Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 25.08.2021, Blaðsíða 30
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 202130 Markvörðurinn Árni Marinó Ein- arsson hefur vakið verðskuldaða at- hygli eftir að hann var valinn að- almarkvörður Skagamanna fyrr í sumar og átt hvern stórleikinn á fætur öðrum og engan betri en í leik gegn FH í 16-liða úrslitum bik- arkeppninnar. Þar hélt Árni Mar- inó Skagamönnum inni í keppninni með frábærri markvörslu undir lok leiksins. „Ég hef fundið mig vel í sumar og verið einbeittur. Ég er frekar ró- legur og feiminn að eðlisfari og ég held að það hjálpi mér í undirbún- ingi fyrir leikina að vera yfirveg- aður,“ segir hinn 19 ára gamli Árni Marinó í samtali við Skessuhorn. „auk leiksins gegn FH þá fannst mér ég eiga góðan leik gegn vík- ingum í reykjavík sem við töpuð- um naumlega.“ Frá C-liði Aftureldingar í aðalmarkvörð ÍA Árni Marinó byrjaði að æfa knatt- spyrnu með aftureldingu í Mos- fellsbæ þar sem hann bjó áður en hann flutti á akranes. „Ég byrjaði upphaflega sem markvörður með C-liði aftureldingar, en áður hafði ég æft sem útileikmaður með fé- laginu. Fyrir fjórum árum fluttist fjölskyldan mín síðan á akranes og ég fór strax að æfa með 3. flokki Ía. Þá voru um fimm eða sex markmenn sem æfðu með flokknum. Ég byrjaði að leika með C-liðinu og vann mig upp í a-liðið og var í lok sumarsins valinn besti leikmaðurinn í 3. flokki. Eftir að ég kom í 2. flokkinn varð ég aðalmarkvörður liðsins og er reynd- ar enn gjaldgengur í 2. flokknum.“ Í vetur fór Árni Marinó að æfa með aðalliði Skagamanna og var þriðji markmaður í æfingarleikjun- um í vetur. „Ég kom frekar lítið við sögu í þeim leikjum, nema ég kom inn á sem varamarkvörður í leik gegn gróttu í fotbolta.net mótinu. Eftir að ég fékk óvænt tækifæri í sumar ákvað ég að nýta mér það og leggja mig allan fram til að standa mig.“ Skagamenn hafa verið í botn- baráttunni í sumar og þurfa virki- lega á sigrum að halda þegar ein- ungis fimm umferðir eru eftir af Ís- landsmótinu til að halda sæti sínu í deildinni. „við erum staðráðnir í því að leggja okkur alla fram í þessum leikjum og eru þeir allir hreinir úr- slitaleikir fyrir okkur. við ætlum að mæta grimmir og ákveðnir til leiks í þeim öllum.“ Hefur vaxið með hverri raun Jóhannes Karl guðjónsson þjálf- ari sagði í viðtali eftir einn leik Skagamanna í sumar að hann væri búinn að fylgjast vel með Árna Marinó og að hann hefði vax- ið með hverri raun og sýnt mikl- ar framfarir; verið áræðinn og óhræddur við þau verkefni sem hann tekst á við. Árni Marinó er starfsmaður hjá frístundamiðstöðinni Þorpinu á akranesi í sumar eftir að hafa lok- ið stúdentsprófi frá Fva í vor. „Ég hef hugsað mér að fá mér vinnu í vetur og einbeita mér að fótbolt- anum og reyna að bæta mig eins og ég get og láta frekara nám bíða um sinn,“ sagði Árni Marinó, sem miðað við frammistöðuna í sumar á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í fótboltanum. Frá því að vera markvörður í C-liði hjá aftureld- ingu í að verða aðalmarkvörður Ía og er þegar byrjað að tala um hann sem einn sá efnilegasta með- al yngri markvarða landsins. se Það er ekki á hverjum degi sem einn og sami leikmaðurinn skorar fimm mörk í leik. En það gerðist þegar Fjölnir sigraði víking Ólafs- vík 7:0 í leik sem spilaður var á Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið, en þá skoraði hinn tvítugi Jóhann Árni gunnarsson fimm mörk. Það var fátt sem benti til þess að leikurinn myndi enda sem mar- tröð fyrir heimamenn í Ólafsvík, því víkingur var síst lakari aðilinn í byrjun leiks og skapaði sér nokkur álitleg marktækifæri á fyrsta hálf- tíma leiksins. En á 35. mínútu kom Jóhann Árni Fjölni yfir í leiknum með viðstöðulausu skoti í stöng og inn. aðeins tveimur mínútum síðar fengu gestirnir vítaspyrnu eftir peysutog. Jóhann Árni steig á punktinn og skoraði örugglega og staðan allt í einu orðin 0:2 og þannig stóð í hálfleik. víkingsmenn komu ákveðnir inn í síðari hálfleikinn og fengu sín færi og jafnræði var með lið- unum en um miðjan hálfleikinn kom þriðja mark Jóhanns Árna og Fjölnis, en þá skoraði hann einn og óvaldaður innan vítateigs. aðeins tveimur mínútum síðar var staðan orðin 0:4 þegar andri Freyr Jón- asson skoraði af stuttu færi. við þetta varð uppgjöf hjá víkingi og Fjölnismenn gengu á lagið. Á 74. mínútu skoraði Hans viktor guð- mundsson fimmta markið,. Jóhann Árni gerði síðan sjötta og sjöunda mark Fjölnis undir lok leiksins og stórsigur liðsins staðreynd. Eftir góðan sigur víkings gegn Þór á akureyri helgina áður kom kom þetta stóra tap frekar óvænt. guðjón Þórðarson þjálfari vík- ings var að vonum svekktur í leiks- lok. Hann sagði í viðtölum eftir leikinn að fyrri hálfleikurinn hefði verið alveg ágætur og leikmenn staðið fyrir sínu. En sér hefði þótt sárt að sjá þessa algjöru uppgjöf sem varð í síðari hálfleiknum og Fjölnismenn fengu óáreittir að at- hafna sig. víkingur Ólafsvík vill örugg- lega gleyma þessum leik sem fyrst og var næsti leikur liðsins á dag- skrá gegn vestra á Ísafirði í gær. Leikurinn var ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í prentun. se/ Ljósm. af. Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna í +50 ára flokki fór fram á Kirkjubólsvelli hjá golfklúbbi Sandgerðis dagana 19. - 21. ágúst. alls tóku átta klúbbar þátt í bar- áttunni um Íslandsmeistaratitil- inn og leikið var í tveimur riðlum og komust tvö efstu liðin úr hvor- um riðli í undanúrslit. golfklúbb- urinn Leynir frá akranesi og golf- klúbbur Suðurnesja léku til úrslita um sigurinn í 2. deild kvenna og þar hafði Leynir betur 2-1 og leik- ur Leynir því í efstu deild að ári. vaks Skallagrímur lék tvo síðustu leikina á Íslandsmótinu í B-riðli 4. deild- ar þetta sumarið í liðinni viku og í fyrri leiknum þurftu Skallagríms- menn að sætta sig við 3-1 tap gegn Uppsveitum þegar liðin mættust á miðvikudaginn en leikið var í upp- sveitum Árnessýslu. Fyrsta mark leiksins skoraði viktor Már Jónas- son fyrir Borgnesinga á 29. mínútu en heimamenn í Uppsveitum náðu að lagfæra stöðu sína áður er flautað var til hálfleiks. Óliver Jóhannsson skilaði knettinum í mark Skallanna á 44. mínútu og mínútu síðar skor- aði Máni Snær Benediktsson annað mark heimamanna og kom þeim í 2-1 þegar gengið var til klefa. Upphaf seinni hálfleiks var frek- ar tíðindalítið. Það var ekki fyrr en um stundarfjórðungur lifði af leik að Máni Snær Benediktsson skor- aði sitt annað mark og þriðja mark sinna manna sem reyndist jafn- framt síðasta markið sem skorað var í leiknum. Lokatölur því 3-1 fyrir Uppsveitum. Í seinni leiknum mætti Skalla- grímur liði KH (Knattspyrnufélag- inu Hlíðarenda) á laugardaginn og fór leikurinn fram á valsvellinum. Skallagrímsmenn fengu skell og töpuðu leiknum 2:9. Ernir daði arnberg Sigurðsson varð fyrir því óhappi að koma KH yfir með sjálfs- marki á 20. mínútu, en mínútu síðar jafnaði viktor ingi Jakobsson metin fyrir Skallagrím. En aðeins þrem- ur mínútum síðar skoraði Pétur Máni Þorkelsson annað mark KH og kom þeim yfir að nýju. Þremur mínútum fyrir leikhlé skoraði daði Kárason þriðja mark KH og staðan 3:1 í hálfleik. En í síðari hálfleik opnuðust all- ar flóðgáttir. Á tíu mínútna kafla í fyrra hluta síðari hálfleiks bætti KH við þremur mörkum og kom- ust í 6:1 með mörkum þeirra Pét- urs Mána Þorkelssonar, Eyþórs arnars Þorvaldssonar og Kristins Kára Sigurðarsonar. Þegar fjórtán mínútur lifðu leiks bætti Jón Örn ingólfsson sjöunda markinu við og það áttunda kom tæpum tíu mín- útum fyrir leikslok og var Jón arn- ar Stefánsson þar að verki. viktor Már Jónasson náði að klóra í bakk- ann fyrir Skallagrím á 86. mínútu. En á lokamínútunum skoraði Jón Örn ingólfsson níunda mark KH og 9:2 stórsigur hjá Hlíðarenda- strákunum. Skallagrímur endaði í fimmta sæti B-riðils með 15 stig í 14 leikjum, vann fjóra leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði sjö leikjum. Markatal- an var 25-32 og markahæstir voru viktor Már Jónasson með sjö mörk og þeir Mario Miguel Lopez og Sigurjón ari guðmundsson voru með sex mörk hvor. glh/se Sigursveit Leynis. Fyrir aftan frá vinstri: Sigríður Ellen Blumenstein, Ellen Ólafsdóttir, Helga Rún Guð- mundsdóttir og María Björg Sveins- dóttir. Fyrir framan frá vinstri: Elísabet Valdimarsdóttir og Ruth Einarsdóttir. Ljósm. golf.is Golfklúbburinn Leynir sigraði í 2. deild kvenna +50 Viktor Már Jónasson var markahæstur í sumar hjá Skallagrími.. Ljósm. glh Skallagrímur tapaði lokaleikjunum Fimm mörk frá Jóhanni Árna afgreiddu Víkinga „Er frekar rólegur og yfirvegaður að eðlisfari“ Segir Árni Marinó Einarsson hinn ungi markvörður Skagamanna sem slegið hefur í gegn í sumar Árni Marinó, markvörður ÍA, hefur sýnt góða takta í sumar og er talinn einn efnilegasti markmaður landsins. Ljósm. gbh

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.