Fréttablaðið - 03.08.2022, Síða 26
TÓNLIST
Ásta Soffía Þorgeirsdóttir
harmónikuleikari og Guðný
Einarsdóttir orgelleikari fluttu
blandaða dagskrá í
Hallgrímskirkju
laugardaginn 30. júlí
Í brandara á Facebook má sjá
umsátur um kastala. Árásarherinn
hendir harmóniku yfir virkisvegg
inn. Þá f lýja allir út æpandi, líka
dýrin.
Ef Ástu Soffíu Þorgeirsdóttur
yrði hent yfir vegginn á eftir harm
ónikunni, þá myndi enginn f lýja
úr kastalanum. Hún kom fram á
hádegistónleikum í Hallgríms
kirkju, ásamt Guðnýju Einarsdóttur
orgelleikara, og spilaði undurvel á
harmónikuna.
Lágstemmd dagskrá
Tónleikarnir voru skemmtilegir,
þótt þeir væru allan tímann fremur
lágstemmdir. Engin rismikil tónlist
var flutt. „Gamall fjallakofasálmur“
eftir Oskar Lindberg sótti samt í sig
veðrið eftir því sem á leið. Það gerð
ist líka ýmislegt í prelúdíu og litlum
keðjusöng í þremur spunum eftir
Nadiu Boulanger. Framvindan var
spennuþrungin og litrík. En maður
hefur oft orðið vitni að tryllingslegri
hápunktum þegar risaorgelið í Hall
grímskirkju er annars vegar.
Dagskráin hófst á tveimur dans
þáttum úr franskri svítu nr. 5 eftir
Johann Sebastian Bach. Hvor þáttur,
Allemande og Courante, skiptist í
tvo hluta. Þeir eru báðir endurteknir
eftir fyrirmælum tónskáldsins. Þær
Guðný og Ásta skiptu endurtekn
ingunum á milli sín og það kom
ótrúlega vel út. Stærðarmunurinn
á hljóðfærunum er auðvitað gríðar
legur, en samt var samtalið á milli
þeirra afar heillandi. Hið litla og
stóra bætti hvort annað upp, heild
armyndin var falleg og ljúf. Það var
eins og lítið barn ætti í samtali við
afa gamla, sem var náið og þrungið
kærleika og hlýju.
Eins og ástaratlot
Í næsta atriði var meira samspil,
það er leikið var á hljóðfærin á
sama tíma, en ekki sitt á hvað.
Þetta var Kvöldkyrrð eftir Jónatan
Ólafsson. Samtal hljóðfæranna hér
var enn þá nánara, kannski eins og
ástaratlot. Þau voru dálítið fínleg
en samhljómurinn var samt full
kominn. Harmónikuleikurinn var
vandaður og nákvæmur, en líka
brothættur, og orgelið umvafði
hann án þess að trana sér fram.
Saman mynduðu hljóðfærin blæ
brigðaríka heildarmynd.
Á eftir þessu flutti Ásta tónsmíð
sem bar nafnið Sem ljúfur draumur
eftir Vilhelmínu Baldvinsdóttur.
Tónlistin var fremur slagarakennd,
laglínurnar voru grípandi og sætar,
og stemningin í heild innileg og
sjarmerandi.
Næstu tvo verkin lék Guðný
ein, eftir Lindberg og Boulanger
sem fyrr hefur verið minnst á. Þau
voru prýðilega flutt, raddvalið var
sannfærandi og leikurinn agaður
og nostursamlegur. Tónlistin var
tignarleg og innihaldsrík, og einlæg
túlkun Guðnýjar, full af tilfinningu,
kom henni ágætlega til skila.
Innhverft og dreymandi
Maður bjóst kannski við f lugelda
sýningu í lokin, eins og oft á tón
leikum, en svo var ekki. Nei, boðið
var upp á innhverft og dreymandi
lag eftir tangókónginn Astor Piaz
zolla, Tanti Anni Prima eða Endur
fyrir löngu. Tónlistin einkennd
ist af ljúfsárri nostalgíu, og aftur
blönduðust hljóðfærin fullkom
lega saman. Raddval orgelleikarans
hentaði harmónikunni prýðilega,
svo jafnvægið á milli hljóðfæranna
var eins og best verður á kosið.
Ég hef ekki áður heyrt þessi tvö
hljóðfæri saman á tónleikum og
verður að segjast eins og er að við
burðurinn kom ánægjulega á óvart.
Þetta var einfaldlega frábært. n
JÓNAS SEN
NIÐURSTAÐA: Magnaðir tónleik-
ar sem einkenndust af smekkvísi
og fagmennsku.
Hið litla og stóra í
fullkomnu sambandi
Guðný Einarsdóttir lék á hádegistónleikum á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Heyra mátti samspil harmóniku og
orgels í Hallgrímskirkju.
ragnarjon@frettabladid.is
Sunnudaginn 7. ágúst verður fjöl
breytileikanum fagnað í Árbæjar
safni með f lugdrekasmiðju en
gestum safnsins stendur til boða að
útbúa flugdreka í öllum regnbogans
litum. Þátttaka verður gestum að
kostnaðarlausu og verður allt hrá
efni til f lugdrekasmíða útvegað á
staðnum.
Þá mun húsfreyjan í Árbæ bjóða
upp á nýbakaðar lummur og í smiðj
unni mun eldsmiðurinn hamra
járnið. Í safnhúsi sem nefnist Þing
holtsstræti verður svo gullsmiður að
störfum.
Aðspurður segir Sigurlaugur
Ingólfsson, verkefnastjóri Árbæjar
safns, að f lugdrekasmiðjan hafi
áður verið haldin en þetta sé í
fyrsta sinn sem hún sé með þessu
sniði. „Við erum að tengja við Hin
segin daga og lýsa yfir stuðningi,“
segir hann og segir að Árbæjarsafn
hafi lengi vel haft breytta dagskrá
í tengslum við Hinsegin daga „Það
hefur verið til siðs um þessa helgi að
starfsmenn skipta um búninga. Að
konur fara í karlmannsbúninga og
öfugt. En það fer fram á laugardeg
inum þegar gleðigangan á sér stað.
Svo flöggum við einnig regnboga
fánanum á þeim degi.“
Flugdrekasmiðjan hefst klukkan
13.00 og mun standa til 16.00. n
Fjölbreyttir flugdrekar
á sveimi í Árbæjarsafni
ragnarjon@frettabladid.is
Miðvikudaginn 4. ágúst byrjar
Listasafn Reykjavíkur með vikuleg
ar leiðsagnir í hádeginu á íslensku
um sýninguna Erró: Sprengikraftur
mynda í Hafnarhúsinu. Sýningin
sem haldin er í tengslum við níutíu
ára afmæli Errós byggir að mestu
á listaverkagjöf listamannsins til
Reykjavíkurborgar og spannar
hún sjö áratuga vinnu listamanns
ins. Leiðsögnin, sem veitt verður
klukkan 12.15 á hverjum fimmtu
degi fram til 29. september, er ætlað
að veita gestum betri aðgang að
sýningunni sem inniheldur allt frá
gjörningum, vídeólist, grafík, fjöl
feldi og klippimyndum til stórra
verka í almannarými og málverka
á öllum skala.
„Þetta er hugsað sem inngangur
að sýningunni sem er gríðarlega
stór og umfangsmikil, eitthvað sem
hjálpar við að leiða fólk betur inn í
hana,“ segir Nathalía Druzin Hall
dórsdóttir, kynningar og markaðs
stjóri Listasafns Reykjavíkur. Starfs
menn Listasafnsins munu sjá um
leiðasögn gesta um sýninguna.
Á sýningunni má sjá hvernig
myndir eftir aðra og úr kunnugleg
um myndheimi dægurmenningar
hafa alla tíð fóðrað ímyndunarafl
listamannsins Errós og hans list
sköpun. Sýningin mun standa til
29. september á þessu ári. n
Vikulegar leiðsagnir
um listasýningu Errós
Leiðsögnin mun
hjálpa gestum
að skoða þessa
gríðarlega
yfirgripsmiklu
sýningu sem
spannar sjö ára-
tuga starf Erró.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Listasýningin Erró: Sprengikraftur mynda var opnuð í apríl og stendur fram í
september á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ef vindskilyrði verða góð verður hægt að sjá flugdreka í öllum regnbogans
litum á Árbæjarsafninu um helgina. MYND/AÐSEND
22 Menning 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR