Skessuhorn - 25.08.2021, Blaðsíða 13
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 2021 13
Umboðsaði l i fyr ir Málning hf
301 Hval f jarðarsveit | S ími 896 2356 | gardjons@vis ir. i s
útimálun – innanhússmálun
sandspör t lun
þakmálun
múrviðgerðir
vinnuly f ta
þjónustusamningar
Hjá GJ málun eru al l ir með mik la og góða reynslu v ið
málningarvinnu, jafnt v ið út imálun sem og innimálun.
Um árabi l höfum við þjónustað mörg f yr ir tæki , stofnanir,
f asteignafé lög , e instak l inga og húsfé lög með góðum árangri og
fengist v ið ýmis spennandi verkefni .
Regluleg t v iðhald á fasteignum borgar sig. Málning er góð vörn
f yr ir veðri og vindum. Með reglulegu viðhaldi er hæg t að verja
fasteignir og koma í veg f yr ir dýrar framkvæmdir.
Ungar konur á aldrinum 15-17 ára
eiga helst á hættu að vera þvingað-
ar til að senda myndir af sér og aðr-
ar persónulegar upplýsingar, ásamt
því að verða fyrir myndbirtingum á
netinu gegn vilja þeirra. Þetta kem-
ur fram í nýrri skýrslu fjölmiðla-
nefndar um haturstal og neikvæða
upplifun af netinu. Byggir rann-
sóknin á niðurstöðum úr víðtækri
spurningakönnun sem lögð var
fyrir í febrúar og mars á þessu ári.
Konur áttu þá einnig í meiri erfið-
leikum með að bregðast við þving-
unum til myndsendinga og mynd-
birtingu gegn þeirra vilja en karlar.
23,9% ungra kvenna sögðust
hafa lent í þessum aðstæðum á síð-
ustu 12 mánuðum. Til samanburð-
ar höfðu 6,3% karla á aldrinum
15-17 ára upplifað þessar aðstæður
og 0,6% 18 ára og eldri. Þá höfðu
17,9% kvenna á aldrinum 15-17
ára lent í því að myndir eða mynd-
skeið af þeim hafi verið birt á net-
inu í óþökk þeirra. Í hópi 15-17 ára
karla var hlutfallið sömuleiðis hátt
þar sem 13,8% höfðu lent í þeim
aðstæðum, en meðaltalið í öðrum
aldurshópum (18 ára og eldri) var
2%. „Þessar niðurstöður draga upp
grafalvarlega mynd af því umhverfi
sem ungt fólk og þá sérstaklega
ungar konur búa við á netinu í dag.
Meginmarkmið könnunarinnar er
að búa til ramma fyrir stefnumót-
un á sviði miðlalæsis svo að hægt sé
að bregðast við með aðgerðum til
úrbóta. Hér sjáum við svart á hvítu
óviðunandi ástand og hóp sem
þarfnast aðstoðar sem allra fyrst,“
segir Skúli Bragi geirdal verkefnis-
stjóri miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd.
mm
Ungar konur í sérstökum
áhættuhópi á netinu
ALLA LEIÐ
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum
og eiga auðvelt með að vinna í hóp. Reynsla af störfum
í verslun og þjónustu er kostur.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Fjeldsted,
verslunarstjóri, í síma 866 1013 eða magnusf@n1.is.
Umsóknir óskast fylltar út á N1.is undir Laus störf.
440 1000 n1.is
Vilt þú vinna
á líflegum
vinnustað?
N1 Borgarnesi óskar eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum
vaktstjóra til framtíðarstarfa. Um er að ræða fullt starf
í vaktavinnu. Þjónustustöðin okkar er fjörugur vinnustaður
sem iðar af mannlífi frá morgni til kvölds.
Helstu verkefni:
• Almenn afgreiðsla
• Stjórnun starfsmanna á vakt
• Vaktauppgjör
• Pantanir
• Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni
Hæfniskröfur:
• Almenn þekking á verslun og þjónustu
• Góð samskiptafærni og þjónustulund
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði