Fréttablaðið - 03.08.2022, Blaðsíða 21
Ég elska hvernig þau
halda bæði algjörlega í
gildi sín. Þau spila rokk
og ról-fótbolta hérna á
Íslandi og þora líka að
gera það í Evrópu.
Jóhann Már Helgason
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2022 Íþróttir 17FRÉTTABLAÐIÐ
Víkingur Reykjavík og
Breiðablik hefja á morgun
leik í þriðju umferð Sam-
bandsdeildar UEFA. Bæði lið
mæta þar ógnarsterkum and-
stæðingum. Þau hafa þó áður
sannað að þau geti staðið í
ansi öflugum liðum utan úr
Evrópu.
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Annað kvöld mæta Vík-
ingur Reykjavík og Breiðablik til
leiks í þriðju umferð undankeppni
Sambandsdeildar UEFA. Liðin hafa
staðið sig með miklum sóma það
sem af er leiktíð í Evrópukeppnun-
um. Andstæðingarnir eru þó ekki af
lakari endanum á þessu stigi keppn-
innar. Víkingur mætir pólska stór-
liðinu Lech Poznan á meðan Breiða-
blik mætir Istanbul Basaksehir frá
Tyrklandi. Fréttablaðið fékk Jóhann
Má Helgason sparkspeking til að
hita upp fyrir leikina á morgun.
„Fræðilega séð ættu þau ekki að
eiga séns, en ég held að þessi lið séu á
þannig skriði núna, með það mikið
sjálfstraust, að það er mjög erfitt að
mæta þeim. Ég er hreinlega allt of
bjartsýnn miðað við hvað þetta eru
sterk lið,“ segir Jóhann.
Hann leggur áherslu á hversu erf-
iðir andstæðingar Víkinga og Blika
eru. „Ég held að það átti sig ekki
allir á því hversu stór lið þetta eru,
hvað þau eru með ofboðslega mikla
fjárhagslega yfirburði. Ég held því
miður að þetta verði of stór biti fyrir
þessi tvö lið, en að sama skapi veit
maður aldrei.“
Basaksehir er enn á sínu undir-
búningstímabili, þar sem deildin
í Tyrklandi er ekki farin af stað.
Pólska efsta deildin er hins vegar
nýfarin að rúlla. „Það er spurning
hvernig Tyrkirnir koma til okkar.
Liðið þeirra er ekkert tilbúið. Þeir
eiga örugglega eftir að taka inn þrjá
til fimm leikmenn áður en glugg-
inn lokar. Svo ég held að Blikar
eigi meiri séns en Víkingur, af því
Istanbul-liðið er ekki alveg tilbúið.
Þeir eru náttúrlega á undirbúnings-
tímabili en við á miðju tímabili.
Okkar möguleikar liggja svolítið
þar. Ef bestu leikmenn Blika, Ísak
(Snær Þorvaldsson) og Jason (Daði
Svanþórsson), eru í stuði og vörnin
heldur, þá eiga þeir séns. En Vík-
ingar með Lech Poznan, ég held að
það verði alveg rosalega erfitt. Þetta
verða spennandi einvígi en auð-
vitað smá Davíð á móti Golíat,“ segir
Jóhann, en tekur fram að hann hafi
trú á því að bæði íslensku liðin geti
gefið andstæðingum sínum verðuga
mótspyrnu.
Nokkrar gamlar stjörnur eru á
mála hjá Basaksehir. Sú langstærsta
er án efa Mesut Özil, sem er hvað
þekktastur fyrir tíma sinn hjá Arse-
nal og Real Madrid. Þessi fyrrum
þýski landsliðsmaður er kominn
stutt á veg með undirbúning sinn
fyrir næsta tímabil, auk þess að vera
að glíma við smávægileg meiðsli.
Hann verður því ekki með annað
kvöld. Fleiri þekktir leikmenn, eins
og Nacer Chadli, sem áður var á mála
hjá Tottenham og Lucas Biglia, fyrr-
um leikmaður AC Milan og Lazio,
eru einnig á mála hjá Basaksehir.
Jóhann hefur heillast mikið af
framgöngu Víkings og Breiðabliks
í Evrópukeppnunum í ár. „Ég elska
það hvernig þau halda bæði algjör-
lega í gildi sín. Þau spila rokk og ról-
fótbolta hérna á Íslandi og þau þora
að gera það líka í Evrópu, eins og
Víkingar á móti Malmö.“ Víkingur
tapaði naumlega gegn sænska stór-
liðinu. „Það að þora að fara á móti
svona stóru liði sýnir svo mikið
hugrekki, líka að geta framkvæmt
þá leikáætlun á þessi lið, án þess
að vera tekin í bakaríið, það heillar
mig mikið. Þessi fótbolti, sem Arnar
annars vegar og Óskar Hrafn hins
vegar eru að spila, að íslensk lið
geti framkvæmt þetta á þessu stigi,
það er of boðslega aðdáunarvert
og í raun svolítið merkilegt. Miðað
við hvað við erum fjárhagslega
veikburða miðað við þessi lið, að
við getum spilað þennan kampa-
vínsfótbolta á móti þessum sterku
liðum, mér finnst það frábært.
Þau eru búin að vera ótrúlega góð
fyrirmynd fyrir íslensk lið í Evr-
ópu. Maður vonar að fleiri lið fylgi í
kjölfarið, þori að halda í boltann og
sækja á mörgum leikmönnum þegar
tækifæri gefast.“
Þó svo að Jóhann haldi að Lech
Poznan og Basaksehir verði of stór-
ir bitar fyrir íslensku liðin nú hefur
hann trú á að íslenskt lið komist í
riðlakeppni Sambandsdeildarinnar
á næstu árum. „Ég vonast til þess,
ef við höldum áfram að taka þessi
framfaraskref, að við náum þessu á
næstu þremur til fjórum árum, að
fara alla leið. En við þurfum auð-
vitað að vera heppin með dráttinn,
lenda á réttum stað.“
Jóhann telur mikla möguleika
felast í Sambandsdeildinni fyrir
íslensk félög. „Sambandsdeildin var
algjör snilld fyrir okkur á Íslandi.
Það sýndi sig í fyrra að það var
ekki neinn brjálæðislegur munur
á henni og Evrópudeildinni. Að
sjá Jose Mourinho fella tárin með
Roma (sem varð meistari í fyrra),
þetta er alvöru Evrópukeppni. Ef
við horfum líka á þessar fjárhæðir
sem Víkingar og Blikar eru búin að
taka úr Evrópukeppninni í ár. Þetta
er peningur sem er fáránlega gott
fyrir íslenska fótboltahagkerfið að
fá inn.“ n
Andstæðingarnir risastórir
en vonin er til staðar
Leikmenn Víkings Reykjavíkur mæta Lech Poznan annað kvöld. Hér fagna þeir marki í Evrópuleik á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á
fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá.
Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit
dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að
ræða helstu mál líðandi stundar.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á
Hringbraut og frettabladid.is