Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 2
Borð fyrir einn
„Ha? Er ekki mávastell?“ gæti hann verið að hugsa fuglinn sem bauð sjálfum sér í mat á útiveitingastað við Austurvöll í gær. Það hafa kannski ekki verið
kjöraðstæður í sumar í borginni til að sitja úti og nú spáir Veðurstofan að næstu daga verði hiti á bilinu tíu til þrettán gráður og að á skiptist skin og skúrir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Árni Tryggvason vildi upplifa
skjálftana beint í æð og skellti
því upp tjaldi hátt í hlíðum
Grænudyngju þar sem fjörið
var mikið. Hann svaf ágæt-
lega og uppgötvaði margar
nýjar sprungur og jarðföll við
Grænavatnsegg.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Þetta var fín nótt.
Maður fann titringinn öðru hverju
en ég hef upplifað ýmislegt á fjöll-
um með allskonar fárviðrum sem
hafa skekið tjaldið. Þá sefur maður
miklu verr,“ segir Árni Tryggvason,
sem var ekki á þeim buxunum að
missa af skjálftafjöri næturinnar og
vippaði sér með tjald og búnað upp
Grænudyngju þar sem hann lagðist
til hvílu – ef hvílu skyldi kalla.
Margir komu þreyttir til vinnu í
gær eftir skjálftanótt á Reykjanes-
skaga þar sem fjölmargir skjálftar
mældust, sá stærsti fimm á Richter.
Jörðin lék á reiðiskjálfi við Reykja-
nesið en 18 skjálftar mældust yfir
þrír á Richter samkvæmt heimasíðu
Veðurstofunnar.
Árni hafði það þó fínt og kom sér
fyrir á öruggum stað með fallegu
útsýni yfir borgina. „Eflaust eru ein-
hverjir sem fussa og sveia yfir þessu
en við eigum bara þetta eina líf,“
segir hann. „Ég vissi að ekkert væri
að fara að hrynja á mig eða yfir mig.
Ég var ekkert beint undir klettum,
með gott rými á milli og með fallegu
útsýni yfir borgina. Þetta er gríðar-
lega heillandi staður og mikið ævin-
týralandslag.“
Hann segir að svæðið í hlíðum
Grænudyngju sé vanmetið svæði en
eini ókosturinn sé að þar sé engin
lækjarspræna og því þurfi að ferja
vatn í bakpokanum. „Þetta er staður
sem ég gekk um fyrir mörgum árum
þegar mátti veiða rjúpu þarna og
hugsaði með sjálfum mér að þarna
væri gaman að prófa að tjalda. Svo
var þessi helgi komin og ég í bænum
og ákvað að drífa mig af stað.“
Hann segir það ákveðna spennu
að fara um svæðið og það sé ein-
stakt að upplifa jarðskjálftana í
svona mikilli nálægð. „Ég settist eitt
sinn á stein til að kasta mæðinni og
þá kom góður kippur og steinninn
sem ég sat á vaggaði eins og bátur.
Það var frábær stund.
Maður heyrir stóru skjálftana
koma. Það heyrast drunur í klettun-
um og þá hugsar maður að einn stór
sé að koma sem gerist svo tveimur
sekúndum síðar,“ segir Árni. n
Svaf vel í tjaldi skammt frá
upptökum jarðskjálftanna
Mynd sem Árni tók í sólarlaginu þegar sólin gyllti Fíflavallaháls, sem er fjalls-
hryggurinn á milli Sveifluháls og Grænudyngju. MYND/ÁRNI TRYGGVASON
Þegar Árni
gekk til baka
fór hann lengri
leið heim og
fór að Græna-
vatnseggjum
þar sem hann sá
nýjar sprungur
og sums staðar
jarðfall, þar sem
jörðin hafði
gleypt örlítinn
hluta af sjálfri
sér.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
AYJA - K129
3ja sæta, 2ja sæta og stóll.
Margir litir af áklæði eða leðri.
Komið og skoðið úrvalið
ragnarjon@frettabladid.is
TAÍVAN Nancy Pelosi, forseti Banda-
ríkjaþings lenti í Taívan í gær ásamt
föruneyti sínu en þetta er fyrsta
formlega heimsókn Bandaríkjanna
þangað í 25 ár. Bandaríski hópurinn
lenti á Songshan-flugvelli í miðborg
Taípei en Joseph Wu, utanríkisráð-
herra Taívan tók á móti þeim.
„Heimsókn sendinefndar okkar
til Taívan heiðrar þá skuldbindingu
Bandaríkjanna að styðja við lýðræði
í landinu“ sagði Pelosi í tilkynningu
stuttu eftir lendingu.
Heimsóknin hefur reitt Kínverja
til mikillar reiði en Kína viðurkenn-
ir ekki sjálfstæði Taívan. Aðeins
þrettán ríki á heimsvísu viðurkenna
sjálfstæði landsins og er Ísland ekki
þar á meðal. Ísland hefur síðan 1997
viðurkennt yfirlýsingu Kínverja um
að Taívan sé óaðskiljanlegur hluti af
landsvæði Alþýðulýðveldis Kína. n
Kínverjar eru æfir
vegna heimsóknar
Nancy Pelosi, forseti Bandaríkja-
þings, ásamt Joseph Wu, utanríkis-
ráðherra Taiwan. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
gar@frettabladid.is
NÁTTÚRUVÁ Verulegar líkur eru nú
sagðar á eldgosi í kringum Fagra-
dalsfjall á næstu dögum eða vikum.
„Niðurstöður af lögunarlíkana
sem gerð voru í dag benda til að
kvikugangurinn undir Fagradals-
fjalli liggi mjög grunnt eða í kring-
um 1 kílómetra undir yfirborðinu,“
sagði Veðurstofan síðdegis í gær.
„Allt viðbragð á Suðurnesjum er
reiðubúið til að takast á við eldgos,“
sögðu Almannavarnir í gær.
„Ef við skoðum þessa aflögunar-
mynd sem þeir gefa út þá er hún
mjög svipuð þeirri sem kom út rétt
fyrir síðasta gos,“ segir Þorvaldur
Þórðarson eldf jallaf ræðingur.
„Þannig að það getur vel verið að
atburðir síðasta árs séu að fara að
endurtaka sig.“
Á síðu Almannavarna er leiðbeint
um viðbrögð vegna jarðskjálfta.
„Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að
halda ró sinni, krjúpa, skýla höfði
og halda sér. Mörg slys í kjölfar jarð-
skjálfta verða þegar fólk hleypur um
eða út úr byggingum. Ef hlaupið er
um í óðagoti aukast líkurnar á því
að verða fyrir hlutum sem falla úr
hillum eða af veggjum og þess hátt-
ar og oft er erfitt að halda jafnvægi.
Glerbrot geta verið á gólfum ásamt
ótal munum sem geta valdið slysi,“
segja Almannavarnir. n
Ekki hlaupa um í óðagoti í jarðskjálfta
Á gosslóðum í Geldingadölum.
2 Fréttir 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ