Skessuhorn - 29.06.2022, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2022 13
MEIRAPRÓF
FjarkennslaNæstu námskeið:
• 14. júlí
• 25. ágúst
• 29. september
Verkleg kennsla í Reykjavík,
Akureyri, Akranesi og á
Sauðárkróki Upplýsingar,
verð og
skráning á
aktu.is
Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á
dögunum veglegan styrk til þróun-
ar námsgagna fyrir verkefnið sem
í daglegu tali er kallað STEAM.
Stóru málin í heiminum, eins og
fjórða iðnbyltingin, umhverfismál-
in og heimsmarkmið SÞ um sjálf-
bæra þróun ásamt lýðfræðilegum
áskorunum, kalla á aukna nýsköpun
á öllum sviðum mannlífs og samfé-
lags og ætlar skólinn að mæta þeim
í þessu verkefni. Stefna íslenskra
stjórnvalda í menntamálum og
nýsköpun til ársins 2030 endur-
spegla mikilvægi þess að ungt fólk
búi yfir hæfni og eiginleikum til
að geta tekið þátt í að móta nýjar
lausnir í góðri samvinnu við aðra
og þvert á greinar til þess að mæta
þessum áskorunum.
Skólaþróunarverkefni Mennta-
skóla Borgarfjarðar hefur þessi
atriði að leiðarljósi og að verk-
efninu koma fjölmargir hagaðil-
ar og sérfræðingar. Nemendur og
starfsfólk MB eiga stóran hluta
þeirra hugmynda sem ákveðið var
að hrinda í framkvæmd og geng-
ur samvinnan innan skólans vel.
Skólaárið 2022–2023 raunger-
ast mestu breytingarnar og hefur
skólinn sett saman samstarfsvett-
vang með háskólastiginu sem hugs-
aður er sem farvegur fyrir sameig-
inlegan lærdóm í gegnum rann-
sóknir og faglegt samtal sem fleiri
skólar og skólastig geta notið góðs
af í náinni framtíð. Allir háskólarn-
ir á landinu hafa staðfest þátttöku
sína í samstarfsvettvangnum sem
mun verða virkur frá og með hausti
2022.
Meðal nýjunga í skólastarfi MB
er þróun og innleiðing STEAM
náms og kennslu en skammstöfun-
in er á ensku og stendur fyrir Sci-
ence, Technology, Engineering,
Art og Mathematics. Þróunarsjóð-
ur námsgagna styrkti skólann um
tvær miljónir til þróunar námsefn-
is fyrir STEAM nám og kennslu.
Styrkurinn verður nýttur til að þróa
námsefni og námsmat fyrir nám og
kennslu í STEAM á framhalds-
skólastigi. Nú þegar hefur verið
settur saman hópur sérfræðinga og
kennara MB sem þróa námsefnið.
Í STEAM námi er lögð er áhersla
á grunnþekkingu greinanna og
aðferðafræði þeirra. Um er að ræða
samþættingu tækni, vísinda, stærð-
fræði, verkfræði og lista. Nem-
endur munu kynnast vísindalegri-
skapandi- og gagnrýnni hugsun
ásamt því að þjálfast í tæknilæsi og
tæknifærni í gegnum verkefni. Vís-
indalegar aðferðir verða kynntar og
nemendur fá tækifæri til að fram-
kvæma tilraunir og skilja samhengi
skapandi hugsunar og vísindastarfs.
Nemendur kynnast aðferðum list-
sköpunar og notkun á ólíkum efni-
við í listsköpun. Fjallað verður um
tengingu lista, vísinda og tækni og
hvernig stærðfræðin getur birst í
listsköpun og hvernig afurðir verk-
fræðinnar geta endurspeglað list-
ræna hugsun. Nemendur eiga að fá
þjálfun í hugmyndavinnu og hvern-
ig þeir geta sett fram hugmyndir
og kynnt þær. Nemendur fá innsýn
inn í heim fagfólks í tækni, vísind-
um, stærðfæði, verkfræði og listum
með tengingu við atvinnulíf, sam-
félag og umhverfi.
Kennsluhættir verða í anda
nýsköpunar- og frumkvöðlamennt-
ar en einnig er litið til annarra
kennslufræðilegra módela og
aðferða. Hér er um spennandi
nýsköpun í skólastarfi að ræða sem
vert er að fylgjast með á næstu
misserum. -fréttatilkynning
MB styrkt til þróunar námsefnis fyrir STEAM