Rit Mógilsár - 2021, Blaðsíða 20

Rit Mógilsár - 2021, Blaðsíða 20
20 Rit Mógilsár Áhrif hækkandi landverðs eru þau að dýrara land hækkar stofnkostnað miðað við óbreyttan árangur og á lakara landi verður árangurinn minni. Hvort tveggja gerir framleiðsluna dýrari. Hækkandi land- verð verður til þess að þeir sem standa í ræktuninni fá minni arð í sinn hlut en arðurinn leitar í auknum mæli til þeirra sem selja sitt land og hverfa af vett- vangi. Í því felst ranglæti í augum þeirra sem telja nýræktunina mikilvæga. Stórfelld uppkaup á landi hafa einnig félagsleg áhrif. Þegar kaupandinn er utan sveitar færist eignarhald á landi úr sveitinni og oft á færri og stærri hendur. Uppkaupin stuðla að og fjármagna búferlaflutninga úr dreifbýli til þéttbýlis. Þessi áhrif hafa þegar komið fram hér á landi vegna uppkaupa auðmanna á stórum landflæmum til frístundanota. Arðurinn sem verður af landnýtingu rennur þá óskiptur út úr sam- félaginu til þéttbýlisins og jafnvel úr landi. Það er ekki sjálfgefið að ræktunin skapi atvinnu í sveitinni. Stórir aðilar utan sveitar nota oft sérhæfða verktaka í flest stærri viðfangsefni. Innansveitarmenn hafa sjaldnast þekkingu eða bolmagn til að bjóða móti stórum verktökum eða fá tækifæri til þess. Land leigt til skógræktar Landleiga getur tekið til heillar jarðar með öllum gögnum og gæðum eða til hluta landsins. Leigu heillar jarðar fylgir ónýtanlegt land, hús og annað sem ekki gagnast við ræktunina. Mörg sömu vandamálin fylgja leigu heilla jarða og jarðakaupum. Stórfelld leiga á heilum jörðum til skógræktar er líkleg til að hækka bæði land- og leiguverð. Kostir landleigu fyrir skógrækt sem takmarkast við hluta jarðar eru þeir helstir að hægt er að leigja það land sem hentar ræktuninni. Landleiga til skógræktar getur tekið til úthagans eða hluta hans og vannýttra túna. Leigða svæðið getur undanskilið hraun, fjall- lendi, óraskaðar mýrar eða annað land sem hentar ekki til skóg ræktar. Þetta óhentuga land er einnig við kvæmast frá útivistar- og umhverfissjónarmiðum. Hús og önnur aðstaða væri undanskilin og þannig sneitt að mestu hjá staðar virðinu. Þótt ræktunin þurfi að greiða árlega leigu getur sá kostnaður verið mun minni en fjármagns kostnaðurinn af því að kaupa landið sem nýtist ekki nema að hluta til ræktunar innar. Á móti kemur að raunverðs hækkun á landi kemur ræktun inni ekki til góða. Skógrækt er langtímafjárfesting og leigusamningur um skógrækt verður að vera óuppsegjanlegur, standi leigutakinn í skilum og virði önnur samningsákvæði. Vilji landeigandinn losa landið úr skógarleigu verður hann að kaupa skóginn og samninginn fullu verði. Leigutakinn hefur full umráð yfir ræktuninni og ber Skógrækt Tilgangur þessarar greiningar var öðru fremur að skýra verð myndun á landi, gera reiknilíkan til að spá land verði og áætla landrentu á Íslandi fyrir mat á land nýtingar kostum og þá einkum skógrækt. Við ný ræktun skógar er verulegur fastakostnaður sem er lítið háður landstærð svo sem við kortlagningu, mat á landkostum, skipulagningu, framkvæmdastjórn og opinber leyfi. Á smáspildum er hár girðinga- kostnaður á hektara lands en hann fellur hratt með vaxandi landstærð. Landspildur sem eru minni en 10- 15 ha eru óhagkvæmt skógræktarland og Skógræktin setur 10 ha sem lágmarksstærð skógræktarsvæðis í skógræktar samningum við stofnunina77. Notagildi líkansins í skógrækt takmarkast því lítið af óvissu um spágildi þess fyrir landspildur undir 10-15 hektara stærð. Landverðslíkanið sem hér er sett fram gæti því orðið gagnlegt tæki við mat á landnýtingarkostum. Land keypt til skógræktar Land til skógræktar er hægt að kaupa eða leigja. Meðal verð hvers hektara lækkar með vaxandi land stærð (Elíasdóttir 2015) og því er hag kvæmara að kaupa stórt land en lítið. Oft er veru legur hluti landsins óhentugt skógræktarland svo sem hraun, klettar og fjalllendi. Jörðum fylgja hús sem oft koma að litlum notum en skapa útgjöld við viðhald og fasteigna gjöld. Þessi meðafli myndar oft mikinn hluta land verðsins. Þurfi ræktunin að standa undir kaupum á jörðinni getur kostnaðarverð nýtan- legs skógræktar lands orðið allverulegt. Hægt væri að skipta jörðinni í skógræktar land og annað land ásamt húsum og selja frá skógræktar landinu. Skipt- ingin væri kostnaðar söm, seinleg og árangurinn óviss. Það tekur oft mörg ár að selja jörð og mjög óvíst að verðið borgaði nægilegan hluta upphaflegs kaup verðs auk skiptingar kostnaðar. Þótt skiptingin tækist má búast við að kostnaðarverð hvers hektara í skógræktar landinu yrði hár. Annar möguleiki er að ræktunin kaupi tiltölu lega einsleitar spildur án húsa. Spildurnar hafa bæði staðar- og nýtingarvirði og eru sjaldan mjög stórar. Meðalverð á hektara er því tiltölu lega hátt. Vandinn við kaupin felst í því að skóg rækt er landnýting sem nýtir landgæði en þarf að bera staðar virðið sem myndar meginhluta land- verðsins. Uppkaup á landi til skógræktar eða annarra nota hækka landverð. Umfangsmikil nýskógrækt í há- löndum Skotlands sem stóð fram á níunda áratug síð ustu aldar byggðist á keyptu landi. Eftir því sem ræktun in efldist gerðist tvennt, landverð hækkaði og besta skógræktar landið gekk til þurrðar. Ný- skógræktin færðist því í auknum mæli á lakara land og afkomu horfur ræktunar innar versnuðu. Áhrifin á land verð komu skýrt fram árið 1988 en þá felldi breska ríkis stjórnin niður tekjuskattsívilnanir sem höfðu fjár magnað nýskógrækt einkaaðila. Við breyt- inguna nánast stöðvaðist nýskógrækt og land verð í hálöndum Skotlands féll um helming (Hart 1991). 77 https://www.skogur.is/is/nyskograekt/skograekt-a-logbylum/ um-skograekt-a-logbylum (Sótt 17.3.2021).

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.