Rit Mógilsár - 2021, Qupperneq 21

Rit Mógilsár - 2021, Qupperneq 21
Rit Mógilsár 21 allan ræktunarkostnað, þar með girðingar á mörk- um leigulandsins og kostnað við nauðsynlega vegi og slóða. Hann getur ekki notað landið til annars en skóg ræktar eða annarrar landnýtingar sem samn- ingur inn tilgreinir sem gæti t.d. verið uppgræðsla lands og bleyting mýra. Leigusamningar hækka nýtingarvirði landsins og staðar virðið vex því það verður eftirsóknarverðara að eiga landið og búa á jörðinni. Landverð myndi því trúlega hækka. Skógarleigan yrði í samkeppni við nú- verandi landnýtingu sem oftast hefur nánast ekkert nýtingarvirði. Hærra landverð vegna skógar leigunnar myndi því tæplega þrýsta upp skógarleigunni. Leiga úthagans skapar eigandanum nýjar tekjur sem hann þarf litlu eða engu til að kosta og oftast án þess að hann tapi miklum tekjum af fyrri nýtingu lands- ins. Það getur verið hagkvæmt fyrir leigjandann að semja við þann sem býr á jörðinni um daglegt eftir- lit með ræktuninni og önnur viðvik. Þannig gæti skógar leigan skapað eigandanum eða landseta hans nokkrar launatekjur. Landleiga til skógræktar gæti hentað garðyrkju- og kúabændum sem hafa lítil not af úthaga. Hún gæti jafnvel hentað sauðfjárbændum sem nýta ein göngu afrétt til sumarbeitar. Skógarleiga eins og hér er lýst er án kostnaðar eða vinnu landeigandans. Viðbótar- tekjurnar af skógarleigu gætu skipt máli fyrir afkomu bænda og byggð í sveitum. Skógarleigan myndi henta mörgum eigendum frístundajarða og jafn- vel tæla þá til búsetu í sveitinni. Þeir sem geta sinnt starfi sínu og hugðarefnum óháð stað kynnu að kjósa sveita lífið. Skógarleiga sem takmarkast við afmarkað- an hluta jarðar er hlutlaus um eignarhald á landi. Henni fylgja ekki þau félagslegu vandamál sem leiða af uppkaupum á landi og hún getur verið hluti betri lausnar á félagslegri stöðu sveitafólks. Skógræktarsamningar Frá tíunda áratug síðustu aldar hefur eigendum lög- býla boðist að gera skógræktarsamning um afmark- aðan hluta jarðar sinnar. Í upphafi voru samn ingar- nir gerðir við landshlutabundin skógræktar verkefni en nú við Skógræktina. Í eðli sínu eru skógræktar- samningar leigusamningar um land til 40 ára ásamt verktakasamningi. Leigugjaldið er að landeigandinn eignast skóginn við samningslok og á allar tekjur umfram tilkostnað af nýtingu skógarins á samnings- tímanum78. Skógræktin skipuleggur rækt un ina, út- vegar og kostar skógarplöntur til rækt unar og hefur yfir umsjón með landinu á samnings tímanum. Land- eigandinn hefur tillögurétt um skipu lagið en verður að lúta því skipulagi sem Skógræktin gerir og hlíta fyrirmælum stofnunarinnar um úr bætur ef út af er brugðið. Landeigandinn er verk taki Skógræktarinnar við undirbúning ræktunar, gróðursetningu og umhirðu plantnanna. Ræktunin er ákvæðisvinna samkvæmt taxta Skógræktarinnar fyrir hvert ræktunarverk. Skógræktarsamningar á lögbýlum eru landleiga rík- is ins en hvorki einkaskógrækt né styrkur við skóg rækt á einkalandi. Í öðrum löndum er sjaldgæft að ríkið leigi land til skógræktar en algengt að það greiði styrk til skógræktar á jörðum í einkaeign. Fyrir komu- lag skógræktarsamninga á lögbýlum hentaði vel þegar megin markmiðið var að skapa atvinnu í dreif- býli og tryggja þannig búsetu á jörðum þrátt fyrir samdrátt í búvöruframleiðslu. Þetta hlutverk hefur trosnað eftir því sem jarðir hafa færst úr bændaeign og gagnsemin fyrir sveitafólk gæti verið meiri. Byggðamarkmiðið er horfið úr skógræktarlögum og áherslan er þar á kolefnisbindingu og umhverfis- vernd. Einkaaðilar sýna áhuga á kolefnisbindingu og bæði innlendir og erlendir fjárfestar og fyrirtæki hafa nú þegar gert samninga við Skógræktina og Kolvið um kolefnisbindingu með skógrækt. Skóg- rækt til viðar framleiðslu ásamt kolefnisbindingu er í sjónmáli og kann að verða mikilvæg atvinnugrein á næstunni. Tímar arðsamrar skógræktar á íslenskum úthaga virð ast á næsta leiti. Hér er margs að gæta og óvíst að nú verandi fyrirkomulag skógræktarmála henti fyllilega í nýjum heimi. Þessi greining er inn- legg í umræðu um land, ræktun, samfélag og tæki- færi á Íslandi. 78 Tilgangur skógræktarsamninga á lögbýlum var að skapa atvinnu í dreifbýli og mynda framtíðarauðlind sem gæti staðið undir atvinnurekstri í skógrækt. Þessi tilgangur var skýr í lögum um Landshlutabundin skógræktarverkefni en er ekki ljós í núgildandi skógræktarlögum sem tóku við af þeim lögum.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.