Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 22
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Björn Baldvinsson
Stórateig 25, Mosfellsbæ,
lést á Líknardeild Landspítalans,
Landakoti, sunnudaginn 17. júlí sl. Bálför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sara Elíasdóttir
Baldvin Björnsson
Ívar Björnsson Súsanna Stefánsdóttir
Birgir Björnsson Guðbjörg Magnúsdóttir
Elsa Lillian, Egill og Katla
Okkar elskaða eiginkona, móðir,
systir, tengdamóðir og amma,
Sandra May Ericson
listfræðingur,
lést á Líknardeild Landspítalans
þann 28. júlí sl. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju 8. ágúst, kl. 15.
Leonard Frederick Ashford
Magdalena Bergmann Gunnarsdóttir
Kristmann Ericson
Paul Templin Ashford Stephanie Templin Ashford
Noah Templin Ashford
Maeve Templin Ashford
Nina Christine Campagna Christopher Campagna
Duncan Campagna
Holden Campagna
Martin Campagna
Elskulegi bróðir okkar og vinur,
Hjörtur Óskarsson
Jacobsen
lést á Landspítala þann 27. júlí 2022.
Útför fer fram í Bústaðakirkju
föstudaginn 5. ágúst kl. 11.00.
Kolbeinn Magnússon Sigurbjörg Guðjónsdóttir
Esther Terrazas Joe Terrazas
Óskar Óskarsson May Margrét Zapanta
Elsa Óskarsdóttir Sæmundur Þór Jónsson
Helga Óskarsdóttir Guðmundur Friðriksson
Sylvía Marta Borgþórsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við fráfall og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Þorgerðar Brynjólfsdóttur
hjúkrunarfræðings,
sem jarðsett var 21. júlí síðastliðinn.
Ævar Harðarson Gerður Tómasdóttir
Gunnar Örn Harðarson Anna Kristinsdóttir
Birgir Harðarson Sif Hauksdóttir
Hörður Már Harðarson Guðfinna Dröfn Aradóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðrún Valdimarsdóttir
lést á dvalarheimilinu Sólvöllum
sunnudaginn 24. júlí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 5. ágúst kl. 14.
Valdimar Þorsteinsson Guðrún A. Sveinsdóttir
Sjöfn Jónsdóttir
Erlingur Þorsteinsson Hlín Daníelsdóttir
Trausti Þorsteinsson Anna Bára Hjaltadóttir
Guðfinna Þorsteinsdóttir Jens Uwe Friðriksson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Formin í náttúrunni eru í for-
grunni á sýningu Sævars Karls
sem opnuð verður á laugardag, en
hann hefur haldið fjölda einka-
sýninga frá því hann söðlaði um
í lífinu, hætti kaupmennsku og
byrjaði að mála.
ser@frettabladid.is
Sævar Karl Ólason er í óðaönn að undir-
búa sýningu á myndverkum sínum í SÍM-
salnum í Hafnarstræti 16 í Reykjavík, en
hún verður opnuð á laugardag – og mynd-
efnið sækir hann ekki langt.
„Ég mála abstrakt, fæst við formin í
náttúrunni, í þetta skiptið í garðinum
mínum,“ segir hann á boðskortinu sem
komið er í dreifingu, en í samtali við
blaðamann bætir hann því við að hann
sé undir áhrifum af íslenska sumrinu,
sem verki einkar sterkt á hann eftir
margra ára veru úti í Þýskalandi þar sem
hann hefur búið um árabil. „Sumarið á
Íslandi er einstakt, dagarnir eru langir,“
segir hann á boðskortinu og vill meina
að náttúran um hásumarið virðist vera
önnur að morgni en að kvöldi.
Heima á sumrin
„Ég reyni að vera heima á Íslandi á sumr-
in, enda þykir mér svo vænt um íslensku
birtuna á þessum árstíma,“ segir Sævar
Karl og kveðst hreinlega forðast hásum-
arið á meginlandinu sem sé allt of mollu-
kennt fyrir hann.
Hann flutti til Þýskalands árið 2008
eftir farsælan kaupmannsferil á Íslandi
um áratugaskeið, en hann rak rómaða
herrafataverslun undir eigin nafni á
Laugavegi og í Kringlunni þar sem hann
stimplaði þýska fatamerkið Boss inn í
huga landsmanna með þeim orðum að
einfaldur smekkur fælist í því að velja
aðeins það besta.
„Ástæða þessa umsnúnings í lífi mínu
má rekja til þess að ég fékk svo gott til-
boð í verslun mína sem ég gat ekki hafn-
að. Og þá fór ég náttúrlega að hugsa um
hvað ég ætti að fara að gera,“ rifjar Sævar
Karl upp og kveðst hafa spurt sig hvað
hann langaði mest af öllu að gera í lífinu.
„Og svarið var myndlistin,“ segir hann,
alsæll með ákvörðunina. „Mig langaði að
fara að njóta lífsins og vissi að það væri
best að njóta þess með pensil í hendi,“
bætir hann við.
Listin blundaði
Listnám sitt byrjaði hann raunar miklu
fyrr, í Myndlistaskólanum í Reykjavík
upp úr miðjum níunda áratugnum,
svo kúnstverkið hefur alltaf blundað í
honum. Síðar varð hann gestanemandi
við Listaháskóla Íslands um aldamótin,
en röskum áratug seinna var komið að
því að læra abstraktmálun úti í Þýska-
landi við Kunstakademie BadReichen-
hall og Kunstakademie Kolbermoor um
þriggja ára skeið.
„Ég hef aldrei fest mig í einni gerð
málverka,“ segir Sævar Karl. „Ég er bara
þeirrar gerðar að mig langar að prófa
hvaðeina í myndlistinni, svo milli þess
sem ég mála stórar abstraktmyndir, vinn
ég minni uppstillingar og fígúrur, en ég
er mjög hrifinn af mannslíkamanum og
nektinni sem heillar mig sem málara.
Annars er ég bara spontant málari og
fylgi huganum. Núna er ég til dæmis að
mála íslenska náttúru eftir að hafa farið
um hálendið í sumar. Ég sé ekkert annað
en fossa í huganum og þeir munu rata
á léreftið,“ segir Sævar Karl að lokum,
síkvikur með pensilinn á lofti. n
Sævar Karl í garðinum heima
Sævar Karl
spurði sjálfan
sig á tímamót-
um í lífinu hvað
hann langaði
mest að gera.
„Og svarið var
myndlistin,“
segir hann.
MYND/AÐSEND
Eitt verka
Sævars Karls
á sýningunni,
en öll verkin
eru máluð í
sumar.
Annars er ég bara spont-
ant málari og fylgi hug-
anum.
Kristófer Kólumbus sigldi af stað frá
Palos á Suður-Spáni þennan dag árið
1492 með það að markmiði að finna
vesturleiðina til Indlands en í för með
honum voru þrjú lítil skip, Niña, Pinta
og Santa María.
Kólumbus fæddist árið 1451 í Genúa
á Ítalíu og giftist hann Felipu Pere-
strello á Spáni árið 1479 og eignaðist
með henni einn son. Árið 1484 fór
Kólumbus á stúfana til þess að finna
fjármagn fyrir Atlantshafssiglingar
sínar en varð lítið ágengt.
Konungshjónin á Spáni, Isabella og
Ferdinand, fjármögnuðu fyrstu Atlants-
hafssiglingu Kólumbusar eftir að hafa
neitað honum tvisvar. Kólumbus var
fullur sjálfstrausts enda hafði hann ný-
lega verið skipaður aðmíráll. Skipin þrjú
héldu af stað frá Spáni og í stað þess
að sigla vestur fyrir Azor-eyjar var siglt
suður fyrir Kanaríeyjar þar sem flotinn
dvaldi í mánuð. Eftir að hafa siglt um
höfin í rúman mánuð kom hann loks að
landi, að talið er í San Salvador. Þaðan
var siglt til Kúbu og síðan til Haítí þar
sem dvalið var fram í janúar og eftir
erfiða heimferð kom flotinn til Spánar
um miðjan mars.
Kólumbus fór fjórum sinnum yfir
Atlantshafið á árunum 1492 til 1504 og
opnaði leið Evrópumanna að landa-
fundum, nýlendustofnun og arðráni
Ameríku. Hann hefur lengi verið talinn
sá sem uppgötvaði Ameríku en margir
halda því þó fram að Leifur heppni hafi
orðið fyrri til þegar hann fór til Vínlands
fimm öldum áður. n
Þetta gerðist: 3. ágúst 1492
Kólumbus ýtir úr vör á Spáni
Kristófer Kólumbus, landkönnuður.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR