Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 11
Við stefnum á að
tífalda framleiðsluna á
næstu fimm til tíu
árum en viskí er lang-
tíma verkefni.
Edda Rún Ragnarsdóttir, verkefna-
stjóri og innanhússarkitekt hjá ERR
Design, segir að miklar breytingar
séu í farvatninu hjá fyrirtækinu.
Hún hefur gaman af hreyfingu og
öllu sem tengist hönnun.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Hreyfing, stuttar og lengri göngur
og að ganga á fjöll, skíði og golf. Allt
sem snýr að hönnun, innanhúss,
arkitektúr og myndlist. Einnig hef
ég mjög gaman af að elda góðan mat
og ferðast.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Think like a Monk eftir Jay Shatty,
dásamleg bók sem ég leita í aftur og
aftur og veitir mér innblástur í að
verða besta útgáfan af sjálfri mér.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum? Breyta fyrirkomulaginu í
fyrirtækinu mínu ERR Design. Ég
mun breyta til núna í byrjun ágúst
og byrja í nýrri vinnu en mun halda
áfram að taka að mér verkefni í
ERR Design, því ég fæ aldrei nóg
af sköpunargleðinni og hönnun.
Ég fór líka í nám síðasta vetur með
vinnu í verkefnastjórnun í opna
háskólanum í HR sem var krefjandi
en skemmtilegt og ég stækkaði um
nokkur númer persónulega við
það.
Hvaða áskoranir eru fram undan?
Nýtt starf í byrjun ágúst sem ég
hlakka mikið til að takast á við,
kynnast og vinna með frábæru
fólki að þróun, greiningu og hönnun
skrifstofurýma fyrir FSRE. Ég ætla
líka að halda áfram að læra og fara
í samningatækni í vetur í HR sem
mun nýtast mér vel í starfi og lífi.
Einnig mun ég sitja minn seinni
vetur í stjórn FKA (Félag kvenna í
atvinnulífinu) þar sem mörg spenn-
andi verkefni eru á borðinu.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Úff, þetta er erfið spurning, eftir
tíu ár verð ég leiðtogi í mínu eigin
lífi og starfi og ég sé mig sem fram-
kvæmdastýru. Hamingjusöm, með
styrka innri ró og kröftugan lífs-
förunaut mér við hlið. Dætur mínar
orðnar fullorðnar og sterkar stelpur
með stóra drauma og mig langar að
sjá marga góða vini og stóra fjöl-
skyldu í kringum mig, gleði og
ferðalög.
Ef þú þyrftir að velja annan starfs-
frama, hvað yrði fyrir valinu?
Ég myndi vilja vera kokkur, mig
dreymir um að reka lítið hótel við
ströndina í Algarve í Portúgal, þar
sem ekkert herbergi yrði eins og
ég hannaði allt sjálf. Dásamlegur
matur, hugleiðsla, jóga og golf.
Hver er uppáhaldsborgin þín?
Ég á mér tvær og lærði innanhúss-
arkitektúr í þeim báðum, bjó tvö ár í
Barcelona og þrjú ár í London, finnst
ég alltaf vera komin heim þegar ég
kem til Barcelona og London. ■
Finnst hún vera komin heim þegar
hún fer til London og Barcelona
Handverksbrugghúsið Eim-
verk er fjölskyldufyrirtæki
sem var stofnað með það
markmið að selja íslenskt
viskí úr íslensku hráefni.
Meðeigandi fyrirtækisins
fagnar nýju regluverki er snýr
að sölu frá brugghúsum en
segir að þó sé langt í land svo
við séum á pari við regluverk
sem þekkist víða í Evrópu.
magdalena@frettabladid.is
Sigrún Jenný Barðadóttir, stjórnar-
formaður og meðeigandi hand-
verksbrugghússins Eimverks, segir
að nýja regluverkið þar sem sala frá
brugghúsunum var heimiluð hafi
mikla þýðingu fyrir Eimverk.
„Fyrst og fremst gefur þetta okkur
kost á að sinna heimamarkaðnum
betur. Bæði gagnvart túristum og
Íslendingum. Það hefur verið bein-
línis bagalegt og kjánalegt að geta
ekki sinnt einfaldri þörf eins og að
selja viskí, sem er oft gefið sem gjöf,
eða túristum sem vilja taka með sér
heim og njóta á ferðalögum,“ segir
Sigrún Jenný og bætir við að ÁTVR
hafi engan veginn getað sinnt svona
vöruflokkum með margar sérvörur
og sérútgáfur og úrval af viskíi í
ÁTVR er mjög takmarkað.
Aðspurð hvort hún vilji sjá f leiri
breytingar segir Sigrún Jenný að
svo sé og það vanti töluvert upp
á að Ísland verði á pari við þróun
erlendis þegar kemur að stuðningi
við staðbundna framleiðslu og smá-
framleiðendur.
„Eitt af megin baráttumálunum
sem við munum berjast fyrir á
næstunni í samstarfi við Samtök
handverksbrugghúsa og samtök
eimingarhúsa er að fá lækkun á
áfengisgjöldum fyrir smáframleið-
endur, EES-samningur gerir ráð
fyrir þessu og í dag nýta öll lönd
Evrópu þessa heimild nema Ísland
og Svíþjóð.“
Eimverk er fjölskyldufyrirtæki,
stofnað með þann tilgang að fram-
leiða íslenskt viskí frá grunni úr
íslensku hráefni. Hugmyndin að
fyrirtækinu mótaðist og fyrstu próf-
anir og tilraunir hófust 2009. Fyrir-
tækið var síðan formlega stofnað
2011 en vöruþróun og uppbygging
verksmiðju tók þrjú ár til viðbótar.
Fyrsta varan okkar, Vor Gin, kom
ekki á markað fyrr en 2014 og Flóki
viskí ekki fyrr en 2018. Við seljum
víða í dag en okkar stærstu mark-
aðir eru Þýskaland, Bandaríkin,
Kína og Japan.
„Eftirspurn er góð og við sjáum
fram á góðan áframhaldandi vöxt.
Við notum í dag um 100 tonn af
íslensku byggi árlega í framleiðslu á
Flóka viskí, úr því fást um 100 þús-
und flöskur sem í dag eru fluttar til
25 landa.“
Sigrún bætir við að byggið sem
notað er í framleiðsluna komi frá
bændum á Suðurlandi. „Við leggjum
mikið upp úr því að nota þetta frá-
bæra íslenska hráefni, það skapar
okkur sérstöðu og er grunnurinn
í árangri okkar. Sennilega er Flóki
viskí grænasta viskí í heimi.“
Sigrún segir að tækifæri til kynn-
inga og auglýsinga séu afar snúin
fyrir innlenda framleiðendur á
meðan erlendir framleiðendur koma
sínum skilaboðum til Íslendinga
með ýmsum hætti.
„Vefverslun er ekki endilega lykil-
mál fyrir okkur, en það er nokkuð
ljóst að taka þarf á þeim málum
og jafna rétt innlendra og erlendra
aðila.“
Samhliða framleiðslu hefur mót-
taka gesta í verksmiðjuheimsókn
verið vaxandi þáttur í rekstrinum.
„Distillery visit til viskíframleið-
enda er þekkt víða og eftirspurn eftir
heimsóknum til okkar er sterk. Við
fáum um 5.000 gesti árlega í heim-
sóknina sem er einn af vinsælustu
viðkomustöðum ferðamanna á
höfuðborgarsvæðinu.“
Sigrún segir að rekstur Eimverks
hafi gengið nokkuð vel. Fyrirtækið
hafi skilað hagnaði frá upphafi ef frá
er talið vandræðaárið 2020 vegna
Covid. Félagið hafi komist nokkuð
vel í gegnum það með þeirri aðstoð
sem var í boði frá yfirvöldum og
viskíið náði að eldast á meðan.
Spurð hvert fyrirtækið stefni segir
Sigrún Jenný að stefnan sé fyrst og
fremst tekin á nýja markaði. „Við
erum að vaxa, fórum nýlega inn á
Kínamarkað og höfum tekið þar þátt
í sýningu og kynningum undanfarin
ár með stuðningi Íslandsstofu. Við
stefnum á að tífalda framleiðsluna
á næstu fimm til tíu árum en viskí
er langtímaverkefni. Við erum líka
að hugsa í kynslóðum og höfum
plantað eikartrjám til að geta orðið
sjálf bær um eikartunnur á næstu
öld.“ ■
Nýja regluverkið haft mjög mikla þýðingu
Nám:
BA innanhússarkitekt frá London
Guildhall University, MBA frá HR,
verkefnastjórnun með alþjóðlegri
D-vottun frá HR og PNG frá Key
Habits.
Störf:
Innanhússarkitekt og verkefna-
stjóri hjá ERR Design.
Fjölskylduhagir:
Ég og dætur mínar, Eva Silfá, 13 ára
og Elísa Saga, 10 ára.
■ Svipmynd
Edda Rún Ragnarsdóttir
Edda Rún
Ragnarsdóttir
segir að bókin
sem hafi haft
hvað mest áhrif
á hana sé Think
Like a Monk
eftir Jay Shetty.
MYND/AÐSEND
Sigrún Jenný
Barðadóttir
segir að nýtt
regluverk muni
fyrst og fremst
hjálpa þeim að
sinna heima-
markaðnum
betur.
MYND/AÐSEND
Flóki viskí er þekktasta varan sem Eimverk selur. MYND/AÐSEND
MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2022