Fréttablaðið - 03.08.2022, Page 17
Vissar fæðutegundir inni-
halda efnið tryptófan en
gleðihormónið serótónín
er myndað úr tryptófani.
Það er því spurning hvort
hægt sé að bæta skapið með
neyslu þessarar fæðu.
sandragudrun@frettabladid.is
Eins og flest vita er serótónín
taugaboðefni sem talið er jafna
skapsveiflur. Það er talið að það
hjálpi til við að koma reglu á
svefninn og létti lundina. Rann-
sóknir hafa stutt þá kenningu að
serótónínmagn hafi áhrif á skap og
hegðun og efnið er almennt tengt
því að líða vel og lifa lengur. Talið
er að fólk sem glímir við þunglyndi
hafi færri eða ónæmari serótónín-
viðtaka og þess vegna er þunglyndi
oft meðhöndlað með lyfjum sem
auka áhrif serótóníns í heilanum.
Serótónín myndast úr amínó-
sýrunni tryptófani. Við meltingu
er tryptófani breytt í serótónín og
því er líklegt að fæðutegundir sem
innihalda tryptófan auki magn
serótóníns í heilanum. Það er því
ekki úr vegi að auka neyslu matar
sem inniheldur tryptófan til að
létta lundina. Rannsóknir hafa
sýnt að lítið magn af tryptófani í
mataræði fólks lækkar serótónín-
magn í heilanum. Það skal þó tekið
fram að ekki eru komnar niður-
stöður um hversu mikil áhrif þetta
hefur og að borða tryptófanríkan
mat er ekki lausn á alvarlegu þung-
lyndi.
Eftirfarandi matvæli gætu
hjálpað til við að auka framleiðslu
serótóníns:
Fæðutegundir sem gætu aukið hamingjuna
Egg, ostur, hnetur og fræ innihalda mikið af tryptófani sem eykur serótónín-
framleiðslu og getur haft áhrif á skap og hegðun. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ananas inni-
heldur mjög
mikið tryptófan
og er auk þess
fullur af víta-
mínum.
Egg
Samkvæmt rannsóknum frá árinu
2015 getur próteinið í eggjum
aukið magn tryptófans í blóðinu
verulega.
Ostur
Ostur er mjög góð uppspretta tryp-
tófans. Það er tilvalið að búa til
pastasósu sem inniheldur egg og
ost þar sem mjólk inniheldur líka
tryptófan.
Ananas
Ananas inniheldur mjög mikið
tryptófan. Auk þess er ananas
fullur af vítamínum og má borða
hann ferskan eða nota í matargerð
eða eftirrétti í stað sykurs. Mest af
tryptófani er úr ferskum ananas.
Tófú
Sojavörur eru ríkar af tryptófani.
Það er hægt að nota tófú í næstum
hvaða uppskrift sem er í stað
annarra prótíngjafa. Tófú er því
tilvalinn tryptófangjafi fyrir græn-
metisætur og grænkera.
Hnetur og fræ
Hnetur og fræ innihalda tryp-
tófan. Rannsóknir sýna að lúka af
hnetum á dag dregur úr líkum á
dauðsföllum af völdum krabba-
meins, hjartasjúkdóma og önd-
unarfærasjúkdóma. Það er því til
mikils að vinna að borða hnetur
og fræ.
Lax
Flestir vita að lax er ríkur af
ómega-3 fitusýrum og talinn mjög
holl fæða. En lax er líka ríkur af
tryptófani. Ofnbakaður lax með
osti getur þess vegna verið upp-
skrift að hamingju.
Kalkúnn
Kalkúnn inniheldur mikið magn
tryptófans. Í 100 grömmum af
kalkúni eru 252 milligrömm af
tryptófani.
Margir hafa talið að tryptófan í
kalkúnum geri það að verkum
að fólk verður syfjað eftir stóra
kalkúnamáltíð en tryptófan
hjálpar líka til með svefn. En aðrir
segja að til þess að tryptófan hafi
þau áhrif þurfi mun meira magn af
því í fæðunni.
Gott að borða kolvetni samhliða
Það er ekki sannað að tryptófanið
eitt og sér dugi til að auka serótónín
í líkamanum. Líklegt er að neysla
annarra matvæla samhliða þurfi
að vera til staðar til að hjálpa til við
það. Kolvetni valda því að líkaminn
losar meira insúlín, það stuðlar
að frásogi amínósýra og skilur
tryptófan eftir í blóðinu. Neyti fólk
matar sem er ríkur af tryptófani og
jafnframt kolvetna samhliða því, þá
gæti serótónínframleiðslan aukist.
Það er samt vitað að tryptófanið
í matvörum þarf að keppa við
aðrar amínósýrur til að frásogast
inn í heilann. Líklega mun neyslan
á tryptófanríkum mat ekki hafa
mjög mikil áhrif á serótónínmagn
líkamans, ólíkt til dæmis bæti-
efnum sem innihalda hreinsað
tryptófan og hafa því meiri áhrif á
serótónínmagnið. En með því að
borða ofantaldar fæðutegundir
reglulega ásamt hollum kolvetnum
þá eykst möguleikinn á góðum
árangri. n HEIMILD: HEALTHLINE.COM
Ég tek eitt hylki á
morgnana með
vítamínunum og lýsinu.
Einfaldara verður það
ekki. Ég finn að þetta
hefur áhrif á húðina,
hárið og neglurnar og
það kemur ekki til
greina að hætta að taka
þetta inn.
Karólína Natalía
Karólína Natalía Karlsdóttir
hefur alla ævi glímt við þurra
húð, þunnt og líflaust hár og
lélegar neglur. Hún byrjaði að
taka inn bætiefnið Húð, hár
og neglur frá ICEHERBS og
finnur gríðarlegan mun.
„Þetta hefur alltaf fylgt mér. Ég hef
alltaf verið með mjög þunnt og
fíngert hár sem var lítið líf í. Það lá
frekar flatt og var sleipt viðkomu.
Ég fann það líka sérstaklega eftir
að ég fór að eldast og hárlosið varð
enn meira en áður,“ segir Karólína,
sem er 41 árs og starfar við sölu- og
markaðsmál hjá Sólar ræstingu.
Karólína fór meðal annars í sér-
staka hármeðferð sem hafði ekki
þau áhrif sem hún vonaðist eftir.
„Neglurnar voru að sama skapi
alltaf lélegar. Þær tættust upp og ég
þurfti alltaf að passa að hafa þær
stuttklipptar og setja á þær nagla-
lakk til að styrkja þær. Svo var ég
líka alltaf þurr í framan. Maður
finnur það sérstaklega þegar
maður er að meika sig eða púðra,
þá kemur gróf áferð og þurrka-
blettirnir verða meira áberandi. Ég
hafði prófað alls konar rakakrem
en ekkert var nógu öflugt,“ segir
Karólína.
Það var ekki fyrr en Karólína
byrjaði að taka inn Húð, hár og
neglur bætiefnið frá ICEHERBS,
sem hún fór að finna almenni-
legan mun á húðinni, sem og hári
og nöglum. „Ég sá þetta bara á
sölustandi í búðinni og greip með
mér. Þetta var eitthvað nýtt sem ég
hafði ekki séð áður og ég ákvað að
prófa,“ segir Karólína um Húð, hár
og neglur frá ICEHERBS.
Fann mun áður en glasið
kláraðist
„Það tók smá tíma fyrir mig að
finna mun en ég man að þegar ég
var búin með eitt glas af þessu þá
hafði ég fundið nægan mun til að
kaupa annað glas og halda áfram.
Það er nú komið tæpt ár síðan ég
keypti fyrsta pilluglasið og ég finn
mjög mikinn mun á húðinni, en
líka nöglum og hári. Ég er ekki þurr
í framan í dag og fæ ekki lengur
þurrkabletti. Ég nota sömu snyrti-
vörur og áður og þær gefa mér
núna jafna áferð á húðina.
Neglurnar eru líka mun sterkari
en áður og þær tætast ekki lengur
upp. Svo er hárið mun þykkara og
líflegra. Ég finn að ég fer minna úr
hárum og hárgreiðslukonan mín
segir mikinn mun á mér. Ég er að fá
fullt af nýjum hárum, sérstaklega
að framan. Ég finn það líka sjálf að
hárið er heilbrigðara.“
Bætiefnið kemur í hylkjaformi
og er einstaklega þægilegt inntöku.
„Ég tek eitt hylki á morgnana með
vítamínunum og lýsinu. Ein-
faldara verður það ekki. Ég finn að
þetta hefur áhrif á húðina, hárið
og neglurnar og það kemur ekki til
greina að hætta að taka þetta inn,“
segir Karólína.
Náttúruleg blanda úr
íslenskum þörungum
Húð, hár og neglur er öflug og nátt-
úruleg þarablanda úr íslenskum
sæþörungum. Hylkin eru stútfull
af steinefnum og vítamínum sem
hafa ríkuleg áhrif á húð, hár og
neglur. Sæþörungar eru þekkir sem
ofurfæða hafsins. Þörungar eru
þekktir fyrir virk áhrif sín á húð,
hár og neglur. Þeir hafa gríðarlega
hreinsandi áhrif á líkamann og
innihalda ríkulegt magn steinefna
og trefja ásamt joði. n
Húð, hár & neglur frá ICEHERBS
fæst í öllum apótekum og heilsu-
vöruverslunum, Hagkaupum,
Nettó og Fjarðarkaupum. Sjá
nánar á iceherbs.is.
Líflegra hár, sterkari neglur og mýkri húð
Karólína sér ekki eftir að hafa prófað húð, hár og neglur, bætiefnið frá ICEHERBS. Hárið er nú þykkara, húðin mýkri og
neglurnar mun sterkari. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2022