Rit Mógilsár - 2021, Side 6

Rit Mógilsár - 2021, Side 6
6 Rit Mógilsár Jarðarverð (landverð) er Pl, fastinn a er staðarverð skv. jöfnu 4, A er landstærð (ha), b og c eru fastar landstærðaráhrifa á verð skv. jöfnu 1 og 2. MSE er meðalfervik óskýrðs breytileika (Mean Square Error) og fæst úr aðhvarfsgreiningu til að ákvarða fasta a, b og c. MSE/2 er leiðréttingafasti Baskerville (1972) sem lagfærir hliðrun sem verður þegar jöfnum er snúið úr lógraformi.16 Land og hús Landverðshluti jarðarverðs var metinn með jöfnu 5 fyrir allar jarðir og spildur án búrekstrar eða hlunn- inda en með íbúðarhúsi og eftir atvikum úti húsum. Mismunur verðs jarðar með og án húsa var metið virði húseigna. Meðalvirði húseigna var notað til að meta verðmæti húseigna á öllum jörðum í gagna- grunninum fyrir árin 2011, 2014 og 2019. Verðþáttur búrekstrar var metinn sem aug lýst heildarverð jarðar á verðlagi í ágúst 2019 að frá dregnum þætti landverðs samkvæmt jöfnu 4 og verðmæti húsnæðis. Landnýting Landverð samkvæmt jöfnu 1 og 2 er samsett úr staðar virði og landnýtingarvirði17. Eftir því sem land ið er stærra vegur staðarverðið minna en landnýtingarverð meira. Væri jarðarverð einungis landnýtingarverð væri b = 0, Ab+1 = A1 = A og Pl = Aea. Á hinn bóginn ef b = -1 er Pl = ea, þ.e. verð óháð stærð. Þegar -1 < b < 0, er verðið samsett úr staðarvirði og nýtingarvirði. Á lítilli spildu vegur staðarvirðið þungt en það þynnist út með stærð og á stóru landflæmi er nýtingarvirðið afgerandi. Landnýtingarvirðið (kr. á ha) má áætla út frá a- og b-gildunum fyrir stórt land með jöfnu 7: marktækur er nákvæmara að meta landnýtingar- virði fyrir stórar jarðir með jöfnu 8: 12 ++= ba l AeP MSE (5) ( )( ) 1ln 2 2 +++= bAca l AeP MSE 2 11 MSEa b e A Al + + − = (7) Þar er l nálgun við landnýtingarvirði (kr. á ha), a og b eru fastar ákvarðaðir með jöfnu 1, A er landstærð (ha) fyrir allstóra jörð og MSE/2 er leiðréttingafasti Baskerville (1972). Í því tilviki að annars stigs margliðan (jafna 2) er töl- fræði lega marktæk (p < 0,05), skýrir hún breytileik- ann betur en jafna 1 og þegar fasti c er töl fræði lega 16 MSE/2-gildið er fasti og viðbót við a-gildi jafnanna. Leiðréttingin hefur einungis áhrif á staðarvirðisþáttinn sem hækkar um fast gildi (breytist ekki með landstærð). Landverðslíkanið er skalað með samanburði verðspár og verðs í sölusamningum. Án leið- réttingar Baskerville (1972) myndi myndi skölunin lagfæra hliðrun sem verður þegar jöfnum er snúið úr lógraformi. Leiðrétting Basker ville (1972) er því ekki nauðsynleg í þessari rannsókn. Væri landverðs líkanið byggt á verði í sölusamningum og gert án skölunar væri leiðrétting Baskerville (1972) nauðsynleg. Best væri að byggja landverðs líkanið á verði í sölu samningum, nota leið- réttingu Baskerville (1972) og bera spána saman við óháð gagna- safn með sölusamningum (Jónsson & Snorrason 2018). 17 Verðmæti lands sem stafar af nýtingararði landflatarins fremur en af staðnum óháð landstærð. 18 Sjá t.d. samantekt í ritgerð Jóhönnu Lindar Elíasdóttur (Elíasdóttir 2015). ( )( ) 2 2ln 1 1 MSEAca b e A Al ++ + − = (6) (8) Jöfnur 7 og 8 greina ekki milli verðmætis mismun- andi landnýtingar. Ef fjarlægð frá þéttbýli vegur þungt í fasta a (jafna 3) má gróflega meta orsakir landnýtingarþáttanna. Í um 100 km fjarlægð frá Reykja vík er mikið um hrossarækt og hagagöngu hrossa en þegar komið er 600 km frá borginni er sauðfjárrækt nánast eina nýtingin á úthaga. Til að fá nokkra mynd af tengslum þessarar landnýtingar og landverðs var reiknað landnýtingarverð með jöfnu 8 ásamt skölun fyrir 50 og 500 ha lands í póstnúmerum 311, 320, 851 og 861 (land um 100 km frá Lækjartorgi) og póstnúmerum 670, 681 og 760 (land um og yfir 600 km frá Lækjartorgi). Skölun Gögnin sem notuð voru við greininguna eru ásett verð en gögn um raunverulegt söluverð liggja ekki á lausu18. Gögn um söluverð níu jarða og spildna voru notuð til að áætla leiðréttingafasta f til að meta söluverð út frá ásettu verði samkvæmt landverðs- líkaninu (jafna 9): ( )12 ++= ba l AefP MSE (9) (10) Fasta f þarf einnig að nota til að meta landnýtingar- verð skv. jöfnu 7, þ.e. með jöfnu 10: − = + + 2 11 MSEa b e A Afl Á sama hátt þarf að margfalda útkomu úr jöfnum 6 og 8 með fastanum f til að áætla söluverð út frá áætluðu ásettu verði.

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.