Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Það er
fyrir löngu
orðið
bannað
að tala um
hvort og
hve illa
getur farið
um minni-
hlutahópa
í dreifbýli.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur
@frettabladid.is
Rúmum
tveimur
árum eftir
að vinna
hófst við
verkefnið
hefur fjár-
mögnun
verkefna-
stjórnar
við það
ekki verið
tryggð.
Linda vinkona mín vinnur á Bryggjunni í Grinda
vík. Þegar stóri skjálftinn reið þar yfir um helgina
óttaðist hún um líf sitt og þeirra ferðamanna sem
þar voru staddir. Eins og þú hefur séð í fréttum
hrundi allt lauslegt og lá brotið og bramlað um
öll gólf. Húsið stendur þó og stenst líklega talsvert
stærri skjálfta en þennan þótt ég geri ekki lítið úr
upplifun vinkonu minnar af atburðinum. Það er þó
ekki sjálfgefið að lifa af náttúruhamfarir og víða í
heiminum hefðu mannvirki hrunið við skjálfta sem
þennan.
Eins og þér er kunnugt um, sem fagráðherra
mannvirkjamála, tökum við upp evrópska staðla
hér á landi, sem segja til um þolhönnun, meðal
annars vegna jarðskjálftaálags. Okkar bestu sér
fræðingar skrifa svo íslenska viðauka við þá, sem
herða á kröfum vegna séríslenskra aðstæðna. Þeir
tryggja með öðrum orðum að hús eru byggð til að
standast jarðskjálftaálag.
Undanfarin tvö ár hefur staðið yfir endurskoðun
58 evrópskra þolhönnunarstaðla, þar af sex sem
varða jarðskjálfta. Hún felur í sér kröfu um endur
skoðun íslensku þjóðarviðaukanna líka til að
tryggja að nýjasta þekking okkar eigin sérfræðinga
rati inn í kröfukafla við þolhönnun íslenskra
mannvirkja. Staðlaráð Íslands fer með verkefnið
samkvæmt lögum. Það er hins vegar orðið verulegt
áhyggjuefni hvað því hefur verið tekið af mikilli
léttúð í ráðuneytum mannvirkjamála. Rúmum
tveimur árum eftir að vinna hófst við verkefnið
hefur fjármögnun verkefnastjórnar við það ekki
verið tryggð. Eingöngu er um að ræða brot kostn
aðar við verkefnið því sérfræðingar og fyrirtæki
þeirra gefa vinnu sína og sérfræðiþekkingu. Það er
eðli staðlastarfs.
Að óbreyttu breytist því íslensk löggjöf þannig
á komandi misserum að hér taka sjálfkrafa gildi
grunnkröfur um þolhönnun mannvirkja án sérís
lenskra krafna sem varða til dæmis jarðskjálfta,
snjóálag eða vindálag. Þá getum við Linda og aðrar
ömmur þessa lands farið að biðja bænirnar okkar. ■
Hæ, Sigurður Ingi
Helga Sigrún
Harðardóttir
framkvæmdastjóri
Staðlaráðs Íslands
ser@frettabladid.is
Kvefpest
Alveg á sama hátt og kóróna
veiruskrattinn barst á svip
stundu til Íslands frá skíðasvæð
unum í Ölpunum í febrúar 2020
eru nú taldar vera yfirgnæfandi
líkur á því að kvef pestarfjandi
komi til landsins á næstu dögum
og vikum þegar Íslendingar fara
að skila sér frá sólarströndum
SuðurEvrópu. Hitasvækjan þar
í löndum hefur verið svo stæk
og svaðaleg að heili stabbinn af
sólarlandaförum hefur neyðst
til að flýja strendur og útisvalir
vegna bugunar og andnauðar. Og
þá er ekkert um annað að ræða
en að leita skjóls í loftræstum
hótelherbergjum og snúa
kælinguna í botn.
Forkæling
Æ fleiri dæmi heyrast af frón
búum sem hafa forkælst vegna
þessa – og bara hreint alveg ógur
lega í mörgum tilvikum, en liðið
hafi lagst á beddann, öfugum
megin veggjar en það ætlaði
sér – og legið þar í kuldahrolli og
innkulsi allt til enda ferðarinnar.
Eru sögur sagðar af því að varla
hafi heyrst í hátalarakerfum
flugstöðvanna vegna hósta,
hryglna, korra og snörls þegar
mannskapurinn hafi verið
að tygja sig heim á leið eftir
þessar líka ófarirnar. Má ætla
að kvefpestar faraldur sé yfir
vofandi á Íslandi á næstunni af
þessum sökum. ■
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Hinsegin dagar eru gengnir í
garð. Mörg ár eru síðan Hin
segin dagar og auðvitað sér
staklega gleðigangan sjálf, náði
þeim árangri að vera ekki síður
sigurganga en baráttuganga, oftast með
tugum þúsunda þátttakenda sem mæta til
að fagna fjölbreytileika mannlífsins.
Þessi árlega hátíð hefur átt sinn þátt í því
að samkynhneigðir teljast tæpast lengur til
undirokaðs minnihlutahóps á Íslandi. Sam
kynhneigðir komast hér til æðstu metorða,
mennta sig, kaupa hús, eignast börn. Auð
vitað verður fólk fyrir aðkasti, en í svo miklu
minni mæli en margir aðrir minnihluta
hópar sem hér búa. Þess vegna eru Hinsegin
dagar svo frábærir með áherslu sinni á
fjölbreytileikann því fjölbreytnin felst líka
í þjóðerninu, húðlitnum, stjórnmálaskoð
unum, trú og trúleysi.
Nú bæta Hinsegin dagar um betur og
blása til ráðstefnu sem hefst í Grófinni í
dag og lýkur á morgun. Fjöldi áhugaverðra
erinda eru auglýst og mörg þeirra geta,
þegar að er gáð, leitt hugann að aðstæðum
annarra minnihlutahópa. Eitt erindanna
fjallar um samkynhneigð á landsbyggðinni.
Hér er efni sem orðið hefur of mikið útund
an í byggðaumræðunni. Það er fyrir löngu
orðið bannað að tala um hvort og hve illa
getur farið um minnihlutahópa í dreif býli,
jafnvel þótt um þekkt alheimsvandamál sé
að ræða.
Hinsegin hreyfingin getur kennt okkur
svo margt sem við eigum enn ólært. Til
dæmis um lífsbaráttu hinsegin fólks sem
yfirgaf átthagana og f lutti til Reykjavíkur,
ýmist til að f lýja ofsóknir eða til að samein
ast samfélagi fólks sem útilokað var að orðið
gæti til í dreif býlinu. Sambærileg dæmi eru
til um flóttafólk sem flúði til Íslands undan
stríði og holað var niður úti á landi, jafn
vel á mjög afskekktum stöðum. Fólki frá
Úkraínu, Sýrlandi, Afganistan og Palestínu
er tvístrað vítt og breitt um landið og jafnvel
á staði sem eru svo afskekktir og fámennir
að útilokað er að það geti átt myndarlegt
samfélag saman, talað móðurmál sitt hvert
við annað, iðkað trú sína saman og haldið
menningu sína í heiðri hvert með öðru.
Þótt samkynhneigðum hafi blessunarlega
aldrei verið smalað með skipulegum hætti
í litlum flokkum út á land, líkt og enn er
tíðkað með aðra minnihlutahópa, geta þau
kennt okkur sitthvað um reynslu sína af því
að þurfa lífsnauðsynlega á fjölbreyttu sam
félagi að halda í sínu nærumhverfi. ■
Gleðilega hátíð
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR