Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 20
Ten Hag segir
Martinez vera
algjöran stríðs-
hund.
Hlaut
orðu frá
drottn-
ingunni
fyrir
baráttu
sína
gegn
kynþátt-
aníð.
Yngsti leikmaðurinn
til að skora 50 mörk
í efstu deild Þýska-
lands til þessa.
Seldi ís á
götum Brasil-
íu sem krakki
til að létta
undir með
móður
sinni.
16 Íþróttir 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR
Það er loksins komið að því. Eftir sumarfrí í ensku
úrvalsdeildinni verður flautað til leiks á nýju tíma-
bili á föstudaginn næstkomandi. Félög deildarinnar
hafa verið á fullu á félagsskiptamarkaðnum í sumar.
Ný andlit bætast við leikmannahópana og gamal-
kunnug andlit skipta um aðstæður innan deildar-
innar. Ljóst er að baráttan á toppnum verður hörð
og fór Fréttablaðið yfir nýjar viðbætur í leikmanna-
hópum stærstu sex liðanna í deildinni.
aron@frettabladid.is
Eiga að
hrista upp í
hlutunum
Richarlison
25 ára sóknarmaður Keyptur frá
Everton á 60 milljónir punda.
Þaulreyndur leikmaður í ensku
úrvalsdeildinni sem hefur loks
tekið skrefið frá
Everton eftir
að hafa verið
orðaður frá
félaginu
undanfarin
sumur. Richarlison á að baki
173 leiki í ensku úrvalsdeildinni
og hefur skorað 48 mörk í þeim
leikjum. Kemur til með að auka
breiddina í fremstu víglínu
Tottenham sem var fyrir
mjög vel skipuð. Richarlison
hefur það orð á sér að vera
vandræðagemsi innan vallar
sem á oft erfitt með að hafa
stjórn á skapi sínu.
Lisandro Martinez
24 ára miðvörður Keyptur
frá Ajax á rúmar 46 milljónir
punda.
Manchester
gat ekki annað
en fengið
styrkingu í varnarlínuna eftir
síðasta tímabil en árangurinn þar
var langt undir væntingum. Erik
ten Hag, nýr knattspyrnustjóri
liðsins, leitar til gamalkunnugs
lærlings í Lisandro Martinez sem
spilaði undir stjórn hans
á sínum tíma í Ajax. Ten
Hag hefur mikla trú á
Martinez sem mun án
efa gera tilkall til sætis
í byrjunarliði Rauðu
djöflanna.
Raheem Sterling
27 ára kantmaður Keyptur frá
Manchester City á rúmar 47
milljónir punda.
Skrifaði undir langtíma-
samning við Chelsea sem
hefur með honum fengið inn
reyndan leikmann sem kann að vinna ensku úr-
valsdeildina. Á tíma sínum hjá Manchester City
varð Sterling Englandsmeistari fjórum sinnum.
Þessi enski landsliðsmaður þekkir umhverfið
og kröfurnar í ensku úrvalsdeildinni vel eftir
tíma sinn hjá Manchester City sem og Liverpool.
320 leikir í deild þeirra bestu, 109 mörk og 56
stoðsendingar tala sínu máli og
Sterling mun án efa styrkja
lið Chelsea sem er að ganga
í gegnum miklar breytingar
þessa mánuðina.
Erling Braut Haaland
22 ára sóknarmaður
Keyptur frá Bo-
russia Dortmund á
rúmar 85 milljónir
punda.
Án efa
stærstu félagsskipti
sumarsins hingað
til. Gulldrengurinn
frá Noregi
hefur undan-
farin ár raðað inn
mörkum hjá Bo-
russia Dortmund
í Þýskalandi. Þar
skoraði hann 85
mörk í 88 leikjum og
nú mun hann reyna
að fóta sig hjá Manc-
hester City þar sem
hann fetar í fótspor
föður síns. Það er
gríðarlega mikil pressa á
þessum unga leikmanni
og ekki allir tilbúnir að spá
flugeldasýningu um leið.
Eitt er þó víst og það er að
Haaland kann að skora mörk,
tölfræðin talar fyrir sig.
Tileinkar
mörk sín
móður
sinni sem
hringir í hann
fyrir hvern
einasta leik.
Gabriel Jesus
25 ára sóknarmaður Keyptur á 45 millj-
ónir punda frá Manchester City.
Sá leikmaður sem kemur inn í tíma-
bilið í ensku úrvalsdeildinni á hvað mestu
skriði eftir undirbúningstímabilið. Jesus er
hugsaður sem nían í Arsenal sem
hefur sárlega vantað eina slíka.
Þessi skemmtilegi leikmaður
veit hvað enska úrvalsdeildin
snýst um, hann þekkir knatt-
spyrnustjóra Arsenal, Mikel
Arteta, frá tíma þeirra saman
hjá Manchester City og
kemur með sjálfs-
traustið í botni inn
í fyrsta leik liðsins
gegn Crystal Palace
á föstudaginn.
Var á blaði hjá
erkifjendunum
í Manchester
United en valdi
Liverpool.
Darwin Nunez
23 ára sóknarmaður Keyptur frá Benfica á 85 milljónir punda.
Ein af stærstu félagsskiptum sumarsins. Það ríkir
mikil spenna í Bítlaborginni fyrir komu Nunez
sem fór á kostum með portúgalska liðinu
Benfica þar sem hann skoraði 47 mörk í
84 leikjum. Nunez kemur inn í lið Liver-
pool á tímapunkti þar
sem stórar breyt-
ingar eru að
eiga sér stað
á sóknarlínu
liðsins. Sadio
Mané, einn af
lykilmönnum
liðsins undan-
farin ár, er farinn
til Bayern München í
Þýskalandi. Samkeppn-
in er hörð í fremstu
víglínu Liverpool sem
er afar vel mönnuð og
áhugavert verður að sjá
hvernig Nunez tekst að
aðlagast.