Rit Mógilsár - 2021, Qupperneq 27

Rit Mógilsár - 2021, Qupperneq 27
Rit Mógilsár 27 Upplýsingar um tekjur af hrossabeit og kostnaðarliði við hagagöngu voru sóttar í ritgerð Sigrúnar Eddu Halldórs dóttur (Halldórsdóttir 2014). Veturinn 2012- 2013 kannaði hún aðbúnað hrossa á útigangi um allt land. Niðurstöðurnar birti hún í BS-ritgerð sinni frá Háskólanum á Hólum í Hjaltadal og Landbúnaðar- háskóla Íslands. Hún fékk svör frá 356 hestamönnum sem ýmist sáu um hross í hagagöngu eða greiddu öðrum fyrir þá þjónustu. Í ritgerð Sigrúnar Eddu eru gefin meðaltöl ásamt hæstu og lægstu gildum fyrir hvern þátt. Út frá þessum tölum var hér reiknað með svokallaðri PERT- aðferð82 væntanlegt eða besta gildi (te) með jöfnu 11 og metið staðalfrávik (Sd) með jöfnu 12: Vesturlandi og Vestfjörðum 14,60 ha á hross og á Austur landi 2,46 ha á hross (Halldórsdóttir 2014). Eftir þessu virðast beitarhólf þéttsetin á Suður- og Austur- landi en rúmt í högum á Vesturlandi og Vest fjörðum. Landsmeðaltalið í gögnum Sigrúnar Eddu var hér metið líklegasta gildi og gildin 2,46 og 14,60 ha á hross útmörk raunhæfra beitarhólfa til mats á land- rentu. Fyrir ársbeit var besta mat með PERT-aðferð á beitilandi fyrir ársbeit 7,71 ha á hross. Meðalflatarmál girðingar fyrir eitt stóð var 126,4 ha (16,4 hross í stóði x 7,71 ha á hross). Vegin meðal- fjarlægð frá Lækjartorgi til stóðgirðingar á Suður- landi var metin 100 km (Hella), á Austurlandi 657 km (Egilsstaðir), á Norðurlandi 294 km (Varmahlíð) og á Vesturlandi 91 km (Borgarnes). Af 289 hesta- mönnum í könnun Sigrúnar Eddu höfðu 125 hesta sína á Suðurlandi, 86 á Norðurlandi, 64 á Vestur landi og 14 á Austurlandi. Landverðslíkanið var notað til að reikna verð stóðgirðinga í hverjum lands hluta og landsmeðaltal vegið með tíðni hrossa eftir lands- fjórðungum. Þannig reiknað var vegið landsmeðaltal hektaraverðs í stóðgirðingum kr. 163.815 á hektara. Sigrún Edda spurði hestamenn sem höfðu hross í haga göngu veturinn 2012-2013 um greiðslur fyrir árs- beit eins hests. Hún spurði bæði seljendur og kaup- endur og birti meðalverð, hæsta og lægsta gildi. Niður stöður hennar voru hér færðar til verðlags í ágúst 2019 með vísitölu neysluverðs án húsnæðis og reiknuð gildi samkvæmt PERT-aðferð (tafla 3). Meðaltekjur á hektara hrossahaga voru reiknaðar þannig að metnum hektarafjölda á hross (7,71 ha á Viðauki 2. Greining á tekjum, kostnaði og landrentu af hagagöngu hrossa Þar sem te er væntanlegt (besta) gildi, a er hámarks- gildi, m er líklegasta gildi (eða meðaltal), b er lágmarksgildi og Sd er staðalfrávik. Árin 2012-2013 voru að meðaltali 16,4 hross í stóði og hvert hross hafði að meðaltali 7,3 ha til beitar (Halldórsdóttir 2014). Á Suðurlandi reiknaði Sigrún Edda 3,51 ha á hross, á Norðurlandi 8,36 ha á hross, Tafla 3. Greiðsla fyrir ársbeit eins hests (2012-2013) fært til verðlags í ágúst 2019. Hópur Minnst Meðaltal Mest Mat (te) Sd Seljendur 2012-2013 10.000 kr. 76.891 kr. 168.000 kr. 80.927 kr. 64.503 kr. Kaupendur 2012-2013 10.000 kr. 51.000 kr. 200.000 kr. 69.000 kr. 77.567 kr. Meðaltal 2019 10.200 kr. 65.222 kr. 187.674 kr. 76.461 kr. 72.454 kr. Sd: Staðalfrávik. hross) var deilt í metna meðalgreiðslu fyrir haga- göngu hests í eitt ár (76.461 kr. á hesta árlega). Landsmeðaltals tekjur á hektara í hagagöngu árið 2019 voru þannig metnar 9.917 kr. á hektara. Greiðsla fyrir hagagöngu er bæði landleiga (land- renta) og kostnaður við girðingar og umsjón hrossanna. Í könnun Sigrúnar Eddu fengu hross í 82 Þegar upplýsingar eru takmarkaðar eða óvissar er stundum notuð sk. PERT-aðferð (Project Evolution Review Technique, sjá t.d. Þórður Víkingur Friðgeirsson, 2003) til að meta líklegasta gildi og breytileika. Með þessari aðferð er gert ráð fyrir að beta-dreifing lýsi líkindum milli jaðarmarka og aðferðin gefur vegið gildi með tilliti til breytileika í upplýsingunum. Besta matið samkvæmt þessari aðferð gefur jöfn líkindi (50%) á að rétt gildi sé yfir eða undir mörkum. 6 4 bmate ++ = ( ) 6 2baSd − = (12) (11)

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.