Fréttablaðið - 03.08.2022, Page 1
Að mati formanns BHM er
það óásættanlegt að mennt-
aðir hafi setið jafn mikið eftir
og raun ber vitni þegar kemur
að kjaraþróun. Staðan geti
haft þær afleiðingar í för með
sér að menntaðir sæki í störf
erlendis að námi loknu þar
sem menntun er metin að
verðleikum.
magdalena@frettabladid.is
KJARAMÁL Friðrik Jónsson, formað-
ur BHM, segir í samtali við Markað-
inn, að fjárhagslegur ávinningur
af menntun fari sífellt minnkandi
og að háskólamenntaðir hafi setið
eftir þegar kemur að launaþróun.
„Það er í sjálfu sér ekkert skrýtið
því lífskjarasamningarnir voru
sniðnir til þess að vera hagfelldir
fyrir þá lægstlaunuðu,“ segir Frið-
rik og bætir við að áhugavert sé að
skoða þróun kaupmáttar fyrri ára.
„Ef við skoðum kaupmáttar-
aukningu undanfarinna ára og
horfum til ársins 2015 þegar lögð
var áhersla á krónutölusamninga,
frá janúar 2015 til janúar 2022 ef
við berum saman BHM og BSRB
hjá ríkinu, þá hefur kaupmáttar-
vísitalan fyrir BSRB hækkað um 53
prósent meðan hún hefur hækkað
um 36 prósent hjá BHM,“ segir
Friðrik og segir auk þess að það
sé ekki ásættanlegt að menntaðir
hafi setið jafn mikið eftir og raun
ber vitni, þó ánægjulegt sé að hans
mati að markmiðið um leiðrétt-
ingu kjara þeirra lægstlaunuðu hafi
gengið eftir.
Friðrik segir jafnframt að þessi
staða geti leitt af sér tvíþættar
af leiðingar. Annars vegar dragi
þetta úr hvata einstaklingsins til
að sækja sér menntun og auki hins
vegar hvatann fyrir menntafólk til
þess að f lytja utan að námi loknu
þar sem menntun sé metin meira
að verðleikum. SJÁ SÍÐU 8
Það hlýtur einhvers
staðar undan að láta.
Friðrik Jónsson,
formaður BHM
1 5 6 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 3 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Rokkúlfur í
vítislogum
Bókabíll á
regnbogaleið
Lífið ➤ 24 Lífið ➤ 26
Góð byrjun á
fjölskyldufríinu
Hugsum í framtíð
NÚ ER TÍMI FYRIR
SUMMER SALE
Formaður BHM segir það bagalegt
að háskólamenntaðir hafi setið eftir
STJÓRNSÝSLA Skoskri konu á átt-
ræðisaldri, sem gift hefur verið
íslenskum manni í 52 ár og á tvo
íslenska syni, hefur ekki getað
fengið íslenskan ríkisborgararétt.
Í grein í Fréttablaðinu í dag furðar
eiginmaður konunnar sig á fram-
komunni gagnvart henni.
Konan sér fram á að ferðafrelsi
hennar í Evrópu, meðal annars til
Íslands, skerðist mjög vegna Brexit
og því vill hún nú taka upp sama
ríkisfang og eiginmaðurinn til
röskrar hálfrar aldar og synirnir
tveir.
Eiginmaðurinn telur konu sinni
mismunað og furðar sig á því að
engar upplýsingar sé að fá um stöðu
mála eða ferlið. SJÁ SÍÐU 14
Gift Íslendingi í
52 ár en fær ekki
ríkisborgararétt
Hinsegin dagar hófust í Reykjavík í gær og standa þeir fram á sunnudag með afar fjölbreyttri dagskrá. Ætlunin mun vera að mála bæinn rauðan þessa daga en fyrst þurfti að koma regnboganum á
sinn stað í Bankastræti. Meðal þeirra sem hófu þá skemmtilegu málningarvinnu var Eliza Reid forsetafrú. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK