherbergisveggina og brjóta góða stellið. Kalli horfir á snjallúrið og svo sorgmæddur á mig. „Hvað gerist á okkar heimili alla daga klukkan 12? Helvítis ryksugu- róbotinn!“ „Ó,“ svara ég og rifja upp að útkallið á öryggisverði kostar sirka 20.000. Ekki snjallt. n Skynjaradurgur VEITINGASTAÐURINN Nú á matseðli ̵ gríptu tækifærið Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20 © Inter IKEA System s B.V. 2022 1.295,- ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Sigraðu innkaupin fyrir útileguna Öll losun stränglega bönnuð. Öll losun stränglega bönnuð.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.