Fréttablaðið - 03.08.2022, Page 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2022
Fólk ætti að fara varlega þegar
það verslar á netinu og þekkir ekki
verslunina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Samkvæmt könnun sem gerð var
í Svíþjóð hafa fjórir af hverjum tíu
Svíum sem verslað hafa á netinu
ekki fengið vöruna sem þeir
pöntuðu, fengið ranga vöru eða
voru blekktir af fölsuðum netversl-
unum. Þótt netverslun sé jafnan
afar jákvætt fyrirkomulag eru til
brestir þar eins og annars staðar.
Fólk veit yfirleitt ekki hvert það á
að leita verði það fyrir því að versla
við falsaða netverslun og situr því
uppi með skaðann.
Ef verslunin er óþekkt ætti fólk
að skoða heimasíðu hennar og
athuga hvort notaðar eru þekktar
greiðsluleiðir. Sömuleiðis skal
skoða umsagnir viðskiptavina,
til dæmis á Facebook og hvort
fylgjendur séu margir. Ganga skal
úr skugga um hvort auðvelt sé að
hafa samband við netverslunina.
Allar netverslanir eiga að gefa
upp heimilisfang, símanúmer og
netfang. Auk þess eiga þær að hafa
upplýsingar um sögu fyrirtækisins
aðgengilegar.
Of gott verð
Viðvörunarbjöllur ættu að klingja
ef ekki er mikið vöruúrval í verslun-
inni og ef tilboð eða verð er of gott
til að vera satt. Ef tungumálið á
síðunni lítur skringilega út ætti
fólk að vera sérstaklega varkárt.
Falsaðar netverslanir eru oft reknar
með mikilli markaðssetningu á
samfélagsmiðlum í stuttan tíma
áður en þær hverfa. Ef síðan hefur
bara verið til í nokkrar vikur eða
mánuði er ástæða til að efast. ■
Blekktir á netinu
Farsæl leið að efri árum
Janus heilsuefling byggir starfsemi sína á einstaklega áhugaverðum niðurstöðum úr
doktors verkefni Janusar Guðlaugssonar, PhD íþrótta- og heilsufræðings. Rannsóknin
sýndi greinilegan ávinning eldri borgara af heilsueflingu og fræðslu um næringu.
Janus Guðlaugsson (annar frá vinstri) er hér ásamt fríðum hópi starfsfólks Janusar heilsueflingar. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR JÓHANNSSON
Janus heilsuefling er ráðgjafa- og
þjónustufyrirtæki sem hefur það að
markmiði að stuðla að bættri heilsu
og betri lífsgæðum eldri borgara.
Verkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+
- Leið að farsælum efri árum hófst
árið 2017 í Reykjanesbæ og byggir á
doktorsverkefni Janusar sem hann
vann á árunum 2007-2014. „Megin-
markmið doktorsverkefnisins var
að sýna fram á að hægt væri að færa
ýmsar heilsufarslegar breytur til
betri vegar hjá eldri einstaklingum
með markvissri þjálfun. Hnitmiðuð
fræðsla um æskilega næringu fyrir
þennan aldurshóp var einnig lykil-
þáttur í þessu ferli,“ segir dr. Janus
Guðlaugsson.
Ótvíræðar niðurstöður
Doktorsverkefni Janusar var ætlað
að sýna fram á að snúa mætti
öldrunarferlinu við um tíma
með markvissum heilsutengdum
forvörnum. Enda kom það í ljós
að heilsa hinna eldri batnaði til
muna, afkastageta þeirra efldist
og hreyfigetan varð betri. Vöðva-
massinn jókst og fitumassinn
minnkaði auk þess sem blóð-
þrýstingur lækkaði verulega og
blóðgildi færðust til betri vegar.
Rannsóknin stóð yfir í eitt og
hálft ár og voru niðurstöðurnar
ótvíræðar. Þátttakendur voru 115
talsins og meðalaldur um 80 ár.
„Helmingur hópsins tók fyrst þátt
sem viðmiðunarhópur og breytti
ekki daglegum venjum sínum í 6
mánuði á meðan hinn helmingur-
inn, þjálfunarhópurinn, hlaut
þjálfun í 6 mánuði.
Áður en þjálfun hófst voru báðir
hópar mældir. Engan mun var að
finna milli hópanna í upphafi. Eftir
sex mánaða þjálfun var marktækur
munur á flestum mælibreytum. Á
sama tíma stóð viðmiðunarhópur
í stað eða niðurstöður færðust til
verri vegar og munur milli hópanna
kom í ljós. Þegar viðmiðunarhópur
fékk sömu þjálfun 6 mánuðum
síðar færðust niðurstöður hjá þeim
til betri vegar á sama hátt og hjá
þjálfunarhópi.
Þegar sömu hópar voru mældir
þremur árum síðar kom í ljós að
flestar breyturnar höfðu færst
til baka í upphaflegt horf eða
versnað. Við greiningu kom í ljós
að um 50% þátttakenda höfðu
hætt styrktarþjálfuninni og veru-
lega dró úr daglegri hreyfingu.
Þetta sagði okkur að sex mánaða
þjálfun væri of stutt heilsufarsferli
til að breyta lífsstíl eldri einstakl-
inga. Þess vegna bjóðum við upp á
tveggja ára þjálfunarferli hjá Janus
heilsueflingu sem skipt er upp í
fjögur sex mánaða stigvaxandi
þrep með fjórum markvissum
fræðsluerindum í hverju þrepi þar
sem næring er ráðandi þáttur.“
B Ä S T A I T E S T
Bäst-i-Test 2022.s
e
BESTA
SÓLARVÖRNIN
7 ár
Í RÖÐ
Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni
og víðar | nánar á evy.is og celsus.is