Fréttablaðið - 03.08.2022, Page 4
Eldfjallafræðingur
segir að huga þurfi
að varaflugvelli til að
nota ef jarðeldar loki
aðkomu að flugvell-
inum í Keflavík.
Fjöldi annarra vega eru
á svæðinu sem geta
nýst eftir því hvernig
og hvar myndi gjósa og
hvernig hraun myndi
flæða.
Fjarlægðin til Mýra er
ekki lengri en til Kefla-
víkur frá borginni
þegar þessar sam-
göngubætur hafa átt
sér stað.
Halla Signý
Kristjánsdóttir,
þingmaður
Framsóknar-
flokksins
Mikið úrval til af
gólfteppum á lager
Kíktu við og saman finnum
við draumateppið á stigann þinn.
Helstu eiginleikar gólfteppanna
okkar eru mýkt, hlýleiki og
mikil gæði.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | 595 0570Finndu okkur á Facebook!
facebook.com/Parki.interiors
benediktboas@frettabladid.is
FÓTBOLTI Af þeim 2,3 milljónum
tísta sem fjölmiðlanefnd Bretlands,
OFCOM, skoðaði fengu Cristiano
Ronaldo og Harry Maguire lang-
f lestu móðganirnar á Twitter.
Nefndin fann y f ir 60 þúsund
móðgandi tíst, sem beindust f lest
að 12 einstaklingum, þar af 8 sem
spiluðu með Manchester United.
BBC greinir frá rannsókninni sem
The Alan Turing-stofnunin gerði í
samstarfi við nefndina.
Nefndin skoðaði tíst frá 13.
ágúst til 24. janúar og fékk Ronaldo
12.520 móðgandi tíst og Maguire
um níu þúsund. Marcus Rashford
fékk þriðju f lestu móðganirnar, eða
um þrjú þúsund.
Um 70 prósent leikmanna í
ensku úrvalsdeildinni urðu fyrir
aðkasti á Twitter þennan tíma
sem skoðaður var og 7 prósent leik-
manna fengu aðdróttanir hvern
einasta dag. n
Skotið á liðsmenn
United á Twitter
Cristiano Ronaldo að skora með
Manchester United.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þingmaður í samgöngunefnd
vill láta skoða möguleikann
á Mýrum í Borgarfirði sem
flugvallarstæði í ljósi jarð-
hræringa á Reykjanesi. Þörf
sé á varaflugvelli nálægt
borginni.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMGÖNGUMÁL Viðbragð og vara-
f lugvellir verða án vafa á dagskrá
umhverfis- og samgöngunefndar
þegar hún kemur saman, að sögn
Höllu Signýjar Kristjánsdóttur,
þingmanns Framsóknarflokksins
sem á sæti í nefndinni. „Það væri
óábyrgt að gera það ekki,“ segir hún.
Í ljósi þeirra miklu skjálftavirkni
og kvikuhræringa sem ganga nú yfir
á Reykjanesskaga hefur eldfjalla-
fræðingurinn Þorvaldur Þórðarson
varað við að báðar samgönguæðar
Reykjanessins, Reykjanesbrautin og
Suðurstrandarvegurinn, fari undir
hraun. Huga þurfi að því að byggja
upp f luginnviði annars staðar á
landinu.
Akureyrarf lugvöllur og Egils-
staðaflugvöllur gegna stöðu vara-
f lugvalla fyrir Keflavíkurflugvöll
og Halla segir að þangað yrði að
horfa fyrst um sinn ef Reykjanesið
lokast. „En svo verðum við að horfa
í alvöru á nýja kosti,“ segir hún og
nefnir Borgarfjörðinn sem álitlegan
kost, það er Mýrarnar, enda muni
samgöngur á Vesturlandi stórbatna
á komandi árum.
Á milli Reykjavíkur og Akureyrar
er 379 kílómetra vegalengd og 626
kílómetrar milli Reykjavíkur og
Egilsstaða. Án þess að draga úr
mikilvægi þessara varaf lugvalla
telur Halla mikilvægt að hafa annan
alþjóðaflugvöll í nálægð við höfuð-
borgarsvæðið. Akureyri og Egils-
staðir eigi þó áfram að gegna stöðu
varaflugvalla.
Hún segir Kef lavíkurf lugvöll
afar mikilvægan fyrir Reykjanesið
sem atvinnusvæði og íbúana sem
þar búa. En í ljósi stöðunnar þurfi
nú að segja það upphátt að þörf sé
á öðrum möguleikum samhliða
Keflavík.
Rannsóknir hafa staðið í Hvassa-
hrauni undanfarin ár en Halla
segir stöðuna gjörbreytta eftir jarð-
hræringarnar, sem byrjuðu árið
2019 og sérfræðingar telja að haldi
áfram næstu áratugi. Klára þurfi þó
skoðun á Hvassahrauni.
Annar möguleiki sem nefndur
hefur verið er í Árborg, helst milli
Selfoss og þorpanna Stokkseyrar og
Eyrarbakka. Hellisheiðin geri þann
möguleika þó síður fýsilegan vegna
veðurs. „Það er hægt að gera sam-
göngubætur til að liðka fyrir umferð
en Hellisheiðin fer ekki frá okkur og
það verða ekki gerð göng þar í gegn.
Það er ekki raunhæft,“ segir Halla.
Halla segir að enn hafi ekki farið
fram neinar rannsóknir á Mýrum
sem flugvallarstæði fyrir alþjóða-
f lugvöll né könnun á eignarhaldi
hentugra landsvæða. Auk Höllu
hefur hugmyndin verið rædd hjá
Pírötum á Vesturlandi. Á Mýrum sé
hins vegar stutt í borgina og verður
enn styttra með væntanlegum sam-
göngubótum.
Stefnt er að því að gerð Sunda-
brautar verði lokið árið 2030. Einn-
ig er verið að tvöfalda Vesturlands-
veginn.
„Fjarlægðin til Mýra er ekki lengri
en til Keflavíkur frá borginni þegar
þessar samgöngubætur hafa átt sér
stað,“ segir Halla. n
Ríkið kanni alþjóðaflugvöll á Mýrum
Á Mýrum í Borgarfirði er mikið flatlendi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
kristinnhaukur@frettabladid.is
NÁTTÚRUVÁ Vegagerðin telur ólík-
legt að hraun renni samtímis yfir
bæði Reykjanesbraut og Suður-
strandarveg. Starfsfólk fylgist hins
vegar daglega eða oftar með ástandi
vega þegar stórir skjálftar ríða yfir.
Þetta segir G. Pétur Matthíasson,
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
„Fjöldi annarra vega eru á svæðinu
sem geta nýst eftir því hvernig og
hvar myndi gjósa og hvernig hraun
myndi flæða,“ segir hann aðspurður
um flóttaleiðir ef til stórs goss kæmi.
Auk hinna fyrrnefndu vega nefnir
hann Krýsuvíkurveg, Grindavíkur-
veg, Bláalónsveg, Nesveg, Hafnaveg
úr Grindavík í Njarðvík, Vatnsleysu-
strandarveg og Vogaveg.
Sig u rðu r Ing i Jóha n n s son
innviða ráðherra sagði í fyrra, þegar
eldgos ógnaði Suðurstrandarvegi,
að horfa þyrfti til f leiri f lóttaleiða
af Reykjanesi.
G. Pétur segir hins vegar að önnur
skoðun á f lóttaleiðum hafi ekki
farið fram að vitneskju Vegagerðar-
innar. Áhættustjórnun í kringum
hamfarir er stjórnað af almanna-
varnadeild Ríkislögreglustjóra og
Vegagerðin tekur þátt í þeirri vinnu.
Þegar fyrir liggur í hverju hugs-
anlegar hamfarir felast er unnið
þverfaglega undir stjórn almanna-
varnadeildar og lagt mat á það í
hverju tjón á innviðum gæti falist
og hvaða varnir séu líklegastar til
að bera árangur.
G. Pétur segir að fram til þessa
hafi ferjusiglingar ekki verið skoð-
aðar af Vegagerðinni en kveður
þær að sjálfsögðu vera möguleika.
Bendir hann á að hægt sé að kalla
Vestmannaeyjaferjuna Herjólf III
hingað heim til Íslands ef talin sé
þörf fyrir það.
„Skip til ferjusiglinga á þessu haf-
svæði liggja almennt ekki á lausu
en Vegagerðin þekkir vel til stöð-
unnar,“ segir G. Pétur. n
Ferjusiglingar eru möguleiki ef leiðirnar á Reykjanesi lokast
G. Pétur
Matthíasson,
upplýsingafull-
trúi Vegagerðar-
innar
4 Fréttir 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ